Innlent

Ríkisstjórnin með meirihluta

Útlit er fyrir öruggan sigur vinstri flokkanna samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Það stefnir í að Sjálfstæðisflokkurinn fái verstu útkomu frá stofnun, en 21,9 prósent segjast myndu kjósa flokkinn nú. Samkvæmt því fengi flokkurinn fimmtán þingmenn, tíu færri en hann hefur nú. Mikill kynjamunur er á stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn, 25,8 prósent meðal karla en 16,6 prósent meðal kvenna. Sjálfstæðisflokkurinn mælist oft með hærra fylgi í könnunum, miðað við úrslit kosninga, en þar sem óvenjustór hluti fyrrverandi sjálfstæðismanna segist í könnunum ekki ætla að kjósa, eða skila auðu, gæti orðið breyting þar á.

Samfylkingin yrði samkvæmt þessari könnun stærsti flokkurinn á Alþingi með 21 þingmann en 31,8 prósent segjast myndu kjósa flokkinn. Bætir flokkurinn við sig þremur mönnum frá síðustu kosningum þegar hann fékk átján þingmenn kjörna.

Vinstri græn bæta mestu við sig frá síðustu kosningum. 24,1 prósent styður flokkinn nú og myndi hann samkvæmt því fá 16 þingmenn og bæta við sig sjö frá núverandi þingmönnum. Vinstri græn hafa mun meiri stuðning meðal kvenna en karla. Flokkurinn hefur 20,2 prósent meðal karla, en 29,3 prósent meðal kvenna.

Framsóknarflokkurinn myndi halda sínum sjö þingmönnum, en 11,3 prósent segjast myndu kjósa flokkinn nú. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins úr Reykjavík norður nær Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, kjöri.

Borgarahreyfingin fengi fjóra menn kjörna, samkvæmt könnuninni en fylgi hreyfingarinnar er nú 7,1 prósent. Flokkurinn hefur mest fylgi á höfuðborgarsvæðinu og því líklegast að þingmenn flokksins komi þaðan.

Hvorki Frjálslyndi flokkurinn né Lýðræðishreyfingin myndu ná manni á þing. 2,6 prósent styðja Frjálslynda flokkinn nú, en 1,2 prósent segjast myndu kjósa Lýðræðishreyfinguna.

Könnunin var gerð 20.-22. apríl og hringt var í 3.600 manns. -ss/ sjá síður 4 og 6












Tengdar fréttir

Formenn bjartsýnir fyrir kosningarnar

Formenn framboðanna til Alþingis eru allir bjartsýnir á gott gengi í komandi kosningum þrátt fyrir mismunandi útkomu í könnun Fréttablaðsins á fylgi flokkanna á landsvísu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×