Allt byrjunarlið Atlanta Hawks valið „leikmaður" mánaðarins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2015 12:45 Byrjunarlið Atlanta Hawks. Vísir/Getty
Atlanta Hawks varð í janúar fyrsta liðið í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta til að vinna alla sautján leiki sína í einum mánuði og í gær skrifaði liðið einnig nýjan kafla í söguna þegar NBA-deildin valdi alla fimm byrjunarliðsleikmenn liðsins besta leikmenn Austurdeildarinnar í mánuðinum. Paul Millsap, Jeff Teague, Al Horford, Kyle Korver og DeMarre Carroll voru allir valdir bestu leikmenn mánaðarins. Þeir skoruðu allir yfir tíu stig í leik en enginn þeirra skoraði þó meira en tuttugu stig að meðaltali. Atlanta Hawks hefur komið öllum á óvart með frábærri spilamennsku í vetur en liðið er langefst í Austurdeildinni og rétt á eftir Golden State Warriors þegar kemur að besta sigurhlutfallinu í allri NBA-deildinni. Paul Millsap var stigahæsti leikmaður Atlanta Hawks í mánuðinum (18,3 stig í leik) en næstir honum voru þeir Horford (17,1), Teague (16,6), Korver (13,4) og Carroll (12,3). Atlanta-liðið vann þessa sautján leiki sína með 11,9 stigum að meðaltali í leik. Millsap var efstur þeirra í fráköstum (8,0 í leik), Teague leiddi liðið í stoðsendingum (8,5) og stolnum boltum (1,8), Horford varði flest skot (1,4) og Korver var með bestu þriggja stiga skotnýtinguna (56.7 prósent). James Harden hjá Houston Rockets var valinn besti leikmaður janúar í Vesturdeildinni en hann var með 25,8 stig og 6,7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Þetta er annar mánuðurinn í röð sem Harden er valinn bestur.Bestu leikmenn mánaðarins í NBA-deildinni í vetur:Nóvember Austurdeildin: Jimmy Butler, Chicago Bulls Vesturdeildin: Stephen Curry, Golden Statw WarriorsDesember Austurdeildin: Kyle Lowry, Toronto Raptors Vesturdeildin: James Harden, Houston RocketsJanúar Austurdeildin: DeMarre Carroll, Atlanta Hawks Al Horford, Atlanta Hawks Kyle Korver, Atlanta Hawks Paul Millsap, Atlanta Hawks Jeff Teague, Atlanta Hawks Vesturdeildin: James Harden, Houston Rockets
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira