Hætta olíuleit við Færeyjar Kristján Már Unnarsson skrifar 15. júní 2016 21:30
Olíuleit hefur verið hætt við Færeyjar, að minnsta kosti í bili, eftir að síðasta olíufélagið skilaði inn leitarleyfi sínu í síðustu viku. Færeysk stjórnvöld áforma nýtt olíuleitarútboð á næsta ári. Við sögðum frá rannsóknarskipinu Harrier Explorer í Reykjavík um síðustu helgi en það er nú komið á íslenska Drekasvæðið norðaustur af landinu að leita vísbendinga um olíu. En á sama tíma og olíuleitin er að fara af stað í lögsögu Íslands má búast við að rólegt verði á næstunni í olíuþjónustumiðstöð Færeyinga í bænum Rúnavík.Frá olíuþjónustumiðstöðinni í Rúnavík við Skálafjörð.Mynd/Eli Lassen.Frá Færeyjum berast þær fréttir að ráðamenn danska olíufélagsins Dong hafi í síðustu viku skilað inn sérleyfi sínu. Samkvæmt færeyskum fjölmiðlum báru þeir meðal annars við lágu olíuverði og mikilli óvissu og áhættu. Þar með hefur það gerst í fyrsta sinn í sextán ára olíuleitarsögu Færeyja að ekkert félag er lengur með virkt leyfi í lögsögu eyjanna. Færeysk stjórnvöld hafa frá árinu 2000 gefið út alls 19 sérleyfi en þeim hefur nú öllum verið skilað inn. Á þessum tíma hafa verið boraðar samtals níu holur en mest voru umsvifin fyrir tveimur árum þegar Statoil og ExxonMobil stóðu fyrir því að bora tvær holur sem talið er að hafi kostað yfir fjörutíu milljarða króna. Hvorug holan skilaði tilætluðum árangri og í framhaldinu hættu olíurisarnir frekari leit. Þó hefur fengist staðfest að olía er við Færeyjar þótt hún hafi til þessa ekki fundist í nægilegu magni til að standa undir vinnslu.Borpallurinn Cosl Pioneer boraði við Færeyjar sumarið 2012. Borsvæðið var um 80 kílómetra suðaustur af eyjunum.Færeysk stjórnvöld hafa hins vegar ekki lagt árar í bát. Þau hafa boðað nýtt olíuleitarútboð á næsta ári, sem yrði hið fjórða í röðinni í lögsögu Færeyja.
Tengdar fréttir Aldrei lagt jafn mikið í olíuleit í Færeyjum Mesta og dýrasta átak til þessa til að finna olíu við Færeyjar er hafið. Borpallur er kominn í lögsögu eyjanna til að bora tvær holur sem kosta munu allt að fjörutíu milljarða króna. 17. maí 2014 20:15 Færeyskar útgerðir færa sig í olíuiðnað Færeyskir útgerðarmenn, sem áður réru til fiskjar, hafa í auknum mæli snúið sér að olíuútgerð og gera nú út nærri tuttugu sérhæfð skip fyrir olíuiðnað. Olíuútrás Færeyinga skilar nú átta til ellefu prósentum af þjóðartekjum eyjanna. Jan Müller ritstýrir fréttavefmiðli færeyska olíugeirans og hann segir okkur að þótt engin vinnanleg olía hafi ennþá fundist í lögsögu Færeyja starfi samt milli þúsund og fimmtán hundruð Færeyingar við olíuiðnaðinn, margir þeirra erlendis. "Til dæmis eru 250 færeyskir rafvirkjar leigðir út til að vinna í norska olíuiðnaðinum. 9. apríl 2013 19:00 Færeyingar fríska upp á olíuborpall Einn stærsti olíuborpallur heims, risapallurinn West Hercules, hefur undanfarinn mánuð verið í viðamikilli klössun í Færeyjum. 21. september 2014 13:30 Ein hola stærsta verkefni í atvinnusögu Færeyja Olíuborun sem er að hefjast í færeysku lögsögunni eftir tíu daga verður stærsta verkefni í atvinnusögu Færeyja til þessa. Mikil spenna ríkir meðal Færeyinga og ríkir bjartsýni um að nú hylli loksins undir að þeir verði olíuþjóð enda hefur aldrei verið lagt jafn mikið undir og nú. Áætlað er að borun einnar holu kosti yfir 20 milljarða króna og á verkið að taka fjóra til fimm mánuði, 4. júní 2012 11:30 Færeyingar tilbúnir að sjá um Drekann Færeyingar bjóða olíubæinn Rúnavík fram sem þjónustuhöfn fyrir olíuleit á Drekasvæðinu. 8. apríl 2013 18:57 Þessu skipi er ætlað að finna olíulindir á Drekasvæðinu Olíuleitarskip hélt frá Reykjavík í dag áleiðis á Drekasvæðið til að safna gögnum fyrir kanadíska félagið Ithaca. 12. júní 2016 20:00 Færeyingar kynna nýtt olíuleitarútboð "Við vitum að olíu er að finna á færeyska landgrunninu og að fleiri af okkar svæðum eru mjög áhugaverð fyrir olíufélög að kanna nánar,“ sagði Johan Dahl, atvinnumálaráðherra Færeyja. 14. maí 2015 14:01 Vonbrigði í Færeyjum Vottur af kolvetnum var staðfestur en ekki í vinnanlegu magni, segir í tilkynningu Jarðfeingis, orkustofnunar Færeyja í dag, um nýjustu olíuborun við eyjarnar. 15. ágúst 2014 15:15 Mest lesið Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Sektuð fyrir að segjast vera best Neytendur Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Viðskipti erlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Kilroy hafi veitt ferðamönnum rangar upplýsingar Neytendur Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Eldamennskan og jólaljósin algengasti brunavaldur um hátíðirnar Samstarf Fleiri fréttir „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Raforka til gagnavera snarminnkað Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Sjá meira
Aldrei lagt jafn mikið í olíuleit í Færeyjum Mesta og dýrasta átak til þessa til að finna olíu við Færeyjar er hafið. Borpallur er kominn í lögsögu eyjanna til að bora tvær holur sem kosta munu allt að fjörutíu milljarða króna. 17. maí 2014 20:15
Færeyskar útgerðir færa sig í olíuiðnað Færeyskir útgerðarmenn, sem áður réru til fiskjar, hafa í auknum mæli snúið sér að olíuútgerð og gera nú út nærri tuttugu sérhæfð skip fyrir olíuiðnað. Olíuútrás Færeyinga skilar nú átta til ellefu prósentum af þjóðartekjum eyjanna. Jan Müller ritstýrir fréttavefmiðli færeyska olíugeirans og hann segir okkur að þótt engin vinnanleg olía hafi ennþá fundist í lögsögu Færeyja starfi samt milli þúsund og fimmtán hundruð Færeyingar við olíuiðnaðinn, margir þeirra erlendis. "Til dæmis eru 250 færeyskir rafvirkjar leigðir út til að vinna í norska olíuiðnaðinum. 9. apríl 2013 19:00
Færeyingar fríska upp á olíuborpall Einn stærsti olíuborpallur heims, risapallurinn West Hercules, hefur undanfarinn mánuð verið í viðamikilli klössun í Færeyjum. 21. september 2014 13:30
Ein hola stærsta verkefni í atvinnusögu Færeyja Olíuborun sem er að hefjast í færeysku lögsögunni eftir tíu daga verður stærsta verkefni í atvinnusögu Færeyja til þessa. Mikil spenna ríkir meðal Færeyinga og ríkir bjartsýni um að nú hylli loksins undir að þeir verði olíuþjóð enda hefur aldrei verið lagt jafn mikið undir og nú. Áætlað er að borun einnar holu kosti yfir 20 milljarða króna og á verkið að taka fjóra til fimm mánuði, 4. júní 2012 11:30
Færeyingar tilbúnir að sjá um Drekann Færeyingar bjóða olíubæinn Rúnavík fram sem þjónustuhöfn fyrir olíuleit á Drekasvæðinu. 8. apríl 2013 18:57
Þessu skipi er ætlað að finna olíulindir á Drekasvæðinu Olíuleitarskip hélt frá Reykjavík í dag áleiðis á Drekasvæðið til að safna gögnum fyrir kanadíska félagið Ithaca. 12. júní 2016 20:00
Færeyingar kynna nýtt olíuleitarútboð "Við vitum að olíu er að finna á færeyska landgrunninu og að fleiri af okkar svæðum eru mjög áhugaverð fyrir olíufélög að kanna nánar,“ sagði Johan Dahl, atvinnumálaráðherra Færeyja. 14. maí 2015 14:01
Vonbrigði í Færeyjum Vottur af kolvetnum var staðfestur en ekki í vinnanlegu magni, segir í tilkynningu Jarðfeingis, orkustofnunar Færeyja í dag, um nýjustu olíuborun við eyjarnar. 15. ágúst 2014 15:15