Shaq sektaður um fjórar milljónir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2010 14:15 Shaquille O’Neal leikmaður Boston Celtics. Mynd/AP
Shaquille O'Neal leikmaður Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta, fékk væna sekt fyrir að drulla yfir dómara á dögunum. Hann var þá mjög ósáttur þegar hann fékk sína sjöttu villu í glímu sinni við Dwight Howard, miðherja Orlando Magic, í leik liðanna um helgina. Dwight Howard féll þá í jörðina við litla snertingu eftir að þeir félagar hlupu saman upp völlinn. Shaquille O'Neal náði aðeins að spila í 12 mínútur og 39 sekúndur í leiknum og var bara með 2 stig og 1 frákast á þeim tíma. Howard gekk reyndar ekki mikið betur en fékk að spila talsvert meira en gamli karlinn sem var í villuvandræðum allan leikinn. „Ég velti því fyrir mér af hverju ég hef aldrei fengið svona villu á mótherja mína á mínum 20 árum í deildinni. Dómarar eiga ekki að velja sér á hverja þeir dæma og á hverja þeir dæma ekki. Svona hlutir gerast bara af því að það eru menn að dæma sem vilja stjórna öllu," lét Shaquille hafa eftir sér eftir umræddan leik á móti Orlando. NBA-deildin sektaði Shaquille O'Neal um 35 þúsund dollara eða um fjórar milljónir íslenskra króna.
NBA Mest lesið Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Golf Fyrsti Ítalinn í fjörutíu ár til að vinna opna ítalska Sport Fleiri fréttir „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Tap í fyrsta leik Alba Berlin Daníel tekur við KR Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Friðrik Ingi hættur með Hauka Hörður kominn undan feldinum Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Úlfarnir í úrslit vestursins Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð „Menn vissu bara upp á sig sökina“ „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Lovísa samskiptastjóri, „mini-mes“ og ástæðan fyrir engum leikhléum Vonast til að Giannis standist freistinguna og klári ferilinn hjá Milwaukee Stólarnir klárir og vita hvað fór úrskeiðis í leik tvö: „Við misstum hausinn“ „Einhvers staðar er skemmt epli ef niðurstaða þingsins var svona afdráttarlaus“ Aftur í Síkið: „Held að menn séu búnir að grafa þetta“ Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Sjá meira