Þjálfarasonurinn skein skært í sigri Clippers | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. febrúar 2015 10:43 James Harden, leikmaður Houston, ásamt þjálfaranum, Kevin McHale. vísir/afp
Fimm leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Houston Rockets vann góðan sigur á Toronto Raptors á heimavelli, 98-76. Toronto leiddi í hálfleik, 36-40, en Houston-menn komu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik sem þeir unnu 58-40. Corey Brewer átti fína innkomu af bekknum og var stigahæstur í liði Houston með 26 stig, auk þess sem hann tók 10 fráköst og stal boltanum fimm sinnum. Stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar í vetur, James Harden, skilaði 20 stigum og sjö stoðsendingum. James Johnson var stigahæstur í liði Toronto með 27 stig en enginn annar leikmaður liðsins skoraði meira en 11 stig.Austin Rivers setti persónulegt met í nótt þegar hann skoraði 28 stig.vísir/afpAustin Rivers skoraði 28 stig þegar Los Angeles Clippers vann öruggan sigur á Sacramento Kings, 126-99. Rivers hefur aldrei skorað jafn mikið í leik í NBA en hann er sonur þjálfara Clippers, Doc Rivers. J.J. Redick bætti 24 stigum við og þá skoraði Jamal Crawford 23 stig af bekknum. DeMarcus Cousins var atkvæðamestur hjá Sacramento með 21 stig, en skotnýting liðsins í leiknum í nótt var afleit, eða 34,1%.Pau Gasol skilaði 22 stigum og 14 fráköstum í sigri Chicago í nótt.vísir/afpÖflugur lokaleikhluti tryggði Chicago Bulls fimm stiga sigur, 112-107 á Phoenix Suns á heimavelli. Þetta var fimmti sigur Chicago í síðustu sex leikjum. Pau Gasol átti góðan leik í liði Chicago, skoraði 22 stig og tók 14 fráköst. Annars dreifðist stigaskorið hjá heimamönnum vel en sex leikmenn skoruðu yfir 12 stig í leiknum. P.J. Tucker var stigahæstur hjá Phoenix með 20 en liðið er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni í Vesturdeildinni. Þá vann Oklahoma City Thunder sjö stiga sigur á Charlotte Hornets, 110-103, og New Orleans Pelicans lagði Miami Heat að velli, 105-91.Úrslitin í nótt: Oklahoma 110-103 Charlotte New Orleans 105-91 Miami Phoenix 107-112 Chicago Toronto 76-98 Houston Sacramento 99-126 LA ClippersHugguleg sending frá Jamal Crawford á Austin Rivers Russell Westbrook fór mikinn gegn Charlotte
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira