Innlent

Sérkennilegt að Kolbrún sé leiðrétt af Vinstri grænum

Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands.
Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands.
Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, segir sérkennilegt að Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra sé leiðrétt af samflokksmönnum sínum og talin svíkja grænar áherslur með því að lýsa yfir efasemdum og andstöðu við tilraunaboranir eftir olíu á Drekasvæðinu. Þetta kemur fram í bréfi sem Árni sendi Vinstrihreyfingunni grænu framboði í morgun.

Vinstri grænir segjast ekki vera á móti olíuleit á Drekasvæðinu þrátt fyrir að umhverfisráðherra flokksins hafi lýst því afdráttarlaust yfir í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Kolbrún sagði olíuvinnslu vera í andstöðu við hugmyndafræði Vinstri grænna um sjálfbæra þróun, sjálfbæra orkustefnu og sjálfbæra atvinnustefnu. Skömmu síðar barst yfirlýsing frá Vinstri grænum sem sagði að flokkurinn leggist ekki gegn olíuleit á Drekasvæðinu.

Árni segir Kolbrúnu hafa bent á að olía væri ekki eldsneyti framtíðarinnar þar sem olía losi við bruna gríðarlegt magn gróðurhúsalofttegunda.

Ný ríkisstjórn verður að setja sjálfbæra þróun í forgang, að mati Árna. Það sé vissulega ekki efst á forgangslista kjósenda um þessar mundir. „Og sumir stjórnmálaflokkar vilja rányrkja bæði náttúru lands og sjávar til að skapa fleiri störf tímabundið."

Þá segir Árni að þrátt fyrir að umhverfismál hafi tæpast verið til umræðu í kosningabaráttunni bendi allt til að Vinstri grænir vinni stórsigur á kjördag.

En um leið og umhverfismál beri á góma í kosningabaráttunni og umhverfisráðherra standi í lappirnar gefi forysta flokksins frá sér yfirlýsingu og segi að ummæli ráðherrans standist ekki, segir Árni.


Tengdar fréttir

Á móti olíuvinnslu á Drekasvæðinu

Vinstri grænir leggjast gegn olíuleit á Drekasvæðinu. Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra kallar Drekaútboðið óðagotsaðgerð, - olíuvinnsla samrýmist hvorki stefnu um sjálfbæra nýtingu orkulinda né skuldbindingum Íslands á alþjóðavettvangi.

Vill skoða olíumálið í samhengi við heildarstefnumótun í atvinnu- og orkumálum

„Sem umhverfisráðherra hlýt ég í afstöðu minni að taka mið af skuldbindingum Íslands á alþjóðavettvangi í umhverfismálum, sem byggja á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar," segir Kolbrún Halldórsdóttir í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér síðla kvölds vegna umfjöllunar um afstöðu hennar til olíuleitar á Drekasvæðinu.

VG ekki á móti olíuleit á Drekasvæðinu

„Vinstrihreyfingin - grænt framboð áréttar að flokkurinn hefur ekki lagst gegn olíuleit á Drekasvæðinu," segir í tilkynningu sem flokkurinn sendi frá sér fyrir stundu vegna fréttar á Stöð 2. Í tilkynningu segir að þingmenn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×