Innlent

Tengdir fasteignum, fiski og fjármálum

Flest hlutafélög sem alþingismenn tengjast beint starfa í fasteignaviðskiptum, fjármálaþjónustu eða fiskeldi og fiskveiðum samkvæmt svokallaðri ÍSAT-skráningu. Þetta kemur fram í skýrslu sem Creditinfo gerði fyrir Fréttablaðið um þátttöku þingmanna í atvinnulífinu og vitnað var til í blaðinu í gær.

Samkvæmt hlutafélagaskrá tengjast alþingismenn nú 55 félögum sem stjórnarmenn, prókúruhafar eða slíkt. Í árslok 2007 tengdust hins vegar fimmtán þingmenn félögum með eignarhaldi samkvæmt upplýsingum sem Creditinfo vann upp úr ársreikningaskrá.

Af félögunum 55 sem alþingismenn tengjast starfa ellefu á sviði fasteignaviðskipta, tíu í fjármálaþjónustu annarri en starfsemi tryggingarfélaga og lífeyrissjóða og níu félög starfa í fiskeldi og fiskveiðum. Á eftir þessum tegundum félaga koma sjö fyrirtæki í fræðslustarfsemi og fimm í heildverslun.

Persónuvernd hefur neitað Creditinfo um leyfi til að miðla persónugreinanlegum upplýsingum sem fá má úr ársreikningaskrá. Af þeim ástæðum hefur Fréttablaðið nú óskað eftir því við þá flokka sem nú eiga fulltrúa á Alþingi að gera grein fyrir tengslum sinna þingmanna við atvinnulífið. Hjá sumum flokkanna eru talsverðar upplýsingar um þessi atriði á heimasíðum flokkanna. Þetta á við um Vinstri græna og Framsóknarflokkinn sem vísa á heimasíður sínar.

Í svari frá Vinstri grænum kemur fram að skýrsla Creditinfo hafi verið unnin upp úr úreltum gögnum og þingmenn flokksins þannig sagðir tengjast fleiri félögum en efni standa til.

„Hið rétta er að Álfheiður Ingadóttir er varamaður í stjórn Plássins ehf. og Árni Þór Sigurðsson er stjórnarmaður Sjóminjasafnins í Reykjavík þar sem hann gegnir stöðu varaformanns. Sjóminjasafnið er sjálfseignarstofnun. Enginn annar þingmaður gegnir störfum í stjórnum fyrirtækja," segir í svari VG þar sem því er bætt við til nánari skýringar að Atli Gíslaon sé ekki lengur endurskoðandi Friðriks A. Jónssonar ehf. og sitji ekki lengur í stjórn Friðarhúss hf. Einnig að Álfheiður Ingadóttir sé ekki lengur varamaður í stjórn Sjóminjasafnsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×