Skoðun

Fyrir börnin

Oddný G. Harðardóttir skrifar
Ríkisstjórninni nýju virðist vera mikið í mun að afturkalla ákvarðanir þeirrar fyrri. Byrjað var á að draga til baka hækkun á neysluskatti á hótelþjónustu og gefa útgerðinni afslátt á veiðigjaldi. Þegar ráðherrar ræða um niðurskurð á móti tekjutapinu eru helst nefndar ýmsar af síðustu ákvörðunum fyrri ríkisstjórnar.

Barnabætur

Eitt af forgangsmálunum í fjárlögum fyrir árið 2013 var að hækka barnabætur um 30%. Reiknireglu um tekjur og barnafjölda var breytt þannig að mun fleiri njóta bótanna en áður var. Allar greiningar á greiðsluvanda heimila hafa leitt í ljós að hann er mestur hjá barnafjölskyldum. Bæði barnafjölskyldum sem eru skuldugar vegna húsnæðiskaupa og einnig þeim sem hafa ekki keypt sér húsnæði. Besta leiðin til að mæta þessum vanda með almennum hætti er að hækka barnabæturnar. Þær þyrfti að hækka enn frekar á næstu árum. Það er því afar mikilvægt að barnabæturnar verði ekki skertar frá því sem nú er og sett verði í forgang að finna leiðir til að hækka þær á næstu árum.

Fæðingarorlof

Í síðustu fjárlögum voru einnig stigin skref til að hækka greiðslur í fæðingarorlofi og samþykkt áætlun um að lengja það í 12 mánuði í áföngum. Markmiðið er að tryggja barni samvistir við báða foreldra og gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Með lengingu fæðingarorlofs eru aðstæður barnafjölskyldna bættar. Skyldi þessum áætlunum verða breytt til að bæta upp tekjutap ríkissjóðs vegna veiðigjalda?

Tannlækningar barna

Ein af slæmum aukaverkunum þess þegar barnafjölskyldur ná ekki endum saman er að þær spara tannlækningar við fjölskylduna. Tímamótasamningur um fríar tannlækningar barna var eitt af síðustu verkum fyrri ríkisstjórnar. Þar fara saman bætt tannheilsa barna og bætt kjör heimila.

Það var forgangsmál ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur að bæta hag barna um leið og færi gafst. Í þá átt voru tekin ákveðin skref sem nýja ríkisstjórnin og hagræðingarhópur hennar skipta vonandi ekki út fyrir afslátt á veiðigjaldi og undanþágur fyrir erlenda ferðamenn.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×