NBA í nótt: Deng með 40 stig í sigurleik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. nóvember 2010 08:55 Luol Deng og Taj Gibson. Mynd/AP
Luol Deng skoraði 40 stig er Chicago Bulls vann Portland, 110-98, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Það er persónulegt met hjá Deng. Sigur Chicago var öruggur en liði náði ellefu stiga forystu í fyrri hálfleik. Portland náði aldrei að koma sér almennilega inn í leikinn í síðari hálfleik en munurinn á milli liðanna var aldrei minni en sjö stig. Þetta var aðeins fyrsta tap Portland á tímabilinu en liðið hafði unnið fyrstu þrjá leiki sína í haust. Derrick Rose var með sextán stig og þrettán stoðsendingar og Taj Gibson tólf stig fyrir Chicago. Hjá Portland var LaMarcus Aldridge stigahæstur með 33 stig auk þess sem hann tók níu fráköst. Brandon Roy var með sautján stig. Sacramento vann Toronto, 111-108, eftir að hafa verið sextán stigum undir í þriðja leikhluta. Tyreke Evans með 23 stig og DeMarcus Cousins sextán en hann fór mikinn í fjórða leikhluta. Andrea Bargnani var með 28 stig fyrir Toronto sem hefur aðeins unnið átta af síðustu 53 leikjum sínum á Vesturströnd Bandaríkjanna. San Antonio vann LA Clippers, 97-88. Tony Parker var með nítján stig og níu stoððsendingar en þetta var sautjándi sigur San Antonio á Clippers í röð.
NBA Mest lesið Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Körfubolti Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Golf Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Fleiri fréttir „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Tap í fyrsta leik Alba Berlin Daníel tekur við KR Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Friðrik Ingi hættur með Hauka Hörður kominn undan feldinum Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Úlfarnir í úrslit vestursins Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð „Menn vissu bara upp á sig sökina“ „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Lovísa samskiptastjóri, „mini-mes“ og ástæðan fyrir engum leikhléum Vonast til að Giannis standist freistinguna og klári ferilinn hjá Milwaukee Stólarnir klárir og vita hvað fór úrskeiðis í leik tvö: „Við misstum hausinn“ „Einhvers staðar er skemmt epli ef niðurstaða þingsins var svona afdráttarlaus“ Aftur í Síkið: „Held að menn séu búnir að grafa þetta“ Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Sjá meira