
Dýrmætasta eignin
Óhætt er að staðhæfa að lífeyriskerfið sé einhver dýrmætasta eign samfélagsins. Það voru auðnuspor þegar fyrstu skrefin voru stigin til uppbyggingar á almennu lífeyriskerfi með sameiginlegri ábyrgð launafólks og atvinnufyrirtækja. Þar sem áður var mjór vísir er nú kerfi í hlutfalli við umfang þjóðarbúskaparins sem engin önnur þjóð, að Hollendingum fráskildum, getur státað af.
Þjóðmálaumræðan er oft þversagnakennd. Segja má að hnútukast í garð lífeyrissjóðanna hafi aukist eftir því sem þeim hefur vaxið ásmegin. Og þá beina menn helst sjónum sínum að stjórnkerfi þeirra. Vitaskuld þurfa þeir aukið aðhald eftir því sem þeir verða umsvifameiri í þjóðarbúskapnum. En hinu mega menn ekki gleyma að það er einmitt þetta stjórnkerfi sem hefur fært samfélaginu þá dýrmætu eign sem sjóðirnir eru. Það er öfugsnúið að byrja á að breyta því sem vel hefur gefist.
Hættumerkin sem eru fram undan lúta að stærstum hluta að pólitískum viðfangsefnum á þessu sviði. Það er þögnin um þau sem þarf að rjúfa. Þeim verður ekki sópað undir teppið endalaust án afleiðinga.
Góð umsögn
Aðrar ályktanir verða ekki dregnar af yfirliti Fjármálaeftirlitsins en að almennu lífeyrissjóðirnir sem ekki njóta opinberrar ábyrgðar standi ágætlega þrátt fyrir áföllin sem leiddu af hruninu. Þar kemur skýrt fram að tryggingafræðileg staða þeirra sjóða hefur batnað á undanförnum árum og er nú nálægt því að vera í jafnvægi.
Raunávöxtun sjóðanna í fyrra var vel yfir því ávöxtunarviðmiði sem er í gildi. Athyglisvert er að tíu ára meðaltal, sem inniheldur tapið í hruninu, sýnir að ávöxtun á því tímabili fullnægir ávöxtunarviðmiðinu. Þetta eru umtalsverð tíðindi, sem ástæða er til að fagna.
Vandamálin snúa fyrst og fremst að lífeyrissjóðum með ábyrgð ríkis og sveitarfélaga. Tryggingafræðileg staða þeirra var neikvæð um sex hundruð milljarða króna. Þetta er vandi sem snýr beint að skattgreiðendum. Þeir eiga ekki aðeins rétt á að vita hver framtíðarsýn ríkisstjórnarinnar er heldur einnig hverjar hugmyndir stjórnarandstöðuflokkarnir hafa til lausnar.
Annar pólitískur vandi sem fram kemur í yfirlitinu felst í því að nærri helmingur af verðbréfaeignum lífeyrissjóðanna er með ábyrgð ríkis eða sveitar félaga. Þótt ríkissjóður sé traustur skuldari þarf enga sérfræðinga í áhættustýringu til að sjá að þessi mikli áhættusamruni er umhugsunarefni.
Skattborgararnir sem eiga réttindi í nútíð og framtíð í sjóðunum eru sjálfir í ábyrgð fyrir helmingi þeirra eigna sem réttindi þeirra hvíla á. Einnig á þessu sviði eiga skattborgararnir rétt á að heyra afstöðu stjórnmálaflokkanna til áhættudreifingar og hvernig þeir hyggjast bregðast við. Höftin eru vitaskuld kjarni vandans. Það er einfaldlega óábyrgt að halda þessum hættumerkjum fyrir utan almenna stjórnmálaumræðu.
Vandi stjórnmálanna
Um leið og sú krafa er gerð til stjórnmálaflokkanna að þeir komi með skýr svör við þessum stóru spurningum verður að viðurkenna að þetta eru einhverjar stærstu og erfiðustu spurningarnar sem þeir standa andspænis. Það þarf að fórna einhverju fyrir lausnirnar. Og það sem meira er: Fórnin kemur fyrst og ávinningurinn síðar. Það er pólitíska klípan.
Hér kemur til kasta kjósendanna. Þeir þurfa að vera tilbúnir til þess að meðtaka og ræða þann boðskap sem byggir á langtímasjónarmiðum en ekki bara stundarhagsmunum. Það gerist hins vegar ekki sjálfkrafa. Til þess þarf forystu og sannfæringarkraft sem stjórnmálin verða að veita.
Vinstri stjórnin lokaði augunum fyrir þessum tveimur vandamálum. Vonir voru bundnar við nýja ríkisstjórn en hún kaus að hafa sama hátt á í fyrsta fjárlagafrumvarpi sínu. Ólíklegt er að nokkur ríkisstjórn hafi styrk til að taka á svo erfiðum málum á seinni hluta kjörtímabils. Eina færi núverandi stjórnar er því að kynna áform sín og áætlanir í næsta fjárlagafrumvarpi.
Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar hefur aftur á móti þrengt möguleika hennar og jafnvel gert þá að engu. Það var annars vegar gert með því að útiloka eina af þeim leiðum sem Íslandi eru færar í peningamálum og gæti hugsanlega opnað möguleika fyrr en nú horfir á meiri áhættudreifingu lífeyrissjóðanna.
Hins vegar með því að verja bankaskattinum í niðurgreiðslur á húsnæðisskuldum einstaklinga fremur en skuldum skattborgaranna þar á meðal vegna lífeyrisskuldbindinga. Það er forgangsröðun af þessum toga sem þarf að draga inn í stjórnmálaumræðuna.
Skoðun

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar

Sama steypan
Ingólfur Sverrisson skrifar

Ofbeldi gagnvart eldra fólki
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar

Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur
Eden Frost Kjartansbur skrifar

Þegar ríkið fer á sjóinn
Svanur Guðmundsson skrifar

Íbúðarhúsnæði sem heimili fólks
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Íslenskumælandi hjúkrunarfræðingar
Guðbjörg Pálsdóttir skrifar