Hættu við að senda Eurovision út beint vegna Silvíu Nætur
Þetta kom fram í máli hennar og Gauks Úlfarssonar, sköpurum dívunnar Silvíu Nætur Sæmundsdóttur, í þættinum Eurovísi í dag.
„Við þurftum að breyta orðalagi í textaþýðingunni okkar og segja „frigging“ í staðinn fyrir „fokking“ og alls konar svona. Svo var útsendingunni seinkað í fyrsta skipti,“ sagði Ágústa Eva í dag.
„Það var þannig að æfingavídjóið yrði sýnt ef Gústa myndi allt í einu draga upp dildó. Þá væri hægt að fara í upptökuna í staðinn fyrir „live“ dótið,“ sagði Gaukur Úlfarsson.
Ekki verður ofsögum sagt að Silvía Nótt hafi gert allt vitlaust, hér á Íslandi og ytra. Hún vakti athygli hvert sem hún fór og skiptist fólk í tvær fylkingar; það ýmist hataði hana eða elskaði. Silvía Nótt flutti lagið Congratulations í Aþenu í Griklandi með eftirminnilegum hætti.
Ágústa Eva og Gaukur fóru yfir upplifun þeirra af keppninni í Eurovísi, en hlusta má á þáttinn í heild í spilaranum hér fyrir ofan.
Eurovísir er nýtt vikulegt hlaðvarp á Vísi þar sem hitað verður upp fyrir Eurovision sem fram fer í Vínarborg í maí. Umsjónarmenn þáttarins eru Aðalsteinn Kjartansson og Sunna Karen Sigurþórsdóttir.
Tengdar fréttir

María Ólafsdóttir syngur á tónleikum í Rússlandi
María Ólafsdóttir fer í tveggja daga ferð til Rússlands í lok apríl. Undirbúningur fyrir Eurovision gengur vel. Verið er að leggja lokahönd á atriði Maríu fyrir Eurovision.

Hlustaðu á Maríu Ólafs syngja Euphoria
María Ólafs var gestur í nýjasta þætti Eurovísis en þar tók hún uppáhalds Eurovision lagið sitt.

Vill semja Eurovisionlag fyrir Pál Óskar
Ásgeir Orri í StopWaitGo vill semja lag fyrir Pál Óskar til að fara með í Eurovision. Páll hefur sagst tilbúinn að taka þátt aftur.

Eurovísir: Misstu þrjú kíló í Eurovision í Úkraínu
Eurovisionkynnirinn Logi Bergmann og Regína Ósk, sem fór fyrir hönd Íslands í Eurovision 2008, voru gestir í nýjasta þættinum af Eurovísi.

Hlustaðu á Regínu Ósk syngja lagið sem hún vildi að hefði verið samið fyrir sig
Regína Ósk söng lagið Only Teardrops þegar hún var gestur í nýjasta þætti Eurovísis.

Eurovísir: Var sendur einn í Eurovision
Logi Bergmann segir frá því þegar hann fór einn sem fulltrúi Íslands í Eurovision.

Páll Óskar í Eurovision 2016?
Páll Óskar Hjálmtýsson ætlar að senda lag inn í undankeppnina þegar hann fær rétta lagið í hendurnar.

RÚV hafnaði einu lagi frá StopWaitGo
Sendu inn þrjú lög í Söngvakeppnina Sjónvarpsins en tvö laganna börðust í úrslitaeinvíginu.