Eignir jukust um 462 milljónir 16. maí 2012 11:00 HS orka Félagið á meðal annars Reykjanesvirkjun.fréttablaðið/valli
Hækkun á heimsmarkaðsverði á áli varð til þess að eignir HS Orku jukust um 462 milljónir króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Ástæðan er sú að hluti orkusölusamninga HS Orku er bundinn við sveiflur í heimsmarkaðsverðinu. Það hefur lækkað mjög skarpt frá því að það reis sem hæst um mitt ár 2008 og sú lækkun kostaði HS Orku um 1,5 milljarða króna á árinu 2011. Á síðustu misserum hefur það hins vegar verið að hækka á ný. Tekjur félagsins námu 1.841 milljón króna á fyrsta ársfjórðungi. Hagnaður fyrir fjármagnsliði var 648,6 milljónir króna en alls tapaði félagið átta milljónum króna þegar búið var að greiða þá. Þar munaði mestu um gengistap upp á 718 milljónir króna, en hækkun á álverðsafleiðunni vann á móti því tapi. Jarðvarmi slhf., sem er í eigu fjórtán íslenskra lífeyrissjóða, jók við hlut sinn í HS Orku í febrúar með hlutafjáraukningu. Eftir hana jókst eignarhlutur Jarðvarma úr 25 prósentum í 33,4 prósent. Fyrir hið nýja hlutafé greiddi Jarðvarmi 4,7 milljarða króna. Til stendur að skrá HS Orku á markað sem fyrst. - þsj
Fréttir Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira