Skoðun

Skilaboð frá toppAra

Ari Trausti Guðmundsson skrifar
Ég hef skrifað um margt sem að mér snýr í blöðin en afar sjaldan um heilbrigðismál. Nú ætla ég að taka til mín nýleg orð Sigmundar Davíðs forsætisráðherra. Ég er nefnilega toppari - sem sagt Ari sem hef gaman af háum toppum og bý við þá gæfu að vera vel heilsuhraustur. En ég þekki til margra sem eru það ekki og ég hef snertifleti við fólk í heilbrigðisgeiranum.

Burtséð frá því að vera toppari hvað heilsu og áhugamál snertir vil ég koma skilaboðum til Sigmundar og margra annarra sem um heilbrigðismálin véla, til hliðar við stóru orðin sem tíðkast:

Gagnrýnin á hann og aðra snýst ekki um innræti þingmanna eða nudd hvort þessi ríkisstjórn hafi gert betur en sú síðasta. Hún snýst um að hjartans kerfi þjóðarinnar, heilsugæslan og spítalakeðjan, er ekki aðeins rekið undir ásættanlegri getu heldur liggur leið þess áfram niður á við. Hún snýst um gagnrýni á rangar ákvarðanir um fjármögnun brýnnar samfélagsþjónustu í heilbrigðisgeiranum. Hún beinist að afneitun á skýrum, hóflegum og rökstuddum lágmarkskröfum svo tryggja megi öryggi allra er veikjast og meiðast.

Hvorki Sigmundur Davíð, Bjarni Benediktsson né Vigdís Hauksdóttir geta fundið lækni, svo dæmi sé tekið, innan kerfisins sem er ósammála kröfunum. Eða telur ekki skyldu ríkisvaldsins að virða þær og horfa opnum augum inn í spítalana sem eru að kikna.

Þetta eru ekki freklegar kröfur þrýstihóps eða tuð sérhagsmunafólks. Beiðnirnar eiga sér almennan samfélagsstuðning. Sá sem kveinkar sér undan þeim eða vísar þeim hofmóðugur frá er ekki í jarðsambandi við umbjóðendur sína. Fyrirfram teknar ákvarðanir um hallalaus fjárlög eða oftryggð við óbreytanlegar upphæðir til þúsund lagaliða eiga hér ekki við.

Heilbrigðiskerfi með lágmarksgetu, að mati allra sem þar starfa, varða sjálfa viðveru okkar mitt á meðal Sigmundar Davíðs og þeirra hinna. Færi svo, sbr. dæmi Kára Stefánssonar um inngrip í hættulegt hjartagáttatif, að einhver sem nú neitar Lansanum um bráðnauðsynlegt viðbótarfé, þyrfti á inngripinu að halda, sætti hann eða hún sig þá við svarið: „Nei, það má bara gera 60 aðgerðir á ári. Vinsamlega reyndu aftur á næsta ári. En fáirðu heilablóðfall sem oft fylgir tifinu, leitaðu þá læknis.“

Í þennan aðgerðapott vantar rúmar 50 milljónir til að sinna lágmarksfjölda aðgerða (150). Heyri ég einhvern spyrja: „Hvar á finna milljónir?“ Þau eru auðveld, pennastrikin.


Tengdar fréttir

Toppari Íslands

Fyrir allmörgum árum var ég staddur í samkvæmi þar sem einn af gestunum gerði sig stöðugt meira gildandi. Það var sama hvaða umræðuefni kom upp, alltaf tróð maðurinn sér inn í samtölin (stundum fleiri en eitt í einu) eða talaði yfir fólk til að útskýra að hann vissi meira um málið en aðrir, hann hefði gert hlutina öðruvísi og betur.

Einnota ríkisstjórn

Það er orðið lýðum ljóst að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs mun ekki sitja lengur en sem nemur kjörtímabilinu. Ástæðan er margþætt og það á við hér eins og segir í Geirmundarsögu Heljarskinns að: "það renna margir orsakalækir að einum ósi örlaga.“




Skoðun

Sjá meira


×