Heimsfriðurinn mætti sem gestur hjá Conan O'Brien Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2012 23:45
Metta World Peace eða heimsfriðurinn eins og best er að kalla hann upp á íslenska tungu er búinn að gefa sitt fyrsta alvöru viðtal síðan að hann var dæmdur í sjö leikja bann fyrir að gefa James Harden, leikmanni Oklahoma City Thunder, vænt olnbogaskot. World Peace hét áður Ron Artest en breytti um nafn fyrir þetta tímabil. Hann hefur verið þekktur fyrir að koma sér í vandræði á sínum ferli og nafnabreytingin virtist ekki hafa nægjanlega góð áhrif. World Peace valdi það að fara í fyrsta viðtalið í kvöldþætti Conan O'Brien á TBS sem var sent út í gærkvöldi og það er hægt að sjá brot úr viðtalinu með því að smella hér fyrir ofan. World Peace sagði við Conan O'Brien að hann hafi ekki áttað sig að olnbogi hans hafi hitt höfuð Harden eða að það hafi verið Harden sem varð fyrir högginu, fyrr en hann kom inn í búningsklefa Lakers. Þá segist hann hafa gert sér grein fyrir því hversu illa þetta leit út. World Peace viðurkenndi ennfremur að hafa ekki talað við Harden eftir atvikið en það sé einungis vegna þess að liðin eiga væntanlega eftir að mætast í úrslitakeppninni. Hann hafi hinsvegar talað við fólk í kringum Harden og fengið að vita að það væri í lagi með hann.
NBA Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Fleiri fréttir Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Sjá meira