Viðskipti

Unity segir upp 1800 manns
Hugbúnaðarfyrirtækið Unity Software hefur sagt upp 1800 starfsmönnum eða sem nemur um fjórðungi starfsfólks. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til verðbréfaeftirlits Bandaríkjanna.

Binda enda á 27 ára samstarf sitt
Bandaríski íþróttavörurisinn Nike og bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hafa bundið enda á samstarf sitt sem staðið hefur síðastliðinn 27 ár.

Samstarfsfólk Musk sagt hafa áhyggjur af fíkniefnaneyslu hans
Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður neyta fíkniefna á borð við LSD, kókaín og ofskynjunarsveppi. Þetta kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal.

Brjóta verði upp fákeppnisaðstöðu skipafélaganna tveggja
Félag atvinnurekenda, Neytendasamtökin og VR funduðu í dag með borgar- og hafnaryfirvöldum í Reykjavík til að ræða samkeppnisumhverfið í Sundahöfn, í framhaldi af ákvörðun Samkeppniseftirlitsins vegna samráðs stóru skipafélaganna tveggja.

Sættir sig ekki við bann eftir slóð gjaldþrota
Hæstiréttur hefur fallist á að taka fyrir mál manns sem var úrskurðaður í þriggja ára atvinnurekstrarbann í Landsrétti. Þrotabú einkahlutafélags sem maðurinn átti einn fór fram á bannið en lýstar kröfur í búið nema ríflega 300 milljónum króna.

Ása Inga tekur við af reynsluboltanum Valgeiri
Ása Inga Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Vinnuverndar. Hún tekur við starfinu af Valgeiri Sigurðssyni sem lýkur störfum eftir átján ár í starfi framkvæmdastjóra eða allt frá stofnun Vinnuverndar árið 2005.

„Salan var algjörlega háð því hvað Þórólfur sagði á fundum“
„Helgi var einkaþjálfari þegar að við kynntumst og í viðskiptafræði í háskólanum. Við gerðum samkomulag um að ég væri hjá honum í líkamsrækt þrisvar í viku og síðan kom hann til mín á mánudögum klukkan fimm og ég kenndi honum forritun og fleira fyrir tölvukúrsana hans. Síðan borðaði hann með okkur,“ segir Maron Kristófersson framkvæmdastjóri Aha.is þegar hann rifjar upp kynni hans og meðstofnanda hans, Helga Má Þórðarsonar.

Á döfinni í fyrra: Vinnan okkar, verkefnin og líðanin
Á sunnudögum í janúar ætlum við að rifja upp verkefnin og viðtöl úr Atvinnulífinu í fyrra. Við byrjum á því að rifja upp alls kyns verkefni úr vinnunni okkar.

„Hef oft grínast með að langa að verða ruslamálaráðherra“
Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík, segist klárlega samsvara sig við karakterinn í áramótaskaupinu sem endaði með að flokka sjálfan sig. Og telur reyndar að sjálf hafi hún bæði flokkað og endurnýtt sjálfan sig.

Icelandair leigir eina Airbus til
Icelandair og SMBC hafa undirritað samning um langtímaleigu á Airbus A321LR þotu til afhendingar á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þetta er fimmta Airbus-þotan sem Icelandair semur um langtímaleigu á við SMBC.

JBT fær tveggja vikna frest
Marel hefur verið upplýst um að fjármálaeftirlit Seðlabankans hafi veitt JBT tveggja vikna framlengingu á fresti til þess að birta lokaákvörðun um hvort það hyggist gera yfirtökutilboð í Marel.

Heilsugæsla í Uppsveitum Suðurlands - óskað er eftir leiguhúsnæði
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi heilsugæslu í Uppsveitum Suðurlands.

Guðrún Lilja nýr framkvæmdastjóri Svansins
Guðrún Lilja Kristinsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Elvu Rakel Jónsdóttur sem hafði starfað sem framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi frá árinu 2010.

Ein hópuppsögn í desember
Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í desember þar sem 48 starfsmönnum var sagt upp störfum í opinberri stjórnsýslu.

Herdís Dröfn nýr forstjóri Sýnar
Herdís Dröfn Fjeldsted hefur verið ráðin forstjóri Sýnar að loknu ráðningarferli. Hún mun hefja störf þann 11. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar. Páll Ásgrímsson sem gegnt hefur starfinu undanfarna mánuði eftir brotthvarf Yngva Halldórssonar hverfur aftur til starfa sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs félagsins.

Stórsýning hjá Toyota á laugardaginn
Nýtt ár byrjar að venju með krafti hjá Toyota. Laugardaginn 6. janúar verður risastór þrettándasýning hjá viðurkenndum söluaðilum í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Selfossi og Akureyri.

Veitingahúsið Ítalía flytur
Veitingahúsið Ítalía sem hefur um árabil verið staðsett á Laugavegi er nú lokað vegna flutninga. Veitingahúsið opnar aftur síðar í janúar á Frakkastíg 8b. Þar var áður rekið veitingahúsið Reykjavík Meat by Maison en því var nýlega lokað.

Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið
María Rún Hafliðadóttir, forstjóri Gleðipinna sem rekur Íslensku hamborgarafabrikkuna, segir erfitt að loka veitingastað með tíu ára sögu. Launakostnaður geri veitingahúsarekstur afar erfiðan.

Ellefu þúsund bílaeigendur skráð kílómetrastöðu í nýja kerfinu
Tuttugu prósent þeirra sem eiga rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla hafa skráð kílómetrastöðu ökutækja sinna í nýtt kerfi. Kílómetragjald lagðist á slíka bíla um áamót.

Hætta sölu á Pepsí vegna „óásættanlegra verðhækkana“
Franska matvöruverslanakeðjan Carrefour hefur tilkynnt að hún muni hætta að selja Pepsí og aðrar vörur úr smiðju PepsiCo. Ástæðan er sögð sú að vörurnar séu orðnar of dýrar eftir nýjustu verðhækkanirnar.

Rúnar frá Marel til Aquatiq
Rúnar Birgisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Aquatiq á Íslandi. Rúnar hefur starfað fyrir Marel í kvartöld.

Fimmfalda aðgangseyrinn í Guðlaugu: „Ég held að þetta sé áfram ódýrasta baðlón á Íslandi“
Aðgangur að Guðlaugu á Akranesi kostar nú 2.500 krónur fyrir fullorðna. Gjaldtaka í laugina hófst árið 2021 og var þangað til nú aðeins 500 krónur. Bæjarstjóri Akraness segir hækkunina til komna vegna kostnaðarhækkana í tengslum við kröfur um aukna þjónustu.

Grillhúsið til sölu á 110 milljónir
Veitingastaðir Grillhússins á Laugavegi og Sprengisandi í Reykjavík auk útibús í Borgarnesi hafa verið auglýstir til sölu. Uppsett verð er 110 milljónir króna.

Tekur við sem forstöðukona nýsköpunar og atvinnulífs í HR
Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðukona nýsköpunar og atvinnulífstengsla hjá Háskólanum í Reykjavík.

Taka ekki lengur við dönskum seðlum
Frá og með áramótum hætti Íslandsbanki að taka á móti seðlum í dönskum krónum.

Straumur frá Rapyd til Adyen
Straumur, íslenskt fyrirtæki í greiðslumiðlun og dótturfélag Kviku banka, hefur skrifað undir samstarfssamning við fjártæknifyrirtækið Adyen um færsluhirðingu og vöruþróun á sviði fjártækni.

Trendin 2024: Gervigreindin hræðir, uppsagnir áfram og mannlegi þátturinn mikilvægastur
Eitt það skemmtilega við áramótin er hvernig við eins og ósjálfrátt veltum fyrir okkur við hverju má búast á nýju ári. Eða setjum okkur markmið um hvað við ætlum okkur.

Framlengja lokun lónsins
Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa ákveðið að framlengja lokun til og með föstudagsins 5. janúar næstkomandi. Þá verður staðan endurmetin.

Minnka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði
Til stendur að minnka umsvif Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptamálaráðherra, og Stefáns Eiríkssonar, útvarpsstjóra. Ríkið mun koma til móts við RÚV verði það fyrir tekjutapi vegna þessa.

„Computer says no“ hjá Play vegna ónýts farangurs
„Mér finnast þau bara alveg ömurleg,“ segir Kristján Sævald Pétursson um viðbrögð Play en hann varð fyrir því á dögunum að taskan hans eyðilagðist í flugi með flugfélaginu.