NBA: San Antonio og Chicago aftur á sigurbraut Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. desember 2010 09:00 Tony Parker með þjálfara sínu Gregg Popovich. Mynd/AP
San Antonio Spurs og Chicago Bulls unnu bæði sína leiki í NBA-deildinni í körfubolta í nótt eftir að sigurgöngur liðanna enduðu í leiknum á undan. Spurs vann Washington Wizards en Chicago vann nágrannana í Detroit í framlengingu.Tony Parker var með 20 stig og 14 stoðsendingar þegar San Antonio Spurs vann 94-80 sigur á Washington Wizards en ellefu leikja sigurganga liðsins endaði á móti Orlando í leiknum á undan. Manu Ginobili skoraði ennfremur 21 stig fyrir Spurs en stigahæstur hjá Washington var Rashard Lewis með 21 stig. Wizards-liðið var án þeirra Andray Blatche og JaVale McGee sem tóku út eins leiks agabann fyrir að slást fyrir utan skemmtistað á Þorláksmessu.Carlos Boozer var með 31 stig og 11 fráköst þegar Chicago Bulls vann 95-92 útisigur á Detroit Pistons eftir framlendan leik. Derrick Rose var með 23 stig, 12 fráköst og 8 stoðsendingar fyrir Chiacago sem hafði tapað fyrir New York daginn áður. Tayshaun Prince skoraði 17 stig fyrir Detroit-liðið en það var Charlie Villanueva sem kom leiknum í framlengingu með því að jafna 0.6 sekúndum fyrir leikslok eftir þriðja sóknarfrákast liðsins í lokasókninni. Blake Griffin.Mynd/AP Nýliðinn Blake Griffin átti enn einn stórleikinn þegar lið hans Los Angeles Clippers vann 108-103 sigur á Phoenix Suns. Griffin náði sinni átjándu tvennu í röð með því að skora 28 stig og taka 12 fráköst. Eric Gordon var með 24 stig fyrir Clippers og Baron Davis bætti við 15 stigum og 9 stoðsendingum. Mickael Pietrus skoraði 25 stig fyrir Phoenix og Steve Nash var með 21 stig og 15 stoðsendingar.Jrue Holiday skoraði 22 stig og Thaddeus Young var með 20 stig þegar Philadelphia 76ers kom til baka í fjórða leikhluta og vsnn 95-89 útisigur á Denver Nuggets. Elton Brand var með 16 stig og 17 fráköst hjá Philadelphia en Chauncey Billups skoraði 24 stig fyrir Denver sem lék sinn þriðja leik án Carmelo Anthony eftir að hann missti systur sína.Michael Beasley tryggði Minnesota Timberwolves 98-97 sigur á Cleveland Cavaliers með því að skora sigurkörfuna 5,9 sekúndum fyrir leikslok. Minnesota var búið að tapa sjö leikjum í röð fyrir leikinn. Luke Ridnour skoraði 23 stig fyrir Minnesota og Kevin Love náði 26. tvennu sinni á tímabilinu með því að skora 16 stig og taka 18 fráköst. Antawn Jamison skoraði 24 stig fyrir Cleveland-liðið sem hefur tapað 13 af síðustu 14 leikjum sínum. Chris Paul.Mynd/AP Chris Paul var með 22 stig og 8 stoðsendingar þegar New Orleans Hornets vann 93-86 sigur á Atlanta Hawks. David West bætti við 18 stigum, Emeka Okafor var með 14 stig og 15 fráköst og Trevor Ariza skoraði 12 stig og tók 10 fráköst. Joe Johnson skoraði mest fyrir Atlanta eða 23 stig.Rudy Gay var með 30 stig þegar Memphis Grizzlies endaði þriggja leikja taphrinu sína með 104-90 útisigri á Indiana Pacers. Zach Randolph var með 18 stig og 16 fráköst í leiknum og þeir O.J. Mayo og Marc Gasol skoruðu báðir 17 stig. Danny Granger var stigahæstur hjá Indiana með 29 stig. Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt:Michael Beasley.Mynd/APLos Angeles Clippers-Phoenix Suns 108-103 Cleveland Cavaliers-Minnesota Timberwolves 97-98 Detroit Pistons-Chicago Bulls 92-95 (framlengt) Indiana Pacers-Memphis Grizzlies 90-104 New Orleans Hornets-Atlanta Hawks 93-86 San Antonio Spurs-Washington Wizards 94-80 Denver Nuggets-Philadelphia 76ers 89-95
NBA Mest lesið Kossar kærastans ástæðan fyrir því hún féll á lyfjaprófi Sport „Langaði virkilega að fara að gráta þegar ég kom inn í klefa“ Fótbolti Óli Jóh skellihló að viðtali Heimis Íslenski boltinn KA fékk færri athugasemdir en Crystal Palace Íslenski boltinn Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Handbolti Þurfa stelpurnar okkar bara að finna sér nýjan Sigurwin? Fótbolti Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Enski boltinn Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Körfubolti Fullt af Betum upp í stúku á EM í gær Fótbolti Sá óheppnasti enn á ný óheppinn Sport Fleiri fréttir Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum Sjá meira