
Lítið sem ekkert upp í 21,4 milljarða króna gjaldþrot útgerðarfélags

Lýstar kröfur í þrotabúið voru upp á 21,4 milljarð króna, 12,6 milljónir greiddust upp í veðkröfur og 84,5 milljónir upp í almennar kröfur. Ekkert fékkst greitt upp í eftirstæðar kröfur. RÚV greinir frá og vísar í upplýsingar á vef Lögbirtingablaðsins.
Slitastjórnir Glitnis og gamla Landsbankans kröfðust þess að fá greitt úr þrotabúinu en nú er ljóst að ekkert hefur fengist upp í þær kröfur. Þá stefndi slitastjórn Glitnis Jakobi Valgeiri auk fjögurra annarra vegna 725 milljóna króna láns sem Glitnir veitti félaginu Stím í janúar 2008. Jakob gegndi stjórnarformennsku í félaginu.
Þá hefur héraðsdómur til meðferðar mál sérstaks saksóknara á hendur Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, Jóhannesi Baldurssyni, einum stjórnenda bankans og Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, fyrrverandi forstjóra Saga Capital, vegna 20 milljarða króna láns sem Glitnir veitti Stím til hlutabréfakaupa í Glitni og FL Group í nóvember 2007. Veðin fyrir láni Stíms voru í hlutabréfunum í Glitni og FL Group. Glitnir var sjálfur seljandi bréfanna sem Stím keypti og lögðu hluthafarnir einnig fram tæplega 5 milljarða króna eiginfjárframlag vegna kaupanna á bréfunum.
Jakob Valgeir er sem kunnugt er einn eigenda útgerðarfélagsins Jakobs Valgeirs ehf í Bolungarvík.
Tengdar fréttir

Þorvaldur segir ákæruna vera létti fyrir sig
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson segist vera létt að ákæra hafi loksins verið gefin út í Stím málinu, enda hafi hann gegnt stöðu sakbornings í þrjú og hálft ár.

Glitnir stefnir Jakobi Valgeiri - vilja 300 milljónir út af Stím
Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson upplýsir á bloggi sínu á Pressunni að lögmannstofan Lex hafi kært hann til siðanefndar Lögmannafélags Íslands fyrir hótanir.

Stofnuðu leynifélag til að kaupa hlutabréf í FL Group
Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes Smárason ákváðu á leynifundi í október í fyrrahaust að stofna leynifélagið FS37 sem síðar varð Stím, og kaupa bréf í FL Group til að halda uppi gengi bréfanna sem höfðu hríðfallið. Glitnir fjármagnaði kaupin án nokkurra ábyrgða. Þetta kemur fram í fréttaskýringu Agnesar Bragadóttur í Morgunblaðinu í dag. Dylgjur og slúður segir Jón Ásgeir.

Glitnir lánaði Glitni til að kaupa bréf Glitnis í Glitni og FL Group
Gamli Glitnir átti þriðjung í félaginu Stím sem var búið til kringum fjárfestingar í bankanum sjálfum og FL-Group. Bréfin sem Stím keypti í Glitni og FL-Group keypti það að mestu leyti af Glitni sjálfum og fyrir lán sem það fékk frá Glitni.

Stím-málið: Telja að vitni hafi samið við ákæruvaldið
Kröfu Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, þess efnis að fá aðgang að gögnum sérstaks saksóknara og vitna í Stím-málinu svokallaða var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Ákærðir fyrir umboðssvik
Embætti sérstaks saksóknara hefur gefið út ákæru á hendur Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, Jóhannesi Baldurssyni, einn stjórnenda bankans, og Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, fyrrverandi forstjóra Saga Capital, fyrir umboðssvik.

Segir Stím ekkert leynifélag
Jakob Valgeir Flosason, stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins Stíms sendi frá sér yfirlýsingu í dag vegna umfjöllunar um félagið og hann. Hann segir félagið ekki leynifélag, og að afar frjálslega hafi verið farið með staðreyndir í umfjöllun um félagið og persónu sína.
Jakob Valgeir Flosason greiðir hæstu gjöldin á Vestfjörðum
Jakob Valgeir Flosason, útgerðarmaður í Bolungarvík, greiðir hæstu opinberu gjöldin í umdæmi skattstjóra Vestfjarðaumdæmis samkvæmt álagningarskrá sem birt var í morgun. Jakob Valgeir greiðir rúmar 34,4 milljónir króna en Sigurður Guðjónsson, Þingeyri greiðir tæpar 28,4 milljónir króna. Einar Guðmundsson, Bolungarvík, greiðir rúmar 24 milljónir króna.

Þrír ákærðir í Stím málinu
Embætti sérstaks saksóknara hefur gefið út ákæru á hendur Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, Jóhannesi Baldurssyni og Lárusi Welding.

Enginn kannst við leynifélagið Stím
Enginn kannast við hver sé á bak við leynifélagið Stím. Félagið fékk milljarðatugi að láni hjá Glitni. Hluthafar voru hafðir að fíflum, segir formaður fjárfesta.