Innlent

Stefnt að því að rjúfa þing í dag eða á morgun

Heimir Már Pétursson skrifar

Stjórnarskipunarfrumvarpið var kallað inn í nefnd á Alþingi í nótt þótt annarri umræðu um málið væri ekki lokið, til að freista þess að ná samkomulagi við Sjálfstæðisflokinn um afgreiðslu málsins. Átján mál eru á málaskrá þingsins í dag, sem forseti Alþingis vonast til að hægt verði að afgreiða sem lög áður en dagurinn er liðinn.

Fundir stóðu yfir á Alþingi til klukkan rúmlega tvö í nótt þar sem rætt var um stjórnlagafrumvarpið. Sjálfstæðismenn héldu áfram ræðuhöldum þrátt fyrir að Framsóknarmenn hefðu fallið frá ákvæði um stjórnlagaþing, en Sjálfstæðismenn hafa helst gagnrýnt þann hluta frumvarpsins. Lúðvík Bergvinsson varaformaður sérnefndar um stjórnarskrármálið kallaði málið til nefndar þótt umræðu væri ekki lokið. Guðbjartur Hannesson forseti Alþingis segist reikna með að það hafi Lúðvík gert vegna þess að hann teldi einhvern möguleika á samkomulagi um afgreiðslu málsins.

Þingmenn, að mestu Sjálfstæðisþingmenn, hafa rætt stjórnlagafrumvarpið í um 45 klukkustundir og að auki hafa verið gerðar um sex hundruð athugasemdir í umræðunni sem tekið hafa um 14 klukkustundir. Á dagskrá Alþingis í dag að loknum umræðum um störf þingsins, eru átján lagafrumvörp, þar af átta í þriðju umræðu en hin eru öll í annarri umræðu fyrir utan frumvarp um veitingu ríkisborgararéttar sem enn er í fyrstu umræðu.

Forseti Alþingis vonast til að hægt verði að afgreiða öll þessi frumvörp sem lög frá Alþingi í dag eða í kvöld, þannig að jafnvel verði hægt að rjúfa þing í dag, eða í síðasta lagi um hádegi á morgun. Það veltur þó á hvað kemur út úr nefndarstörfum varðandi stjórnlagafrumvarpið. En í gær leit út fyrir að Sjálfstæðismenn vildu einnig fella út úr stjórnlagafrumvarpinu ákvæði um þjóðareign á auðlindum og ákvæði um möguleika almennings til að kalla fram þjóðaratkvæðagreiðslu um mál.

Þetta kemur væntanlega í ljós um hádegisbilið, þegar forseti fundar með formönnum þingflokka og niðurstaða hefur fengist í nefndarstörfum.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×