NBA í nótt: Lakers enn ósigrað Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. nóvember 2010 09:00 Pau Gasol var góður í nótt. Mynd/AP
LA LAkers er enn ósigrað í NBA-deildinni í körfubolta eftir sigur á Portland í nótt, 121-96. Pau Gasol var með þrefalda tvennu í leiknum og er það í fjórða sinn á ferlinum sem hann nær því. Hann var með 20 stig, fjórtán fráköst og tíu stoðsendingar. Lamar Odom bætti við 21 stigi og tólf fráköstum fyrir Lakers sem hefur unnið alla sjö leiki sína í deildinni til þessa. Lakers og New Orleans eru einu liðin í deildinni sem eru ósigruð til þessa. Skotnýting Lakers utan af velli var 54,9 prósent og skoruðu sjö leikmenn liðsins minnst tíu stig í leiknum, þar af allir fimm byrjunarliðsmennirnir. Andre Miller var með 20 stig fyrir Portland og Nicolas Batum sautján.. Þetta er þriðja besta byrjun í sögu Lakers sem var með forystuna allan leikinn í nótt.Boston vann Oklahoma City, 92-83. Þetta var fimmti sigur Boston í röð en Ray Allen var með nítján stig, Paul Pierce sautján og Rajon Rondo með tíu stig og tíu stoðsendingar. Kevin Durant var með 34 stig fyrir Oklahoma City en það dugði ekki til.Phoenix vann Atlanta, 118-114. Þetta var fyrsta tap Atlanta á leiktíðinni. Jason Richardson var með 21 stig og Steve Nash nítján fyrir Phoenix.Detroit vann Golden State, 102-97. Rodney Stuckey var með 21 stig og níu stoðsendingar fyrir Detroit.Houston vann Minnesota, 120-94, og þar með sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Luis Scola var með 24 stig og Kevin Martin 21 fyrir Houston. Yao Ming var með þrettán stig og fjögur fráköst á þeim sextán mínútum sem hann spilaði.Philadelphia vann New York, 106-96. Elton Brand skoraði 20 stig fyrir Philadelphia og þeir Lou Williams og Jrue Holiday voru með nítján hvor.
NBA Mest lesið Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Körfubolti „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Golf Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Fleiri fréttir „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Tap í fyrsta leik Alba Berlin Daníel tekur við KR Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Friðrik Ingi hættur með Hauka Hörður kominn undan feldinum Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Úlfarnir í úrslit vestursins Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð „Menn vissu bara upp á sig sökina“ „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Lovísa samskiptastjóri, „mini-mes“ og ástæðan fyrir engum leikhléum Vonast til að Giannis standist freistinguna og klári ferilinn hjá Milwaukee Stólarnir klárir og vita hvað fór úrskeiðis í leik tvö: „Við misstum hausinn“ „Einhvers staðar er skemmt epli ef niðurstaða þingsins var svona afdráttarlaus“ Aftur í Síkið: „Held að menn séu búnir að grafa þetta“ Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Sjá meira