Spurningum um Shaq verður svarað í kvöld 6. febrúar 2008 17:30
Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Miami er sagður vera á leið til Phoenix í læknisskoðun í kvöld og þar ræðst væntanlega hvort verður af félagaskiptum hans og Shawn Marion sem greint var frá í nótt. Sagt er að samkomulag liggi fyrir milli félaganna og aðeins eigi eftir að koma O´Neal í gegn um læknisskoðun. Hann hefur átt við þrálát meiðsli að stríða í vetur og því kemur skoðunin til með að ráða því hvort af þessum óvæntu viðskiptum verður. Svo skemmtilega vill til að leikur Phoenix og New Orleans er einmitt sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld og þar fást væntanlega svör við öllum þessum vangaveltum í beinni útsendingu klukkan tvö eftir miðnætti. Mikið hefur verið rætt og ritað um þessa stórfrétt í NBA deildinni síðan hún lak út í gærkvöldi, en sérfræðingar í Bandaríkjunum eru flestir agndofa yfir þessum tíðindum. Shaquille O´Neal hefur alls ekki spilað vel í vetur og hefur þar að auki átt við mikil og erfið meiðsli að stríða. Hann verður 36 ára í vor og á eftir tvö ár af risasamningi sínum þegar þessu tímabili lýkur. Menn spyrja sig hvernig í ósköpunum svona stór og hægur maður eigi að passa inn í hraðan leikstíl Phoenix Suns. Það er hinsvegar ljóst á þessum tíðindum að forráðamenn Phoenix Suns hugsa "það er nú eða aldrei" og ætla að tjalda öllu til að vinna titilinn í ár. Það hefur hingað til ekki tekist með þeim mannskap sem fyrir var hjá liðinu, en hvað sem segja má um það - hefur atburðarás síðustu daga á leikmannamarkaðnum sett hlutina verulega upp í loft í Vesturdeildinni. Los Angeles Lakers fékk Spánverjann Pau Gasol til liðs við sig á dögunum og þykir liðið nú til alls líklegt í úrslitakeppninni.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Mbappé úr leik næstu vikurnar Fótbolti Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira