Körfubolti

NBA í nótt | Lillard skaut Portland áfram

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Robin Lopez fagnar Damian Lillard eftir sigurkörfu þess síðarnefnda gegn Houston í nótt.
Robin Lopez fagnar Damian Lillard eftir sigurkörfu þess síðarnefnda gegn Houston í nótt. Vísir/Getty
Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt.

Damian Lillard
var hetja Portland Trail Blazers þegar hann tryggði liðinu eins stigs sigur, 99-98, á Houston Rockets og um leið sigur í einvíginu, 4-2, með ótrúlegri þriggja stiga flautukörfu.

"Þetta var stærsta skot sem ég hef tekið á ferlinum - hingað til," sagði hetjan Lillard eftir leikinn í nótt, en hann skoraði alls 25 stig í leiknum. LaMarcus Aldridge var hins vegar stigahæstur í liði Portland með 30 stig og 13 fráköst. James Harden skoraði mest fyrir Houston, eða 34 stig, en Dwight Howard kom næstur með 26 stig og 11 fráköst.

Dallas Mavericks tryggði sér oddaleik í einvíginu gegn San Antonio Spurs með tveggja stiga sigri, 113-111, á útivelli. Monta Ellis átti afbragðs leik fyrir Dallas, en hann skoraði 29 stig, þar af tólf í fjórða leikhluta. Dirk Nowitzki kom næstur með 22 stig, en miklu munaði um framlag varamanna Dallas sem skoruðu alls 37 stig í leiknum. Tony Parker var atkvæðamestur í liði San Antonio með 22 stig og sex stoðsendingar.

Oddaleikurinn fer fram á sunnudaginn, en sigurvegarinn úr honum mætir Portland í undanúrslitum Vesturdeildarinnar.

Þá knúðu liðsmenn Brooklyn Nets fram oddaleik gegn Toronto Raptors eftir 97-83 sigur á heimavelli. Brooklyn tók leikinn strax í sínar hendur - staðan eftir fyrsta leikhluta var 34-19, Brooklyn í vil - og sigurinn var aldrei í hættu.

Deron Williams, sem hefur legið undir gagnrýni fyrir frammistöðu sína í einvíginu, skoraði 23 stig fyrir Brooklyn, en næstur kom Joe Johnson með 17. DeMar DeRozan var stigahæstur Kanada-liðsins með 28 stig, en aðeins tveir leikmenn liðsins skoruðu yfir tíu stig í leiknum.

Liðin mætast í oddaleik í Toronto á sunnudaginn, en sigurvegarinn úr einvíginu mætir meisturum Miami Heat í undanúrslitum.

Úrslitin í nótt (og staðan í einvíginu):

Portland Trail Blazers 99-98 Houston Rockets (4-2 fyrir Portland)

Dallas Mavericks 113-111 San Antonio Spurs (3-3)

Brooklyn Nets 97-83 Toronto Raptors (3-3)

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×