Skoðun

Mikilvægum áfanga náð með samstöðu um lagningu sæstrengs

Hörður Arnarson skrifar

Ráðgjafahópur um lagningu sæstrengs til Evrópu hefur skilað tillögum sínum í skýrslu til iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Tillögur ráðgjafahópsins eru mikilvægur áfangi í þeirri vegferð sem Landsvirkjun hefur verið í að kanna möguleika og hagkvæmni þess að tengjast evrópskum orkumörkuðum með lagningu sæstrengs.



Það er sérstaklega ánægjulegt fyrir Landsvirkjun, sem hefur alla tíð lagt áherslu á nauðsyn breiðrar sáttar um svo stórt verkefni, hversu góð samstaða varð í ráðgjafahópnum og að enginn hafi skilað séráliti.



Rannsóknum verði haldið áfram

Í skýrslunni kemur fram að vísbendingar eru um að lagning sæstrengs milli Íslands og Bretlands geti reynst þjóðhagslega arðsöm að nokkrum skilyrðum uppfylltum, meðal annars ef tækist að semja við gagnaðila um hagstæð kjör á seldri orku með tiltölulega miklu öryggi og til nokkuð langs tíma.



Ráðgjafahópurinn var samhljóða í ályktun sinni að leggja til að haldið yrði áfram að kortleggja alla þætti verkefnisins um leið og leitað yrði svara um möguleg rekstrar- og eignarhaldsmódel hjá viðsemjendum í Bretlandi.



Einstakt viðskiptatækifæri

Landsvirkjun hefur unnið að því að meta sæstreng um nokkurt skeið og höfum við kynnt almenningi afrakstur þeirrar vinnu á árs- og haustfundum okkar. Tenging við evrópska raforkumarkaði eins og breskan markað getur verið einstakt tækifæri fyrir Íslendinga til að hámarka afraksturinn af orkuauðlindunum.



Við getum selt þá umframorku sem er alla jafna í kerfinu en iðnaður getur ekki nýtt, orkuöflunarmöguleikum getur fjölgað, sveigjanleiki vatnsaflsins yrði nýttur betur, áhættudreifing aukin og orkuöryggi Íslands betur tryggt með því að rjúfa einangrun raforkukerfisins. Fjölmörg ný og spennandi störf og tækifæri geta skapast. Verðmætasköpunin getur orðið umtalsverð.



Samkeppnishæf kjör á Íslandi

Fyrir utan breiða sátt um verkefnið hefur Landsvirkjun lagt áherslu á að tvennt komi til lagningar sæstrengs. Annars vegar að iðnfyrirtækjum verði áfram tryggð samkeppnishæf kjör á raforku þannig að þau geti áfram vaxið á Íslandi.



Hins vegar að raforkuverð til almennings hækki ekki óhóflega. Engar líkur eru til þess að raforkuverð til almennings margfaldist eins og stundum er haldið fram, enda er munur milli landa ekki margfaldur í dag. Norðmönnum hefur tekist vel til við að sætta sjónarmið hagsmunaaðila og nýta þau tækifæri sem felast í raforkusölu á evrópska markaði. Það er gert án þess að tilveru iðnaðar í Noregi sé ógnað.



Ákvörðun möguleg eftir nokkur ár

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra mun nú fara yfir tillögur hópsins og ákveða næstu skref en íslensk stjórnvöld þurfa að móta sér afstöðu til verkefnisins. Landsvirkjun hefur miðað við að niðurstöður frummats liggi fyrir í lok þessa árs og að þá getum við verið tilbúin að leggja til næsta skref af okkar hálfu, hvort ráðist verði í dýrar og umfangsmeiri rannsóknir á verkefninu.



Ákvörðun um að leggja sæstreng er síðan í fyrsta lagi möguleg eftir nokkur ár og er mikilvægt að um slíka ákvörðun náist sem breiðust sátt í samfélaginu.




Skoðun

Sjá meira


×