Besti bókartitill ársins:
1. sæti
Og svo tjöllum við okkur í rallið eftir Guðmund Andra Thorsteinsson
„Skemmtilegur og hlýlegur titill“
„Titill sem er fullur af leik og skemmtilegheitum og er í senn eitthvað svo freistandi því mann langar til þess að vita meira. Algjör snilld!“

2. sæti
Hin hálu þrep – lífshlaup mitt eftir Bjarna Bernharð Bjarnason
„Glæsilegur titill og með snjalla tilvísun í efni bókarinnar.“
„Það hlýtur að vera safarík saga á bak við þennan titil. Freistandi og ljóðrænt.“
3. sæti
Eitthvað á stærð við alheiminn eftir Jón Kalman Stefánsson
„Fallegur titill sem vekur forvitni.“

1. sæti
Sjóveikur í München eftir Hallgrím Helgason
„Ég veit það ekki, en í hvert sinn sem ég heyri minnst á Sjóveikur í München eftir Hallgrím Helgason, verður mér hugsað til Vaknað í Brussel, eftir Betu rokk. Það eru ekki góð hugrenningatengsl.“
„Þarfnast það útskýringa?“
„Sjóveiki og München saman í titli er ekki aðlaðandi. Þá væri ég frekar til í að vera bílveikur í Búdapest.“
2. sæti
Brynhildur Georgía Björnsson eftir Ragnhildi Thorlacius
„Bók um konu sem átti einstaklega litríka og ævintýralega ævi en titillinn er eins og upphafið á skýrslu hagstofunnar. Andleysi ársins.“
„Hefði ekki mátt finna eitthvað einkennandi fyrir þessa merkilegu konu í bókartitil? Það finnst mér. Af nógu er að taka.“
3. sæti
Stúlka með höfuð eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur
„Þetta blekkir mann aðeins því kápan er falleg. En ef þú spáir í titilinn einan og sér, þá meikar hann algjörlega engan sens.“
„Æ, það er eitthvað svo skelfing áreynslukennt við þetta.“

Þá hló Skúli eftir Óskar Guðmundsson
„Ha Skúli, hvaða Skúli, fógetinn eða rafvirkinn? Forvitnilegur maður sjálfsagt en einstaklega óspennandi, vísun í Þá hló þingheimur sem er enn þá verra.“
Litlar byltingar, draumar um betri daga eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur
„Litlar byltingar eru einhvern veginn óspennandi og það er eitthvað vælulegt við undirtitilinn.“
Hvað með börnin? eftir Hugleik Dagsson
„Já, hvað með þau? Þau fá að minnsta kosti örugglega ekki að blaða í þessari bók dónakallsins Hugleiks Dagssonar, en fyndinn er hann. Titillinn og Hugleikur.“
Álitsgjafar: Hildur Sigurðardóttir, grafískur hönnuður, Ólöf Birna Garðarsdóttir, grafískur hönnuður, Ólöf Skaftadóttir blaðamaður, Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður, Jakob Bjarnar Grétarson blaðamaður, Hilmar Þorsteinn Hilmarsson, grafískur hönnuður, Margeir Gunnar Sigurðsson bóksali, Jón Kaldal ritstjóri, Þorsteinn Joð Vilhjálmsson kvikmyndagerðarmaður.