Innlent

Röskva kallar eftir viðbrögðum ríkisstjórnarinnar

Stúdentar fóru í setuverkfall fyrr í apríl til að knýja á um lausn sinna mála. Mynd/ Anton Brink.
Stúdentar fóru í setuverkfall fyrr í apríl til að knýja á um lausn sinna mála. Mynd/ Anton Brink.
„Stúdentum við Háskóla Íslands virðist hrunið rétt að hefjast. Þúsundir þeirra sjá fram á atvinnu - og jafnvel tekjuleysi í sumar en ríkisstjórnin er tvístígandi og frestar í sífellu ákvörðun. Örvænting grípur um sig meðal stúdenta sem margir hverjir hafa fjölskyldur á sínu framfæri og afborganir og skuldabyrði á bakinu líkt og aðrir samfélagsþegnar," segir Bergþóra Snæbjörnsdóttir, oddviti Röskvu, í yfirlýsingu sem hún sendi fjölmiðlum í morgun. Bergþóra spyr sig að því endurreisn hverrja sé hafin þegar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segi að endurreisn íslensks samfélags sé hafin.

„Þrátt fyrir að í landinu sé nú yfirlýst velferðar- og jafnaðarstjórn hefur mismunun meðal stúdenta jafnvel aldrei verið meiri. Einkareknu skólarnir hafa allir brugðist við og munu bjóða upp á nám í sumar. Í raun stendur ríkið straum af kostnaðinum sem hlýst af sumarönnunum þrátt fyrir að þessir skólar eigi að heita einkareknir: forsenda þess að þeir geti tekið sjálfstæða ákvörðun um sumarannir er nefnilega skólagjöldin - skólagjöldin sem hinn ríkisrekni Lánasjóður íslenskra námsmanna lánar stúdentum fyrir," segir Bergþóra. Hún bendir á að á sama tíma sjái ríkið sér ekki fært að greiða framfærslulán til stúdenta í þjóðarháskólanum, Háskóla Íslands, sem sé háður beinum fjárframlögum frá ríkinu. Þeir stúdentar séu því upp á náð og miskunn félagsþjónustunnar komnir.

„Er það virkilega stefna ríkisstjórnarinnar að dýpka enn gjána í íslensku samfélagi? Er það virkilega stefna ríkisstjórnarinnar að auka misskiptingu? Er það virkilega stefna ríkissstjórnarinnar að einkavæða menntakerfið hægt og bítandi með því að sjá til þess að einkareknu skólarnir njóti ávallt forréttinda umfram og á kostnað ríkisskólanna?" spyr Bergþóra.

Hún segir að sé þetta ekki stefna ríkisstjórnarinnar verði hún að bregðast hratt við og leiðrétta þetta misrétti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×