Heim í hlýjuna en alls ekki á heimleið Valur Páll Eiríksson skrifar 27. febrúar 2026 08:00 Elvar Már segir gott að koma heim en orðrómar um að hann flytji heim í haust eru ósannir. Vísir/Lýður Valberg Elvar Már Friðriksson fagnar því að komast heim í hlýjuna á Íslandi eftir sérlega kaldan vetur í Póllandi. Orðrómar um að hann snúi alfarið heim í haust eru á sandi byggðir. „
Það er búið að vera mjög kalt og langur vetur þarna úti. Þá er gott að komast aðeins heim og hitta fjölskylduna og vini. Þetta er kærkomið,“ segir Elvar Már sem leikur með Anwil Wloclawek í Póllandi. Ofsakuldi hefur herjað á Pólland í vetur og hafandi verið í Grikklandi síðustu tvö ár er Elvar ekki vanur því að koma hingað heim í hlýjuna í febrúar. „Það er langt síðan að ég fór að koma heim og það er hlýrra hér en úti. Það er fín tilbreyting samt,“ segir Elvar sem hefur gengið nokkuð vel á nýjum stað. „Þetta er búið að vera fínt í vetur, en mjög kalt og dimmt síðustu mánuði. Það fer birta til núna. Það eru tveir til þrír mánuðir eftir af tímabilinu og ég er bara jákvæður.“ Kann vel við sig í Póllandi „Mér finnst oft haldast í hendur þegar gengur vel inni á vellinum er líðanin utan vallar líka betri. Þetta hefur verið smá upp og niður hjá okkur í vetur en ég er hef verið frekar stabíll. Ég reyni alltaf að skila bara mínu,“ segir Elvar Már. Elvar fékk smá hvíld áður en æfingar landsliðsins hófust og gat notið tímans í faðmi fjölskyldunnar áður en næsta verkefni tók við. „Ég er í fínu formi og hef fengið fína hvíld. Ég þurfti svolitla hvíld fyrir líkama og sál, ég fékk alveg viku fyrir gluggann í smá hvíld hérna heima. Ég kem fullur tilhlökkunar til baka.“ Stanslaust flakk Kona Elvars, Ína María Einarsdóttir, býr ásamt syni þeirra hér heima á Íslandi. Mikið flakk hefur verið á kappanum síðustu ár og hann aðeins tekið eitt tímabil með hverju liði fyrir sig síðasta áratuginn eða svo. Líkt og sjá má hefur Elvar Már komið víða við á undanförnum árum og aldrei stoppað lengur en í eina leiktíð á hverjum stað.Vísir/Sara Eftir að hafa spilað háskólabolta í Bandaríkjunum kom Elvar stuttlega heim til Njarðvíkur frá Frakklandi 2018. Hann fór þaðan til Svíþjóðar, svo til Litáen, Belgíu og Ítalíu, áður en hann fór aftur til Litáen og hefur síðustu tvö ár verið með sitthvoru liðinu í Grikklandi. Áður en hann fór svo til Póllands í sumar. „Það er ekkert að bögga mig þannig að vera á þessu flakki. Það versta er að fjölskyldan er ekki hjá mér. Það er kannski betra að finna stað þar sem ég kem stráknum mínum í skóla og við getum verið öll saman. Þá er þetta auðveldara. Mér er svo sem alveg sama hvar ég verð, ég er orðinn frekar vanur og maður verður hálf háður því að sækja í breytingar þegar maður er alltaf í einhverju nýju og festir hvergi niður rætur.“ „Það eru ekki mörg ár eftir í þessu þannig að ég ætla að reyna að njóta þess á meðan ég get. Svo mun ég líklega setjast að hérna. Þá verður þetta frekar einfalt líf held ég,“ segir Elvar. Ekki á leið heim Þau Elvar og Ína eiga von á öðru barni og heyrst hafa orðrómar um heimför í haust, að einhver íslensk lið hafi sett sig í samband við hann. „Nei, ég hef ekki heyrt í neinum og það er ekki planið að koma heim á næsta ári. Ég ætla að vera áfram úti í nokkur ár í viðbót, meðan ég er upp á mitt besta, að nýta þau ár úti,“ segir Elvar. Óvíst hvaða Litáar mæta til Íslands Einstök staða er í riðli Íslands, þar sem öll fjögur liðin eru jöfn að stigum, með þrjú talsins. Ísland fékk tvö stig fyrir frábæran útisigur á Ítalíu í fyrsta leik en fylgdi því eftir með slæmu tapi fyrir Bretum hér heima. Staðan í riðli Íslands gæti vart verið jafnari.Skjáskot/Wikipedia Litáen marði Breta með eins stigs mun í fyrsta leik en tapaði svo með eins stigs mun fyrir Ítölum. Ísland mætir nú Litáen heima og heiman í komandi leikjum. Í Laugardalshöll á föstudag og ytra á mánudag. Ísland tapaði fyrir Litáen í æfingaleik fyrir EuroBasket í sumar en þá voru NBA-stjörnur Litáa með í för. Þeir leikmenn verða fjarverandi á föstudaginn og óvíst hversu margar stjörnur liðsins í Evrópu koma með til Íslands. Vera má að einhverjar þeirra spili aðeins síðari leikinn ytra. „Þetta fer svolítið eftir því hvaða mannskap þeir koma með, held ég. Bestu EuroLeague kallarnir þeirra með Zalgiris eru að spila í dag (á miðvikudagskvöld). Svo það er spurning hvort þeir verði með í fyrri leiknum eða bara í seinni leiknum. En hvort sem þeir eru með eða ekki eru þeir stórir og sterkir. Þetta verður erfitt sama hverjir mæta fyrir þá. Þetta er mikil körfuboltaþjóð og þeir kunna alveg körfubolta,“ segir Elvar. Menn eru þá ákveðnir að vinna sigur í höllinni eftir tap fyrir Bretum í síðasta glugga. „Við vorum ekki nógu sáttir við sjálfa okkur eftir síðasta leik og við viljum vernda heimavöllinn í næsta leik,“ segir Elvar. Viðtalið má sjá í heild í spilaranum að neðan. Klippa: Elvar ræðir kuldann, einveruna, fjölskylduna og heimkomu
Landslið karla í körfubolta Pólland HM 2027 í körfubolta Mest lesið Sögulegur samningur Víkinga Íslenski boltinn Missti næstum því fingur á móti Liverpool Fótbolti Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur Íslenski boltinn Samningur í höfn: Írar treysta Heimi fyrir EM á heimavelli Fótbolti Mörkin í Meistaradeild: Sjáðu stóru liðin setja upp sýningu Fótbolti Vill ekki falla í sömu gryfju og Svíar Fótbolti Fresta ákvörðun um hugsanlegt bann á Trump Sport Deilan leyst og spilað í Boston Fótbolti Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real Enski boltinn Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Fleiri fréttir Sundskýlurnar slógu hitt liðið út af laginu og Almar komst áfram Náðu loksins saman um að bjarga WNBA eftir hundrað klukkutíma viðræður Tryggvi og félagar í undanúrslit FIBA Europe-bikarsins Fékk bara að byrja einu sinni en var samt valin best Dani: Við erum að taka næstu skref Sigrún: Það var mjög mikið sem gekk upp í dag Uppgjör: Ísland - Portúgal 62-60 | Frábær sigur Íslands „Fínt að fá svona langa pásu á milli leikja“ Tvær breytingar á hópnum fyrir kvöldið Extraleikarnir: Nablinn varð náfölur og ældi endalaust eftir keppni Almar, Birgir Leifur og Friðrik Leó með í Marsfárinu Ómetanlegt fyrir nýliða að hafa þessa bræður Jón Axel drjúgur fyrir San Pablo í mikilvægum sigri Skrýtin ára yfir Val: „Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast“ „Þessi Kane er stórhættulegur“ ÍA 86-115 Tindastóll | Skagfirðingar ekki í vandræðum á Skaganum Stórleikur Elvars dugði ekki til sigurs Ræddu umtalaða sigurkörfu KR: „Þetta er rosalega heimskulegt“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 94-88 | Deildarmeistarar eftir magnaðan viðsnúning Fyrsta tapið á tímabilinu og Almar þarf nú að bíða og vona KR - Keflavík 107-105 | Keflvíkingar gáfu frá sér fimmta sætið „Hefðum unnið þá í framlengingunni í staðinn“ Uppgjörið:Njarðvík - Valur 110-78| Njarðvíkingar að kveikja á sér á hárréttum tíma Uppgjör: Álftanes - ÍR 89-93 | Álftanes að missa af en ÍR á leið í úrslitakeppnina Hákon: Þetta er svo ógeðslega gaman Þór Þ. - Ármann 74-79 | Ármenningar skildu Þórsara eftir í fallsæti Risa leikur í kvöld: „Einn af þeim stærri í sögu Þórs Þorlákshafnar“ Clark fór á kostum í fyrsta landsleiknum „Þetta er ógeðslegt starf“ Tryggvi með hæstu einkunn í flottum sigri Sjá meira