Liverpool setti afar svekkjandi met Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2026 08:07 Alexis Mac Allister svekkir sig yfir sigurmarki Úlfanna í gær. Hann og félagar hans í Liverpool ættu að vera farnir að þekkja þessa tilfinningu. Getty/Jacob King Það hefur reynt á stuðningsmenn Liverpool í titilvörninni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á þessu tímabili og enn einn kaflinn í framhaldssögunni um svekkjandi lokakafla leiktíðarinnar bættist við á móti botnliði deildarinnar í gær.
Liverpool tapaði þá á móti Wolves 2-1 eftir að hafa jafnað metin í 1-1. Liverpool klúðraði hverju dauðafærinu á fætur öðru og fékk síðan á sig sigurmark í uppbótatíma. Með því að fá á sig þetta mark setti Liverpool nýtt met, því í fyrsta sinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar hefur lið fengið á sig fimm sigurmörk í uppbótatíma á einu og sama tímabilinu. Það gerðist líka í 2-1 tapi á móti Manchester City, í 3-2 tapi á móti Bournemouth, 2-1 tapi á móti Chelsea og 2-1 tapi á móti Crystal Palace. Mentality issue for Liverpool pic.twitter.com/I4y5wQMZuu— Anything Liverpool (@AnythingLFC_) March 4, 2026 Mark Palace-manna kom á 90+7. mínútu, mark Chelsea kom á 90+5. mínútu, mark Bournemouth kom á 90+5. mínútu, mark City á 90+3. mínútu og svo markið í gær sem kom á 90.+4. mínútu. „Þetta hefur komið fyrir okkur svo oft á þessu tímabili. Að það hafi gerst í uppbótartíma gæti verið tilviljun, þótt það hafi gerst svo oft. Við gáfum varla færi á okkur í dag, við gáfum eitt færi og fengum á okkur tvö mörk,“ sagði Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, eftir leikinn. Þetta tap Liverpool skilur þá eftir í fimmta sæti deildarinnar, þótt þeir gætu fallið niður í sjötta sæti ef Chelsea vinnur Aston Villa á Villa Park í kvöld. Liverpool have lost five games thanks to 90th minute goals in the Premier League this season, the most of any side in a single campaign in the competition's history. 😬❌ pic.twitter.com/KswMe2O91o— Anything Liverpool (@AnythingLFC_) March 3, 2026
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira