Þetta var gott kvöld fyrir New York liðin því Knicks vann líka sinn leik og einnig nýliðann Myles Turner hjá Indiana sem hélt upp á tvítugsafmælið sitt með stórleik.
Brook Lopez skoraði 22 stig og þar á meðal fimm síðustu stigin þegar Brooklyn Nets vann 104-95 sigur á Cleveland Cavaliers. Miðherjinn var einnig með 7 fráköst og 5 stoðsendingar. Shane Larkin kom aftur inn í byrjunarliðið og var með 16 stig og 7 stoðsendingar.
LeBron James var kominn með 30 stig eftir þrjá leikhluta þar sem hann hitti úr 13 af fyrstu 14 skotum sínum. James klikkaði aftur á móti á báðum skotum sínum í fjórða leikhlutanum og var þá stigalaus. Brooklyn-liðið vann leikhlutann 24-12 og þar með leikinn með níu stigum.
Leikur Cleveland Cavaliers hrundi algjörlega í lokin þegar náði 14-0 spretti á síðustu sex mínútunum og tryggði sér sigurinn. Cavaliers-liðið var fyrir leikinn búið að vinna 32 fleiri leiki en Brooklyn á tímabilinu.
Kyrie Irving (13 stig) og Kevin Love (11 stig og 12 fráköst) voru næstir James í stigaskorun en þeir þurftu 36 skot til þess að skora þessi 24 stig sín og voru saman 1 af 13 fyrir utan þriggja stiga línuna.
Russell Westbrook átti möguleika á að ná þrennu í fjórða leiknum í röð en fékk ekkert að spila í fjórða leikhluta þegar Thunder-liðið var komið með örugga forystu. Westbrook var með 15 stig, 9 stoðsendingar og 7 fráköst í fyrstu þremur leikhlutanum og því kominn í færi við enn eina þrennuna.
Carmelo Anthony skoraði 26 stig og nýliðinn Kristaps Porzingis var með 19 stig þegar New York Knicks vann 106-94 sigur á Chicago Bulls en Knicks vann því báða leiki liðanna á tímabilinu. Derrick Rose skoraði 30 stig fyrir Chicago sem er nú í hættu á að komast ekki í úrslitakeppnina.
Myles Turner var með 24 stig og 16 fráköst á tuttugu ára afmælisdeginum sínum þegar lið hans Indiana Pacers vann 92-84 heimasigur á New Orleans Pelicans. Þetta var annar sigur Indiana í röð en liðið missti Paul George af velli meiddan í þriðja leikhlutanum.
Damian Lillard var með 18 stig fyrir Portland sem hefur verið að gefa eftir að undanförnu en þetta var áttunda tap liðsins í síðustu tólf leikjum. Lillard var einnig með átta stoðsendingar en hitti aðeins úr 4 af 16 skotum sínum.
Indiana Pacers - New Orleans Pelicans 92-84
Brooklyn Nets - Cleveland Cavaliers 104-95
New York Knicks - Chicago Bulls 106-94
Oklahoma City Thunder - Utah Jazz 113-91
Los Angeles Clippers - Portland Trail Blazers 96-94
Staðan í NBA-deildinni eftir leiki næturinnar.