Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur hjá Nýja Landsbankanum: Brettum upp ermar 31. desember 2008 00:01 Edda Rós Karlsdóttir
Alþjóðlega efnahagskreppan nær væntanlega hámarki á nýju ári, en staðan á Íslandi er sýnu verri en víðast hvar annars staðar. Hér glímum við samtímis við gjaldeyris- og bankakreppu (tvíburakreppu) sem fækkar mjög möguleikum stjórnvalda til að bregðast við með efnahagsaðgerðum. Þetta er vægast sagt baneitruð blanda, því háir vextir eru algengasta meðalið við gjaldeyriskreppu á meðan lágir vextir eru eitt fljótvirkasta meðalið við banka- og efnahagskreppu. Því miður verður ekki hægt að vinna á efnahagskreppunni á meðan gjaldeyriskreppan er óleyst. Allar tilraunir til slíks eru dæmdar til að mistakast og valda að lokum meiri skaða en orðinn er. Þær viðhalda óvissu meðal fyrirtækja og einstaklinga, draga úr frumkvæði og framkvæmdavilja. Fum og fát í gjaldeyrismálum kostar þjóðina dýrt í tapaðri framleiðslu, lægri tekjum og lakari lífskjörum til framtíðar. Íslenska hagkerfið er ekki „komið fyrir horn“. Staðan er afar viðkvæm og alþjóðaumhverfið allt í uppnámi. Enn er hætta á að banka- og gjaldeyriskreppan endurtaki sig á næsta ári ef ekki er haldið rétt á spöðunum. Það má t.d. ekki bíða lengur að stjórnvöld hafi upp á þeim erlendu aðilum sem eiga krónur og semji um útgönguleið fyrir þá, sem getur samræmst stöðugleika á gjaldeyrismarkaði. Aðeins þannig náum við að afnema höft á gjaldeyrisviðskiptum og koma í veg fyrir að nýtt gengisfall fylgi í kjölfarið. Á liðnu ári hefur umræðan eðlilega mikið snúist um þá miklu skuldabyrði sem lögð verður á börnin okkar. Ástæða er til að taka einnig umræðu um þá möguleika sem börnin okkar hafa til tekjuöflunar í framtíðinni. Þessi atriði má ekki skoða úr samhengi, þá þarf þvert á móti að vega saman. Í því sambandi er nauðsynlegt að hafa í huga að alþjóðasamskipti og öflug utanríkisviðskipti eru mikilvæg forsenda góðrar menntunar og hárra lífskjara hér á landi. Ef tryggja á að börnin okkar geti búið við góð lífskjör í framtíðinni er því mikilvægt að vera í góðu sambandi við umheiminn. Lykilatriði er að endurreisa ímynd landsins og endurvinna traust. Hluti af því er að ganga frá skuldamálum gömlu bankanna og semja, helst um skuldaniðurfellingu, í samræmi við alþjóðalög, -reglur og skuldbindingar. Þetta er fljótvirkasta leiðin til að fá aftur fullnægjandi aðgang að alþjóðamörkuðum samvinnu og lægri vexti. Þetta er líka forsenda þess að komist verði hjá endalausum lögsóknum á hendur ríkinu frá erlendum einstaklingum, lífeyrissjóðum, bönkum og vogunarsjóðum. Í upphafi árs er rétt að horfa til framtíðar. Á sama tíma og taka þarf á bráðavanda heimila og fyrirtækja þarf að huga að framtíðarfyrirkomulagi allra mála. Hvers konar þjóðfélag viljum við og hvaða lífskjör getum við boðið börnunum okkar? Skerpa þarf alla yfirsýn, bæði stjórnvalda og almennings. Setja þarf raunhæf markmið, bretta upp ermar og hefja vinnuna. Hluti af þeirri vinnu er að láta af öllum leikaraskap og pólitískum fléttum. Vanda þarf til verka og taka ekki þá áhættu sem fylgir því að leita ávallt stystu leiðanna – til dæmis einhliða upptöku gjaldmiðils. Við eigum að byggja til framtíðar og þá þarf grunnurinn að vera traustur og allur viðbúnaður fyrsta flokks. Ég tel því að við eigum að sækjast eftir aðild að Evrópusambandinu og leggja allt kapp á að ná góðum samningum í auðlindamálum. Alþjóðakreppan kann að leiða einhverjar þjóðir í fang haftabúskapar og þjóðernishyggju. Svo má ekki verða hér á landi enda dregur sú leið úr lífskjörum í lengd. Leið hafta og þjóðernishyggju er í mínum huga leið hugleysingjans; þess sem skortir sjálfstraust og kjark til að takast á við raunverulega samkeppni og selur framtíðarhagsmuni fyrir skammtímahag. Íslendingar hafa alla möguleika á að ná góðum árangri til framtíðar. Þjóðin er ung, vel menntuð og hraust og landið er ríkt af náttúruauðlindum. Sá kraftur sem býr innra með þjóðinni endurspeglaðist m.a. í fræknum íþróttasigrum á síðasta ári. Íslenska kvennalandsliðið hefur áunnið sér rétt til þátttöku í lokakeppni EM í fótbolta í Finnlandi 2009. Slíkur árangur er einstakur og þáttur í því að endurbyggja ímynd Íslands.
Markaðir Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira