

Fjöldi farþega í millilandaflugi hjá Icelandair í maí var rúmlega tvöfalt fleiri en í síðasta mánuði. Félagið hefur aukið flugframboð sitt að undanförnu í takt við aukna eftirspurn eftir flugi, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu sem vísar til flutningatalna sem Icelandair Group birti í Kauphöll í dag.
Útgerðarmaður og bæjarfulltrúi í Kópavogi segist hafa ákveðið að gera upp við alla kröfuhafa í þrotabú útgerðarinnar Sælindar ehf í topp í stað þess að bíða eftir niðurstöðu í dómsmáli. Guðmundur Gísli var í nóvember 2019 dæmdur í héraðsdómi til að greiða þrotabúinu fimmtíu milljónir króna auk vaxta vegna gjafagjörnings.
Elísabet Ýr Sveinsdóttir hefur verið ráðin í starf fjármálastjóra Orkusölunnar.
Bankasýsla ríkisins, fyrir hönd Ríkissjóðs Íslands, og Íslandsbanki hf., hafa birt lýsingu og tilkynnt stærð fyrirhugaðs hlutafjárútboðs í bankanum og leiðbeinandi verðbil þess. Selja á rúmlega 636 milljón hluti en útboðshlutirnir, og valréttarhlutirnir, nema að hámarki 35 prósentum af heildarhlutafé bankans.
Skyndibitakeðjan KFC er nú í viðræðum við fasteignafélagið Klettás um mögulega opnun nýs veitingastaðar við Norðurtorg á Akureyri. Viðræðurnar eru á byrjunarstigi en stjórnendur KFC hafa reynt að nema land fyrir norðan í tuttugu ár.
Um níu af hverjum tíu landsmönnum ætla í ferðalag innanlands í sumar þar sem gist er eina nótt eða lengur og ætlar tæplega helmingur að gista á hóteli. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar á vegum Ferðamálastofu.
Ferðaskrifstofan Kilroy International A/S hefur lokið við endurfjármögnun sem nemur 1.400 milljónum króna. Stendur til að nýta fjármagnið til að styrkja rekstur fyrirtækisins og sækja hugsanlega inn á nýja markaði þegar ferðamarkaðir halda áfram að opnast.
Tekjuskatts- og útsvarsstofn landsmanna hækkaði um 5,7% í fyrra frá árinu 2019 þrátt fyrir mikinn efnahagssamdrátt og stóraukið atvinnuleysi. Er það sama aukning og sást milli áranna 2018 og 2019. Hagfræðiprófessor segir að staðan hafi reynst mun betri en svartar spár gerðu ráð fyrir.
Prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands gerir ráð fyrir því að hlutur ferðaþjónustunnar í hagkerfi landsins sé helsta ástæða þess að OECD spái Íslandi svo hægum bata úr efnahagskreppu faraldursins.
Nadine Guðrún Yaghi fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni hefur ráðið sig til flugfélagsins Play sem samskiptastjóri fyrirtækisins. Hún hættir störfum á fréttastofunni í sumar.
Edda Valdimarsdóttir Blumenstein, Helgi Logason og Hörður Kristinn Örvarsson hafa öll verið ráðin til starfa hjá ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækinu Expectus sem sérfræðingar.
Tæplega þrjátíu ára sögu Humarhússins við Amtmannsstíg lauk í dag þegar starfsfólk kláraði að tæma húsnæðið og skellti í lás. Eigendum veitingastaðarins var tilkynnt á fimmtudag að þeir þyrftu að yfirgefa húsið innan fjögurra daga.
Afborganir af húsnæðislánum með breytilega vexti gætu hækkað um tugi þúsunda á mánuði og rúma milljón á ári ef Seðlabankinn dregur allar vaxtalækkanir sínar undanfarin tvö ár til baka og viðskiptabankarnir fylgja þeim hækkunum. Neytendasamtökin segja forsendur vaxtahækkana bankanna óskýrar og ósanngjarnar og undirbúa prófmál.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í morgun frávísunarkröfu MS í máli Mjólku gegn MS. Stofnandi Mjólku fagnar úrskurðinum.
Aztiq, fjárfestingafélag Róberts Wessman, hefur fest kaup á 2,4 milljarða króna lúxusíbúð á Flórída.
Matvælastofnun varar við neyslu á ís frá Ketó kompaní vegna örverumengunar. Um er að ræða innköllun á fjórum tegunum af ís framleiddum á sama degi.
Bú ráðgjafafyrirtækisins Capacent var tekið til gjaldsþrotaskipta þann 3. júní 2020 og er skiptum nú lokið. Gjaldþrotið nam 755 milljónum króna.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í gær fyrstu skóflustungu að nýrri 20.000 fermetra viðbyggingu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Áætlað er að hún verði tekin í notkun árið 2024 og heildarkostnaður verði 20,8 milljarðar króna.
Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands verða afhent í dag klukkan 12 í Hátíðasal Aðalbyggingar skólans. Viðburðurinn er liður í Nýsköpunarvikunni og verður hægt að fylgjast með verðlaununum í spilaranum hér fyrir neðan.
Fossar markaðir, sem er á meðal ráðgjafa vegna fyrirhugaðrar sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka, áætlar að virði bankans sé á bilinu 222 til 242 milljarðar króna. Sjálfstæði greiningaraðilinn Jakobsson Capital metur bankann á 155 til 218 milljarða króna.
Kvika, sameinað félag Kviku banka, TM og Lykils, hefur gengið frá kaupum á appinu Aur. Aur var stofnað árið 2015 sem einföld leið til að millifæra peninga og hefur verið afar vinsælt meðal ungs fólks.
Mikil uppbygging er í kortunum í Hveragerði en þar verður nýr áfangastaður sem ber nafnið Gróðurhúsið opnaður í sumar. Þar verður hótel, verslanir, mathöll, kaffihús, bar, ísbúð, sælkeraverslun og annars konar þjónusta í boði fyrir heimamenn og innlenda og erlenda ferðamenn.
Arion banki, Íslandsbanki og Landsbanki hafa allir kynnt vaxtahækkanir á útlánum sínum í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands. Hækka vextir vissra lána um 0,15 til 0,25 prósentustig og tóku breytingarnar gildi í dag.
Magnea Björg Jónsdóttir hefur verið ráðin viðskiptastýra Key of Marketing. Fyrirtækið, sem var stofnað árið 2018, hjálpar fyrirtækjum að fanga viðskiptavini með sjálfvirkni í markaðssetningu og efnissköpun.
Sala nýrra fólksbíla jókst um tæp 159% hér á landi í maí samanborið við sama tíma í fyrra. Nýskráningum fjölgaði um 24,9% milli ára á fyrstu fimm mánuðum ársins og fara úr 3.369 í 4.208.
Sigríður Harðardóttir, mannauðs- og gæðastjóri Strætó, er formaður nýrrar stjórnar Stjórnvísi. Hún tekur við formennskunni af Aðalheiði Ósk Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Vök Baths.
Elvar Orri Hreinsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Verkfæra ehf.
Í gær var 15.691 ferðagjöf nýtt, þar af 14.741 að fullu. Heildarupphæð gjafanna sem nýttar voru í gær nam um 80 milljónum króna.
N1 hefur ráðið Bjarka Má Flosason í nýtt starf þróunarstjóra stafrænna lausna fyrirtækisins.
Guðjón Ingi Ágústsson hefur tekið við sem forstöðumaður Stafrænna lausna og upplýsingatækni hjá Póstinum en hann hefur áður sinnt stöðu tæknirekstrarstjóra fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum.