Innlent

Þjóðhættulegir betra orð en fífl

Valur Grettisson skrifar
Árni Páll stendur við ummælin; bætir við að Þjóðhættulegir sé kannski betra orð en fífl.
Árni Páll stendur við ummælin; bætir við að Þjóðhættulegir sé kannski betra orð en fífl.

Ég fékk spurningu um það afhverju lönd innan Evrópusambandsins væru í vandræðum og þá var bent á Lettland og Írland í því samhengi. Ég svaraði því bara þannig að ESB tekur ekki af okkur valdið til þess að kjósa fífl yfir okkur," sagði þingmaður Samfylkingarinnar, Árni Páll Árnason, sem uppskar gagnrýni á framboðsfundi flokkanna í Suðvesturkjördæmi í gær fyrir ummæli sín.

Fundurinn var haldinn í Fjölbrautaskóla Garðabæjar og heppnaðist mjög vel að sögn fundargesta.

Ummæli Árna Páls féllu í grýttan jarðveg og var hann gagnrýndur fyrir, meðal annars sagði Siv Friðleifsdóttir, þingkona Framsóknar á fundinum, að ummælin gæfu villandi mynd af stjórnmálum.

Árni Páll segist standa við ummælin. Hann segir að hagstjórn ríkisstjórnarinnar frá 2004 til 2007 hafi beinlínis verið þjóðhættuleg. Þá bendir hann á hækkun húsnæðislána sem sprengdu fasteignamarkaðinn, svo skattalækkanir sem hann vill meina að hafi aukið verðbólgu.

Hann segir að mörg teikn hafi verið á lofti, flokkar Sjálfstæðismanna og Framsóknar hafi ekki brugðist við þeim. Afleiðingin sé efnahagslegt hrun.

„Var þetta fíflalegt hjá þeim eða ekki? Þetta var í það minnsta óskynsamlegt," segir Árni Páll um efnahagsstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar. Hann bætir við að kannski sé þjóðhættulegt betra orð en fífl.






Tengdar fréttir

Árni Páll kallaði andstæðinga sína fífl

Þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og oddviti listans, Árni Páll Árnason, kallaði pólitíska andstæðinga sína fífl á fjölmennum og vel heppnuðum framboðsfundi sem haldinn var í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×