Afkoma TM undir spám 16. febrúar 2007 09:49
Tryggingamiðstöðin (TM) skilaði 696 milljóna króna hagnaði á síðasta ári samanborið við tæpa 7,2 milljarða krónur árið 2005. Hagnaður tryggingafélagsins nam 231,6 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi 2006 sem er undir meðaltalsspá greiningardeilda viðskiptabankanna. Meðaltalsspáin hljóðaði upp á 389 milljóna króna hagnað á fjórða ársfjórðungi. Rekstrarhagnaður TM á fjórða ársfjórðungi nam tæpum 549,4 milljónum króna samanborið við tæpar 1,3 milljarða krónur árið á undan. Í ársuppgjöri TM kemur meðal annars fram að rekstrartap var af vátryggingastarfsemi upp á 358 milljónir króna samanborið við 481 milljóna króna tap árið á undan. Þar af nam tapið af innlendri vátryggingastarfsemi 48 milljónum króna.Bókfærð iðgjöld af vátryggingastarfsemi hér á landi námu 7.282 milljónum króna sem er 21 prósenta aukning á milli ára.Þá jukust heildareignir TM úr 30.777 milljónum króna við árslok 2005 í 69.379 milljónir við lok síðasta árs. Aukningin nemur 125 prósentum á einu ári. Bókfærð tjón TM á árinu 2006 námu 7.674 milljónum króna samanborið við 5.697 milljónir króna árið á undan og hækka þau því um 35 prósent.Engin stór tjón urðu hjá TM á Íslandi en hjá Nemi urðu tvö skipatjón á fjórða ársfjórðungi, að því er segir í uppgjörin. Helsta skýring á auknum tjónakostnaði á Íslandi á árinu er fjölgun viðskiptavina og verðbólga, sem nemur 6,9 prósent en var 4,4 prósent árið 2005.Handbært fé frá rekstri var 7.018 milljónir króna í fyrra samanborið við 2.448 milljónir króna árið 2005.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Atvinnulíf Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Viðskipti innlent Landsbankinn við Austurstræti falur Viðskipti innlent Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Viðskipti innlent Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Viðskipti innlent Hefja flug til Edinborgar og Malaga Viðskipti innlent Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Viðskipti innlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Hefja flug til Edinborgar og Malaga Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Landsbankinn við Austurstræti falur Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Bein útsending: Lokadagur Nýsköpunarviku Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent