Innlent

Varar við stormi á vestanverðu landinu

Atli Ísleifsson skrifar
Hitinn verður á bilinu 4 til 15 stig í dag, hlýjast suðvestanlands en kaldast á annesjum fyrir norðan.
Hitinn verður á bilinu 4 til 15 stig í dag, hlýjast suðvestanlands en kaldast á annesjum fyrir norðan. Vísir/Vilhelm
Vindasamt er nú í höfuðborginni og annars staðar á vestanverðu landinu. Veðurstofan segir að búast megi við stormi á nokkrum stöðum í þessum landshluta fram að hádegi.

Veðurstofan segir að nú sé vaxandi norðanátt vestanlands, 13 til 23 metrar á sekúndu með morgninum, en annars 5 til 13 metrar á sekúndu. Hvassara sé á stöku stað austast fram eftir morgni.

Hvassast sé hlémegin fjalla og hviður allt að 35 metra á sekúndu. Búast má við að lægir smám saman upp úr hádegi. Rigning verður á norðan- og austanverðu landinu en skýjað með köflum suðvestantil. Hitinn verður á bilinu 4 til 15 stig, hlýjast suðvestanlands en kaldast á annesjum fyrir norðan.

Uppfært 10.00:

Eftirfarandi fréttatilkynning barst frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu í morgun:

„Björgunarfélag Árborgar var kallað út rétt um kl. 9:30 í óveðursaðstoð á Selfossi.  Veðurstofan varaði við miklum vindi síðastliðna nótt og fram eftir deginum í dag á Suðurlandi. Trampólín og annað laust dót er farið að fjúka um á Selfossi sem björgunarsveitarfólk er farið af stað til aðsækja og eða binda það niður. Það þarf ekki haustlægðirnar til að trampólín og fleira fari af stað.“

Frá veðurstofu:"Hvassviðri og sums staðar stormur, yfir 20 m/s, á vestanverðu landinu fram eftir morgni og má búast vi...

Posted by Lögreglan á Suðurlandi on Sunday, 19 July 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×