
Viðskipti

Tilnefnd til verðlauna fyrir Kúmen og lúxusbíósal í þaki Kringlunnar
Kringlan verslunarmiðstöð hefur hlotið tilnefningu til hinna virtu Revo´s verðlauna í Bretlandi. Framkvæmdastjóri segir það hafa verið djarfa hugmynd að byggja bíósal upp úr þakinu. Viðskiptavinir séu mjög ánægðir með breytingarnar, sem og breytingarnar á mathöllinni.

Skera niður hjá úreltri Alexu
Forsvarsmenn Amazon hafa ákveðið að segja upp starfsmönnum sem komið hafa að þróun talgervilsins Alexa. Meiri áherslu á að leggja á þróun gervigreindar eins og ChatGPT.

Auglýsendur áhyggjufullir vegna ummæla Musks og gyðingahaturs
Forsvarsmenn IBM, sem er einn af stærri auglýsendum á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter), hættu öllum auglýsingum þar. Það var eftir að auðjöfurinn Elon Musk, sem keypti Twitter í fyrra, lýsti á miðvikudaginn yfir stuðningi við færslu um að gyðingar ýttu undir hatur á hvítu fólki. Þar var einnig gefið í skyn að gyðingar væru að ýta undir flutninga flótta- og farandfólks.

Bein útsending: Dagur verkfræðinnar
Dagur verkfræðinnar verður haldinn á Hótel Hilton í dag og verður í beinu streymi hér á Vísi. Dagskráin hefst klukkan 13.00 og lýkur klukkan 17.00.

Anita Brá nýr forstöðumaður hjá Advania
Anita Brá Ingvadóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns þjónustuupplifunar, sem er nýtt svið innan Advania.

Vinnu- og öryggisfatnaður í hæsta gæðaflokki hjá Sindra
Verslunin Sindri býður upp á hágæða vinnu- og öryggisfatnað sem hentar öllum iðnaði hérlendis.

Friðrik fyrsti forstöðumaður lögfræðiráðgjafar Arion banka
Friðrik Ársælsson hefur verið ráðinn forstöðumaður lögfræðiráðgjafar Arion banka og er um nýja stöðu að ræða innan bankans. Lögfræðiráðgjöf heyrir undir nýjasta svið bankans, rekstur og menningu.

Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að Seðlabankinn muni halda stýrivöxtum óbreyttum á vaxtaákvörðunardegi næstkomandi miðvikudag. Stýrivextir eru nú 9,25 prósent, en peningastefnunefnd ákvað síðast að halda vöxtunum óbreyttum.

Allt grænt í Kauphöllinni
Hlutabréf allra skráðra fyrirtækja í Kauphöllinni nema tveggja hækkuðu í verði í dag. Þrjú þeirra hækkuðu um meira en sex prósent og hlutabréf Icelandair hækkuðu mest, eða um 6,45 prósent.

Edda Aradóttir á lista TIME
Edda Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix er á lista TIME yfir 100 áhrifamestu viðskiptaleiðtoga á sviði loftslagsmála. Það kemur fram í tilkynningu frá Carbfix.

Pink Iceland verðlaunuð í annað skipti
Pink Iceland hlaut Nýsköpunarverðlaun og Skriðuklaustur í Fljótsdal Nýsköpunarviðurkenningu ferðaþjónustunnar fyrir árið 2023. Verðlaunin voru afhent á 25 ára afmælisráðstefnu samtakanna á Hilton Reykjavík Nordica í gær.

Greiðslukortagátt Rapyd liggur niðri vegna netárásar
Greiðslukortagátt Rapyd liggur nú niðri. Ekki er hægt að greiða með greiðslukortum í posum víða og í netverslun. Samkvæmt forstjóra Rapyd á Íslandi er ástæðan rakin til netárásar.

Atli, Sólrún og Tinna ráðin til Motus
Innheimtufyrirtækið Motus hefur ráðið til starfa þau Atla Hjaltested, Sólrúnu Dröfn Björnsdóttur og Tinnu Björk Bryde. Atli er nýr viðskiptastjóri, Sólrún er nýr vörustjóri innheimtu og Tinna nýr viðskiptaþróunarstjóri.

Kaldalón mætt á aðalmarkað Nasdaq Iceland
Viðskipti með hlutabréf í fasteignafélaginu Kaldalóni hófust á aðalmarkaði Nasdaq Iceland í morgun. Síðustu ár hefur síðustu ár verið á First North vaxtamarkaðnum.

Ráðinn framkvæmdastjóri vátryggingasviðs Varðar
Einar Sigursteinn Bergþórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri vátryggingasviðs hjá Verði tryggingum. Einar mun hefja störf 1. janúar næstkomandi og mun taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins.

Innleiða stafrænan íslenskukennara hjá sveitarfélögum
Sveitarfélögin Reykjavíkurborg, Akranes, Mýrdalshreppur, Ísafjarðarbær og Mosfellsbær hafa keypt og innleitt stafræna íslenskukennarann Bara tala sem byggður er á gervigreind, fyrir starfsfólkið sitt.

Geymsluhólf Landsbankans í Grindavík flutt úr bænum
Geymsluhólf sem voru í útibúi Landsbankans í Grindavík voru seinnipartinn í gær flutt í útibú bankans í Mjódd. Um 150 geymsluhólf var að ræða og verða þau aðgengileg fyrir viðskiptavini frá og með morgundeginum.

Mikilvægt að fólk fylgi ráðleggingum fagmanna
Stóran hluta umferðaróhappa og meiðsla, sérstaklega að vetrarlagi, má rekja til vanbúinna bifreiða og slitinna eða rangra hjólbarða.

Tekur við stöðu forstjóra Teya
Brian Jeffrey Gross hefur verið ráðinn forstjóri fjártæknifyrirtækisins Teya. Hann tekur við stöðunni af Jónínu Gunnarsdóttur.

Fimm konur og fjörutíu karlar: „Ertu ekki að djóka í mér?!“
„Við erum að tala um þvílíkar rokkstjörnur á sviðinu. Þannig var stemningin,“ segir segir Tanya Zharov, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Alvotech, í upphafi viðtals um Heimsþing kvenleiðtoga sem haldið var í Reykjavík þessa vikuna.


Geymsluhólfum Landsbankans í Grindavík enn ekki bjargað
Starfsfólki Landsbankans í Grindavík var snúið við á grundvelli áhættumats þegar það hugðist flytja geymsluhólf úr bankanum í gærmorgun. Geymsluhólfunum hefur því ekki verið bjargað úr bænum.

Íhuga að banna útflutning á Ozempic
Þýska lyfjaeftirlitið íhugar að banna útflutning á þyngdarstjórnunar-og sykursýkislyfinu Ozempic til þess að koma í veg fyrir að birgðir af lyfinu klárist í landinu.

Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Icelandair Cargo
Einar Már Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Icelandair Cargo en hann hefur sinnt starfinu tímabundið frá 14. september síðastliðinn. Hann tekur við stöðunni af Gunnari Má Sigurfinnssyni sem lét af störfum í september.

Smass og Stél lokað en 2Guys og Just Wingin' It koma í staðinn
Veitingastöðunum Smass og Stél hefur verið lokað. Um var að ræða þrjá staði; í Vesturbænum í Reykjavík, á Fitjum í Reykjanesbæ og í Háholti í Mosfellsbæ.

„Ég var til dæmis alveg glötuð í að semja um laun“
„Að hlusta á svona umræður og að mæta á svona þing veitir mikinn innblástur,“ segir Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun, en hún stýrði málstofu á Heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu í gær.

Krefja Grindvíkinga ekki um afborganir í bili
Stóru viðskiptabankarnir þrír bjóða Grindvíkingum allir upp á frystingu húsnæðislána vegna þeirrar stöðu sem uppi er í bænum. Fryst húsnæðislán safna þó vöxtum og verðbótum.

Staðan á hlutabréfamarkaðnum á mannamáli
Hlutabréfamarkaðurinn hefur leikið marga grátt undanfarin misseri og úrvalsvísitalan hrunið um tuttugu prósent á einu ári.

OK kaupir upplýsingatæknihluta TRS
OK hefur fest kaup á upplýsingatæknifyrirtækinu TRS á Selfossi.

Gunnar Már ráðinn forstjóri GA Telesis Engine Service OY
Gunnar Már Sigurfinnsson hefur verið ráðinn forstjóri GA Telesis Engine Service OY, dótturfyrirtækis GA Telesis, alþjóðlegs þjónustufyrirtækis með varahluti og alhliða viðhaldsþjónustu við flugfélög um allan heim.