Körfubolti

Bestu troðslurnar og bestu tilþrifin frá fyrsta mánuði NBA | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Courtney Lee skoraði magnaða körfu í nóvember.
Courtney Lee skoraði magnaða körfu í nóvember. Vísir/AFP
Fyrsti mánuður NBA-tímabilsins er nú að baki og það er að sjálfsögðu að nóg að taka þegar NBA-deildin tók saman tilþrifapakka frá mánuðinum. Körfuboltaáhugafólk fær því nóg af augnakonfekti hér fyrir neðan.

Við höfum séð "ný" félög stilla sér upp í toppsætum deildanna. Í Austurdeildinni eru það lið eins og Toronto Raptors og Washington Wizards en í Vesturdeildinni eru það Memphis Grizzlies og Golden State Warriors sem eru í efstu sætunum eftir fyrsta mánuðinn. Þetta lofar góður fyrir spennandi vetur og baráttu um efstu sætin inn í úrslitakeppnina.

Hér fyrir neðan má sjá bestu tilþrifin frá nóvembermánuði, flottustu troðslurnar, tíu bestu ökklabrjótanna, bestu flautukörfurnar og síðast en ekki síst myndband með mörgu því óvenjulega og fyndna sem gerðist í nóvember (og smá október) í NBA-deildinni í körfubolta.

Það er auðveldlega hægt að gleyma sér í heimi þessara ótrúlegu íþróttamanna og þakka fyrir að NBA-deildin sé svona dugleg að halda utan um flottustu myndbrotin úr leikjum deildarinnar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×