Kobe Bryant varð fyrstur til að brjóta 40 stiga múrinn í NBA-deildinni þegar Los Angeles Lakers vann 99-83 sigur á Phoenix Suns. Bryant, sem skoraði 48 stig í leiknum, hitti úr 12 af 13 vítum sínum og 18 af 31 skoti utan af velli. Pau Gasol var með 16 stig og 12 fráköst hjá Lakers en Channing Frye skoraði 17 stig fyrir Phoenix, Marcin Gortat var með 16 stig og 12 fráköst og Steve Nash skoraði 13 stig og gaf 8 stoðsendingar. Þetta var sjöundi heimasigur Lakers í röð og þriðja sigurinn í röð.
Dorell Wright skoraði 20 stig, tók 10 fráköst og hitti úr sex þriggja stigs skotum þegar Golden State Warriors vann 111-106 sigur á Miami Heat í framlengdum leik. Dwyane Wade kom aftur inn í lið Miami eftir meiðsli en það dugði ekki til. Lærisveinar Mark Jackson voru fyrir leikinn búnir að tapa fimm leikjum í röð. Dwyane Wade skoraði 34 stig og LeBron James var með 26 stig, 11 stoðsendingar og 7 fráköst.

Dirk Nowitzki skoraði 18 stig í auðveldum 100-86 sigri Dallas Marvericks á Detroit Pistons en með þessum sigri náði Dallas 50 prósent sigurhlutfalli.
Elton Brand var með 21 stig og 10 fráköst þegar Philadelphia 76ers vann 112-85 sigur á Sacramento en þetta var sjötti sigur liðsins í röð og sá sjöundi í níu leikjum tímabilsins. Philadelphia hefur ekki byrjað betur síðan að Allen Iverson hjálpaði liðinu að vinna tíu fyrstu leikina tímabilið 2000-01.
Russell Westbrook skoraði 30 stig og Kevin Durant var með 22 stig og 11 fráköst þegar Oklahoma City Thunder vann 100-95 sigur á Memphis Grizzlies en þetta var fjórði sigur Oklahoma City í röð. Marc Gasol var með 20 stig og 14 fráköst fyrir Memphis.
Stephen Jackson skoraði 34 stig og gaf 8 stoðsendingar þegar Milwaukee Bucks vann 106-103 sigur á San Antonio Spurs og endaði fimm leikja taphrinu. Tony Parker skoraði 22 stig fyrir Spurs sem hefur tapað öllum fjórum útileikjum sínum en unnið alla sex heimaleikina.

Philadelphia 76ers - Sacramento Kings 112-85
Washington Wizards - Toronto Raptors 93-78
Charlotte Bobcats - Houston Rockets 70-82
Detroit Pistons - Dallas Mavericks 86-100
Milwaukee Bucks - San Antonio Spurs 106-103
Memphis Grizzlies - Oklahoma City Thunder 95-100
Minnesota Timberwolves - Chicago Bulls 100-111
Utah Jazz - Cleveland Cavaliers 113-105
Portland Trail Blazers - Los Angeles Clippers 105-97
Los Angeles Lakers - Phoenix Suns 99-83
Golden State Warriors - Miami Heat 111-106 (framlenging)
Staðan í NBA-deildinni: yahoo.com eða nba.com.