Erfiður fyrri hálfleikur í Búlgaríu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2013 16:56 Jakob Sigurðarson Mynd/Daníel
Íslenska körfuboltalandsliðið er sextán stigum undir á móti Búlgaríu, 28-44, í hálfleik í fyrsta leik íslenska liðsins í undankeppni EM 2015. Íslenska liðið er að hitta á slæman dag en verður helst að laga stöðuna í seinni hálfleik til að eiga möguleika á að komast upp úr riðlinum. Jakob Sigurðarson er stigahæstur í íslenska liðinu í fyrri hálfleik með 13 stig en þeir Jón Arnór Stefánsson og Logi Gunnarsson hafa báðir skorað fimm stig. Hlynur Bæringsson og Haukur Helgi Pálsson, lykilmenn liðsins, fengu báðir þrjár villur í fyrri hálfleiknum á sama tíma og þeir voru aðeins með tvö stig (Hlynur) og þrjú fráköst (Hlynur 2, Haukur 1). Það gerði fyrri hálfleikinn ennþá erfiðari fyrir íslenska liðið. Íslenska liðið náði að svara fyrsta spretti Búlgara sem komust í 7-2 og staðan var 10-10 eftir fimm og hálfa mínútu. Búlgarir skoruðu hinsvegar tíu næstu stig og voru að lokum 23-13 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Hinn öflugi Kaloyan Ivanov var þá kominn með 10 stig og Haukur Helgi Pálsson var kominn snemma með 3 villur. Búlgarir unnu líka fráköstin í leikhlutanum 17-6 á sama tíma og íslenska liðið hitti aðeins úr 28 prósent skotum sínum (5 af 18). Búlgarir gáfu ekkert eftir í öðrum leikhlutanum sem þeir unnu 21-15 og heimamenn voru því sextán stigum yfir í hálfeik, 44-28, eftir að hafa sett niður þrist rétt áður en leiktíminn rann út.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Þóttist vera með krabbamein með iPhone snúru upp í nefinu Sport Sveindísi var enginn greiði gerður Fótbolti Féllu á lyfjaprófi vegna gúmmíkurls í gervigrasinu Fótbolti Jón Dagur gagnrýnir sérfræðinga RÚV: „Regla að þú gast ekkert eða veist ekkert?“ Fótbolti Heitt undir Þorsteini: Þetta eru enn ein vonbrigðin núna Fótbolti Landsliðskonurnar neita að æfa Fótbolti Glódís barðist við tárin: „Eftirsjá og það er erfitt“ Fótbolti Aron ráðinn til FH Handbolti Finna stuðning hver hjá annarri: „Fólki má bara finnast það sem það vill“ Fótbolti Þarf að gefa frá sér sætið sitt á heimsleikunum í CrossFit Sport Fleiri fréttir KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Sjá meira