Kostnaðarsamar breytingar fyrir Cleveland Cavaliers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2015 15:00 Þjálfarinn Dave Blatt með einum af nýju mönnunum J.R. Smith. Vísir/Getty
Cleveland Cavaliers hefur verið duglegt á félagsskiptamarkaðnum í NBA-deildinni í körfubolta að undanförnu en allar þess breytingar munu kosta sitt fyrir eiganda félagsins. Cleveland Cavaliers fékk til sín leikmennina Iman Shumpert, J.R. Smith og Timofey Mozgov og vænir samningar þeirra þýðir að félagið þarf væntanlega að borga 6,7 milljónir dollara í lúxusskatt sem gerir um 873 milljónir íslenskra króna. New York Knicks tókst á móti að lækka lúxusskattinn sinn niður í 5,8 milljónir dollara með því að losna við Shumpert, Smith og svo Samuel Dalembert. Það stefnir nú í það að fimm félög í NBA-deildinni borgi þennan lúxusskatt en hann þurfa félög að borga fari þau yfir launaþakið. Lúxusskatturinn skiptist síðan á milli liða deildarinnar sem eru undir launaþakinu. Liðin fimm eru, auk Cleveland Cavaliers og New York Knicks, Brooklyn Nets, Los Angeles Clippers og Oklahoma City Thunder. Brooklyn Nets þarf að borga langmest eða 26,1 milljónir dollara sem gera yfir 3,4 milljarða íslenskra króna. Cleveland er í öðru sæti listans og New York er í því þriðja. Fleiri félög gætu dottið í það að þurfa að greiða umræddan lúxusskatt þurfi þau að gera breytingar því Toronto Raptors, Houston Rockets, Washington Wizards, Memphis Grizzlies og Indiana Pacers eru öll mjög nálægt launaþakinu.
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira