Innlent

Vilhjálmur krefst afsökunar á „rænulausum ásökunum“

Birgir Olgeirsson skrifar
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson. Vísir/GVA
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson gerir þá kröfu að Jóhanna Sigurjónsdóttir skýri nú þegar hvað hún á við þegar hún segist ætla að kæra Vilhjálm fyrir leka á trúnaðarupplýsingum í Fréttablaðið og biðji hann afsökunar á þessum ásökunum.

Jóhanna er lögmaður tveggja kvenna sem kært hafa tvo karla fyrir nauðgun. Í hádegisfréttum RÚV sagðist hún ætla að kæra Vilhjálm fyrir leka á trúnaðarupplýsingum sem varða rannsókn lögreglu á kæru kvennanna en Vilhjálmur er verjandi annars sakborninganna í málinu.

Vilhjálmur segist í samtali við Vísi ekkert botna í þessum ásökum Jóhönnu: „Ég geri þá kröfu að Jóhanna Sigurjónsdóttir skýri það nú þegar við hvað hún á, og biðji mig afsökunar á þessum rænulausu ásökunum.“

Segist ekki hafa verið sá eini sem hafði gögn undir höndum

Í Fréttablaðinu í dag er vísað í skýrslu sem önnur konan gaf hjá lögreglu og sagði Jóhanna í hádegisfréttum RÚV að Vilhjálmur hefði einn haft öll gögn í málinu undir höndum og bætti að hann hefði brugðist starfsskyldum sínum. Vilhjálmur segir rangt að hann hafi einn haft öll gögn undir höndum. Einnig hafi lögregla haft gögnin undir höndum og verjandi meðákærða. „Og að öllum líkindum réttargæslumaður brotaþola og brotaþoli sjálfur,“ segir Vilhjálmur.

Hann segir algjörlega galið að halda því fram að hann hafi lekið þessari skýrslu í Fréttablaðið: „Enda sér það hver maður að fréttaflutningur Fréttablaðsins af þessu máli hefur ekki verið umbjóðanda mínum hagfelldur heldur hennar.“

Nauðugur einn sá kostur að halda uppi vörnum í fjölmiðlum

Hann segist hafa verið frá fyrstu stundu afar mótfallinn því að tekist væri á um þetta mál í fjölmiðlum á meðan rannsókn stendur yfir.

„En einfaldlega vegna rangrar umfjöllunar Fréttablaðsins, sem hingað til hefur virst vera byggð á einhverju sem er haft eftir brotaþola, eða réttargæslumanni brotaþola, hvort heldur sem það er komið beint frá þeim eða þriðja manni, þá hefur mér verið nauðugur einn sá kostur að halda uppi vörnum í fjölmiðlum. Þetta mál á heima hjá lögreglu og síðan hjá ákæruvaldi en samkvæmt gögnum málsins trúi ég ekki öðru en ákæruvaldið muni fella málið niður. “


Tengdar fréttir

Skýrsla kæranda lýsir notkun tóla

Í skýrslu brotaþola hjá lögreglu í kynferðisbrotamáli kemur fram að annar meintra gerenda hafi bundið hendur hennar með keðju. Þá hafi hún verið slegin með svipu. Tvær kærur verið lagðar fram. Málið í forgangi hjá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×