Innlent

Vilja 25 manna nefnd til að fjalla um heildarendurskoðun stjórnarskrár

Enn hefur stjórnarskrármálið ekki verið afgreitt frá Alþingi. Mynd/ Pjetur.
Enn hefur stjórnarskrármálið ekki verið afgreitt frá Alþingi. Mynd/ Pjetur.
Sjálfstæðismenn vilja að Alþingi kjósi hlutfallskosningu 25 manna nefnd til að undirbúa tillögur að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Gert er ráð fyrir að tillögur þeirrar nefndar liggi fyrir innan tveggja ára. Sjálfstæðismenn kynntu hugmynd að þingsályktunartillögu þessa efnis á fundi sérnefndarinnar í dag. Telja sjálfstæðismenn að með þeim hætti sé unnt að standa á vandaðan hátt að þessu mikilvæga verkefni og leggja um leið áherslu að að það ferli verði opið og lýðræðislegt.

Þá kynntu sjálfstæðismenn tvær hugmyndir um breytingar að stjórnskipunarfrumvarpi sem nú liggur fyrir þinginu til að skapa forsendur fyrir samkomulagi. Annars vegar er um að ræða orðalagsbreytingu á 1. grein frumvarpsins þannig að ekki verði notað hugtakið þjóðareign, sem þeim þykir óljóst og líklegt til að valda túlkunarvanda. Leggja sjálfstæðismenn til að í staðinn komi ákvæði um að íslenska ríkið fari með forsjá, vörslu og ráðstöfunarrétt þeirra náttúruauðlinda sem ekki eru í einkaeign og hafi eftirlit með nýtingu þeirra eftir því sem nánar er ákveðið í lögum. Slíkar auðlindir megi hvorki selja né láta varanlega af hendi.

Hins vegar er um að ræða breytingu á 79. grein stjórnarskrárinnar, en þar er fjallað um aðferðina við að breyta stjórnarskrá. Segja sjálfstæðismenn að sú tillaga sem þeir kynntu í nefndinni sem umræðugrundvöll sé orðrétt sú tillaga, sem stjórnarskrárnefnd skipuð fulltrúum allra flokka skilaði af sér í febrúar 2007.

Sérnefnd um stjórnarskrárbreytingar fundaði um málið í dag. Frumvarpið er enn til annarrar umræðu í þinginu en var kallað til nefndar í fyrrinótt án þess að umræðu væri lokið. Sérnefndin lauk umfjöllun um málið í dag án niðurstöðu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×