NBA: Clippers vann grannaslaginn gegn Lakers - fjórir sendir í "sturtu" Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 17. janúar 2011 10:00 Það gekk ýmislegt á í leik Clippers og Lakers í gær. AP
Það var óvenju lítið um að vera í NBA deildinni í körfubolta í gær en grannaslagur LA Clippers og LA Lakers stóð upp úr. Clippers, sem ávallt hefur verið litla liðið í LA, batt enda á sjö leikja sigurhrinu meistaraliðs LA Lakers með 99-92 sigri í Staple Center. Eric Gordon skoraði 30 stig fyrir Clippers og Blake Griffin skoraði 18 og tók 15 fráköst fyrir Clippers. Það var heitt í kolunum og Baron Davis leikmaður Clippers var rekinn af leikvelli ásamt Lamar Odom úr Lakers fyrir slagsmál - en þrír aðrir leikmenn fengu einnig „kælingu" hjá dómurum leiksins. Upptökin á slagsmálunum átti Lamar Odom leikmaður Lakers en hann greip í keppnistreyjuna hjá Griffin þegar um 6 sekúndur voru eftir af leiknum. Baron Davis blandaði sér í þetta mál og ýtti við Odom. Griffin, Davis og að sjálfsögðu Ron Artest voru sendir af leikvelli af dómurum og gætu átt yfir höfði sér leikbann. Clippers hefur leikið vel gegn bestu liðum deildarinnar í vetur og náð sigrum gegn New Orleans Hornets og San Antonio Spurs. Tony Parker skoraði 30 stig fyrir San Antonio í 110-97 sigri gegn Denver Nuggets. Carmelo Anthony var slakur í liði Denver en hann er sagður á förum frá liðinu á allra næstu dögum í risastórum leikmannaskiptum og líklega endar hann í New Jersey Nets.
NBA Mest lesið KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Íslenski boltinn Ungur samherji Elíasar særðist alvarlega í hnífsstungurárás Fótbolti Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ Enski boltinn Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Enski boltinn Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Enski boltinn Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Enski boltinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Fótbolti Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Enski boltinn Strákarnir hans Sigga Ragga með fjögurra stiga forskot á toppnum Fótbolti Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn Fleiri fréttir Selfyssingar svöruðu fyrir sig Uppgjörið: Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Of mikil pása gæti verið slæm „Vildi að pabbi væri hérna“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ „Ætluðum okkur lengra en stoltur af liðinu“ „Ótrúlegar 50 mínútur af körfubolta“ Uppgjörið: KR-Stjarnan 115-118 | Stjarnan vann án Ægis og eftir tvær framlengingar Sjá meira