Ísland talið til umsóknarríkja í nýrri skýrslu ESB

Sem kunnugt er, sendi Gunnar Bragi bréf til ráðherraráðs sambandsins í mars síðastliðnum þar sem óskað var eftir því að Ísland væri ekki lengur talið til umsóknarríkja.
Maja Kocijancic, talsmaður stækkunarstjóra ESB, sagði þá að bréfið sem slíkt, sem ekki var borið undir utanríkismálanefnd Alþingis áður en það var sent, væri ekki ígildi afturköllunar aðildarumsóknar Íslands.
Sjá einnig: „Við erum búin að núllstilla ferlið“
Bréfi Gunnars Braga var svo svarað í síðasta mánuði og þar sagt að ráðherraráðið myndi íhuga ákveðnar praktískar breytingar á verklagi sínu. Við það tilefni var haft eftir Gunnari Braga í tilkynningu að hann gerði ráð fyrir að þetta þýddi að Ísland yrði í kjölfarið tekið af lista umsóknarríkja.
„Ísland er ekki lengur umsóknarríki“
Í svari við fyrirspurn fréttastofu varðandi það að Ísland sé flokkað með umsóknarríkjum í nýju skýrslunni segir Gunnar Bragi að skýrslan hafi verið í vinnslu frá því áður en ráðherraráðið svaraði bréfinu fræga. Jafnframt hafi hún verið unnin án aðkomu íslenskra stjórnvalda, ólíkt því sem hafi tíðkast áður.
„Ísland er ekki lengur umsóknarríki að Evrópusambandinu,” skrifar Gunnar Bragi. „Umrædd skýrsla hefur verið í vinnslu um nokkurra mánaða skeið, sem sagt áður en kom til ákvörðunar ráðherraráðsins, samkvæmt upplýsingum sendiráðs Íslands í Brussel. Skýrslan var unnin án aðkomu íslenskra stjórnvalda ólíkt áður, á meðan Ísland var umsóknarríki.”
Tengdar fréttir

Gunnar Bragi: „Skylda ríkisstjórnarinnar að fylgja eftir stefnumálum sem meirihlutinn kaus“
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra flutti í dag munnlega skýrslu á bréfi sínu til Evrópusambandsins um slit á aðildarviðræðum.

Bréf til ESB hættulegt fordæmi
Viðskiptaráð fordæmir léleg vinnubrögð stjórnvalda vegna viðræðuslita.

Gunnar Bragi segir stjórnina ekki þvingaða til að fylgja stefnu vinstristjórnarinnar
Hafnar því að um meiriháttar utanríkismál hafi verið að ræða og segir að málið hafi verið til umræðu í utanríkismálanefnd.

Stjórnarandstaðan segir aðildarumsókn enn í fullu gildi
Ný ríkisstjórn geti haldið áfram viðræðum.

Ekkert samráð um bréfið við framkvæmdastjórn ESB
Bréf utanríkisráðherra kom framkvæmdastjórn Evrópusambandsins algerlega á óvart. Þurfti aldrei leyfi Alþingis til að leggja aðildarumsóknina fram að mati utanríkisráðherra.

ESB svarar Gunnari Braga: Ráðherraráðið íhugar breytingar á verklagi sínu
Gunnar Bragi segist gera ráð fyrir að Ísland verði nú tekið af lista umsóknarríkja.

ESB ítrekar að aðildarumsókn Íslands hafi ekki verið dregin til baka
Talsmaður stærkkunarstjóra ESB segir aðildarumsókn Íslands enn í gildi en afstaða núverandi ríkisstjórnar til áframhaldandi viðræðna sé skýr.

Gunnar Bragi á fundi utanríkismálanefndar: „Við erum búin að núllstilla ferlið“
Utanríkisráðherra lýsti því yfir á fundi utanríkismálanefndar í morgun að aðildarviðræðum við ESB væri formlega lokið.

Mikil óánægja með störf Gunnars Braga í ESB-málinu
Mikill meirihluti Íslendinga, eða 63 prósent, er ósáttur við framgöngu Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra í Evrópumálum undanfarna daga.