Ryan Anderson núna orðaður í skiptum fyrir Pau Gasol Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 2. desember 2012 22:45 Gasol og Kobe hafa náð frábærum árangri sem samherjar en nú gæti verið komið að endastöð
Þráðlátur orðrómur um að Los Angeles Lakers vilji skipta Pau Gasol neitar að deyja. Núna er kraftframherjinn og þriggja stiga skyttan Ryan Anderson leikmaður New Orleans Hornets orðaður við Lakers í stað Gasol. Pau Gasol hefur ekki fundið sig eftir að Mike D´Antoni tók við Lakers á dögunum en það þykir ekki henta Gasol að hlaupa eins mikið og D´Antoni vill að liðin sín geri. Því er talið að forráðamenn Lakers séu að reyna að finna rétta manninn eða mennina til að fá til liðsins í stað Spánverjans 32 ára gamla. Talið er að leitað sé að leikmanni sem getur teygt á vörn andstæðingsins en Gasol hefur ekki fengið að vinna mikið undir körfunni eftir að Dwight Howard kom til liðsins í sumar. Ryan Anderson er leikmaður sem getur skotið fyrir utan auk þess sem hann lék með Howard í ein þrjú keppnistímabil. Nafn hans hefur verið áberandi í umræðunni en talið er líklegt að forráðamenn Lakers vilji sjá hvernig Gasol tekst að leika með Steve Nash áður en gengið verið frá nokkrum skiptum. Nái Gasol sér ekki á strik er talið að Lakers reyni að senda hann til Hornets fyrir Anderson og mögulega fleiri leikmenn svo skiptin gangi upp launalega séð. Lakers hefur líka verið orðað við Amar´e Stoudemire frá New York en liðin hafa sagt að engar viðræður hafi farið fram um slík skipti en Stoudemire lék um árabil undir stjórn D´Antoni, bæði hjá Phoenix Suns og New York Knicks. Gasol á eitt tímabil umfram það sem nú er í gangi eftir af samningi sínum við Lakers en Anderson á þrjú ár eftir af sínum samningi. Anderson er aðeins 24 ára gamall en hann hefur hitt úr 42% þriggja stiga skota sína á tímabilinu. Hann hefur skorað 17,2 stig að meðaltali og tekið 8 fráköst að jafnaði í leik.
NBA Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Ein stærsta stjarna NFL fær að heyra það: Þú ert feitur Sport Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Staðfestir eina breytingu á byrjunarliðinu í leiknum á morgun Fótbolti Fleiri fréttir Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Sjá meira