Byrjar Skarphéðinn í kvöld? 20. mars 2007 18:03
KR-ingar hafa unnið alla sjö leiki sína í Iceland Express deildinni í ár þar sem Skarphéðinn Ingason hefur verið í byrjunarliðinu. Skarphéðinn byrjaði sex leiki í deildarkeppninni og var í byrjunarliðinu í Seljaskóla á laugardaginn þegar KR-ingar tryggðu sér oddaleik í kvöld. Hann var hinsvegar ekki í byrjunarliðinu í fyrsta leiknum í einvíginu gegn ÍR þegar ÍR-ingarnir unnu í DHL-Höllinni. Nú er að sjá hvort að benedikt Guðmundsson, þjálfari KR sé ekki með tölfræðina á hreinu og skelli honum aftur í byrjunarliðið í kvöld þótt að hann hafi "aðeins" skorað 2 stig í síðasta leik. Skarphéðinn spilaði aðeins í 3 mínútur og 59 sekúndur í fyrsta leiknum sem KR-ingar töpuðu á heimavelli 65-73. Hann var hinsvegar kominn í byrjunarliðið í öðrum leiknum í Seljaskóla þegar KR-liðið var upp við vegg og varð að vinna. Skarphéðinn spilaði alls í 17 mínútur og 31 sekúndu í leiknum og var með 2 stig og 4 stoðsendingar á þeim tíma. Skarphéðinn var í byrjunarliðinu í sigurleikjum gegn Snæfelli, Haukum, Þór Þorlákshöfn, Tindastól, Fjölni og ÍR í deildarkeppninni í vetur. Hann skoraði 4,8 stig, tók 2 fráköst, gaf 1,2 stoðsendingar og stal 1,3 boltum í þessum sex leikjum. Í leikjunum sem hann kom inn af bekknum var Skarphéðinn með 4,7 stig, 1,5 fráköst, 0,6 stoðsendingar og 0,9 stolna bolta. Það er því ekki mikill munur á framlagi hans hvort sem að hann byrjar inn á eða ekki en það munar hinsvegar 33% á sigurhlutfalli KR-liðsins.
Dominos-deild karla Mest lesið Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Enski boltinn Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Körfubolti „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Körfubolti Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik Körfubolti Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Enski boltinn „Að lokum var það betra liðið sem vann“ Körfubolti Stendur ekki steinn yfir steini hjá Orra-lausu Sociedad Fótbolti Tatum með slitna hásin Körfubolti Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígið og Benóný Breki Sport Fleiri fréttir Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Lögmálið: „Er eitthvað að því að Randle sé búinn að vera betri en Ant?“ Indiana tók Cleveland í bakaríið „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Hermann Hauks um hegðun Agravanis: Lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu „Gerðum hlutina rétt í þessum leik“ Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis KKÍ breytir reglum varðandi erlenda leikmenn „Stoltið sem fylgir því að verja sinn heimavöll verður að vera til staðar“ „Við ætluðum bara ekki að tapa“ Úlfarnir búnir að snúa einvíginu sér í vil Meistararnir á lífi eftir stórsigur í New York „Persónulega fannst mér þær byrja að fagna of snemma“ Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 94-78 | Njarðvíkingar settu í fimmta gír í seinni „Mikilvægt að okkar uppöldu KR-ingar spili með félaginu“ Hamarsmenn tryggðu sér oddaleik Hristi af sér meiðsli á „ódauðlega“ ökklanum og fagnaði sigri Stóð við stóru orðin og fór í átta klukkutíma göngutúr heim til sín Sjá meira