Viðskipti innlent

Orkan svarar 30 krónu lækkun Atlantsolíu
Stjórnendur Skeljungs hafa ákveðið að lækka eldsneytisverð á Dalvegi í Kópavogi og Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði um 30 krónur.

Lækka verð á bensínlítranum um 30 krónur
Atlantsolía lækkaði í dag verð á eldsneyti í rúmlega 211 krónur á lítrann á stöð sinn á Sprengisandi í Reykjavík. Er verðið nú á pari við það sem er á stöðinni í Kaplakrika.

Skúli virðist staðráðinn í því að endurreisa WOW air
Skúli Mogensen virðist stefna ótrauður að því að endurreisa hið fallna flugfélag WOW air. Á frumkvöðlaráðstefnu í Hörpu í morgun kynnti Skúli ítarlegar hugmyndir að því hvernig hið endurreista flugfélag myndi líta út, án þess þó að segja það hreint út að til stæði að endurreisa flugfélagið.

Gjaldþrot Smellinn nam 650 milljónum króna
Skiptum er lokið í þrotabú byggingafyrirtækisins Smellinn á Akranesi sem framleiddi einingarhús. Lýstar veðkröfur í búið námu 657 milljónum króna.

Bjarni Már nýr prófessor við lagadeild HR
Bjarni Már Magnússon hefur hlotið framgang í stöðu prófessors við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

12 milljarða gjaldþrot fasteignafélags BM Vallá
Gjaldþrot Fasteignafélagsins Ártúns, sem stofnað var árið 2005 til að halda utan um fasteignir BM Vallá, nam tæplega 12 milljörðum króna.

Bein útsending: Skúli Mogensen ræðir endurreisn OZ og WOW air
Startup Iceland fer fram í dag í Hörpu. Þemað í ár er Stofnendur og undirstöður (e. Founders and Foundations) og mun Skúli Mogensen meðal annars flytja erindi í fyrsta sinn eftir gjaldþrot WOW air í mars síðastliðnum

Kaupþing íhugar sölu á tískuvörukeðjunni Karen Millen
Kaupþing hefur leitað til ráðgjafafyrirtækisins Deloitte til að gaumgæfa tilboðin en heimildarmenn Sky News segja að þreifingarnar muni að öllum líkindum taka marga mánuði.

Krónan tekur upp sykurreyrpoka og hættir með smápoka úr plasti
Frá og með 1. júní munu allar verslanir Krónunnar hætta að selja hefðbundna plastburðarpoka í verslunum sínum.

Það er slúðrað mest í Reykjavík
Þetta er eins og að gefa út tímarit, en forsíðan breytist eftir því hvar þú ert staddur, segir framkvæmdastjóri Marriott Edition hótelanna. Mikil leynd hvílir yfir byggingunni og því hafa margar sögur komist á kreik.

Flugmenn látnir fjúka
Icelandair sagði í gær upp 45 flugmönnum. Í tilkynningu frá félaginu kom fram að um væri að ræða 21 nýliða.

Harmar uppsagnir Icelandair en segir þær ekki koma á óvart
Örnólfur Jónsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir hörmulegt að Icelandair hafi þurft að grípa til þess ráðs í dag að segja upp flugmönnum.

Icelandair segir upp flugmönnum vegna 737 MAX vélanna
Icelandair hefur slitið ráðningarsamningi við 24 flugmenn og stöðvað þjálfun 21 nýliða sem til stóð að hæfu störf sem flugmenn á Boeing 737 MAX vélar félagsins í sumar.

Fullnaðarsigur Emmessíss í Toppísmálinu
Emmessís má nota vörumerkið Toppís og þarf ekki að farga öllum vörum og auglýsingum sem bera vörumerkið. Þetta er niðurstaða Landsréttar sem staðfesti dóm úr héraði þess efnis.

Fyrrverandi talsmaður Silicor Materials ráðinn ritstjóri Fréttablaðsins
Davíð Stefánsson, stjórnarmaður og fyrrverandi talsmaður Silicor Materials á Íslandi, hefur verið ráðinn ritstjóri Fréttablaðsins. Hann tekur við sem annar tveggja ritstjóra blaðsins frá 1. júní.

Værum ekki að endurvekja Laundromat nema dæmið gengi upp
Laundromat, taka tvö.

Sölutryggja 5,5 prósent af hlutafjárútboði Marels
Arion banki og Landsbankinn hafa skuldbundið sig til þess að sölutryggja samanlagt 5,5 prósent af yfirstandandi hlutafjárútboði Marels, að því er fram kemur í skráningarlýsingu sem félagið hefur útbúið í tilefni af útboðinu sem hófst í gær.

Fjármagnaði tilboð í 40 prósenta hlut
Kauphöllin hvikaði ekki frá afstöðu sinni til afskráningar Heimavalla þrátt fyrir að hópur fjárfesta hefði fullfjármagnað tilboð í liðlega 40 prósenta hlut í félaginu.

Origo kaupir allt hlutafé í Strikamerki
Viðskiptin eru meðal annars háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Tólf starfsmönnum sagt upp hjá Heklu
Bílaumboðið Hekla sagði í dag upp tólf starfsmönnum. Uppsagnirnar eru þvert á deildir í fyrirtækinu en Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, segir að ástæða uppsagnanna sé samdráttur í bílasölu síðustu misseri.

Kröfu ALC vegna Wow-vélarinnar vísað frá
Kröfu bandaríska flugvélaleigasalans ALC um að kyrrsetningu Isavia á Airbus-flugvél leigusalans verði aflétt hefur verið vísað frá af Héraðsdómi Reykjaness.

Umhverfismálin munu hafa mikil áhrif
Magnús Orri Schram segir mikilvægt að Ísland verði áfangastaður þar sem ferðamenn geti verið umhverfisvænni en heima hjá sér.

Samkeppnishæfnin vænkast en áskoranir fram undan
Þrátt fyrir að Íslandi hækki um fjögur sæti á milli ára í alþjóðlegri samkeppnishæfnisúttekt er björninn ekki unninn að mati Viðskiptaráðs.

Veltan helmingaðist á fimm árum
Velta Bílanausts dróst saman um helming frá 2013 fram að gjaldþroti félagsins. Uppsafnað tap nemur 600 milljónum króna. Félag í Toyota-samstæðunni keypti eignir úr búinu á 270 milljónir króna en AB varahlutir náðu til sín stórum umbo

Hagnast um 339 milljónir króna
Framtakssjóðurinn Icelandic Tourism Fund, sem er í rekstri Landsbréfa, hagnaðist um 339 milljónir króna á síðasta ári og dróst hagnaðurinn saman um 28 milljónir króna frá fyrra ári, samkvæmt nýjum ársreikningi sjóðsins.

Nota vextina til þess að milda höggið
Stórbætt efnahagsstaða gerir Seðlabankanum kleift að mæta samdrætti í hagkerfinu með því að lækka vexti.

Keypti í Icelandair fyrir 700 milljónir
Bandaríski fjárfestingasjóðurinn PAR Capital Managment, sem kom fyrst inn í hlutahafahóp Icelandair Group í síðasta mánuði, bætti við sig hlutum í flugfélaginu í lok síðustu viku fyrir jafnvirði um 700 milljónir króna og er sjóðurinn eftir kaupin orðinn stærsti hluthafi Icelandair.

Lykill sækist eftir leyfi sem viðskiptabanki
Fyrirtækið hefur skilað inn umsókn um starfsleyfi sem viðskiptabanki til Fjármálaeftirlitsins. Horfir til hagstæðari fjármögnunar með því að fá að taka á móti innlánum. Eigandi Lykils er vogunarsjóðurinn Davidson Kempner.

Álver Rio Tinto tapaði ríflega fimm milljörðum
Álver Rio Tinto í Straumsvík var rekið með tapi upp á 42,1 milljón dala, jafnvirði um 5,2 milljarða króna miðað við núverandi gengi, á síðasta ári, samkvæmt nýjum ársreikningi álversins. Til samanburðar tapaði álverið 3,3 milljónum dala árið 2017.

Eignast helming í Íslenskum verðbréfum
Fyrrverandi eigendur Viðskiptahússins hafa eignast helmingshlut í Íslenskum verðbréfum í kjölfar kaupa síðarnefnda fyrirtækisins á því fyrrnefnda. Öllum skilyrðum fyrir kaupunum hefur verið fullnægt og var gengið endanlega frá þeim í byrjun vikunnar.