Fótbrotnaði í sínum fyrsta NBA-leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2014 07:45 Julius Randle í nótt. Vísir/AP
Það gengur fátt upp hjá Los Angeles Lakers þessi misserin og félagið varð fyrir enn einu áfallinu í nótt í tapi á móti Houston Rockets í fyrsta leik tímabilsins en vonarstjarna liðsins varð þá fyrir slæmum meiðslum í sínum fyrsta NBA-leik. Nýliðinn Julius Randle fótbrotnaði í fjórða leikhluta í 90-108 tapi fyrir Houston Rockets en Lakers valdi hann númer sjö í nýliðavalinu í sumar. Julius Randle er 19 ára gamall og braut sköflunginn í hægri fæti þegar hann lenti á tveimur leikmönnum Houston-liðsins undir körfu Lakers. Randle var valinn nýliði ársins í SEC-deildinni í bandaríska háskólaboltanum á síðustu leiktíð og fór fyrir skólaliði Kentucky-háskólans sem fór alla leið í úrslitaleikinn. Julius Randle var fluttur á sjúkrahús og eftir leikinn staðfesti þjálfarinn Byron Scott að Julius Randle væri fótbrotinn og þyrfti að fara í aðgerð. Lakers er því búið að missa leikstjórnandann Steve Nash og nýliðann Julius Randle á stuttum tíma og þetta verður því enn erfiðara fyrir Kobe Bryant og félaga sem þykja ekki líklegir til að komast í úrslitakeppnina næsta vor.Vísir/AP
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira