
Viðskipti erlent

Hagkerfi í ESB að ná sér
Nýjar hagtölur af Evrusvæðinu og aðildarríkjum Evrópusambandsins eru til vitnis um að horfurnar eru góðar í Evrópu og að hagkerfi ESB eru nú mörg hver óðum að ná sér eftir fjármálakreppuna, segir Greining Íslandsbanka í nýju Morgunkorni.

Gullverð mun rjúka upp í hæstu hæðir
Búist er við því að verð á gulli muni ná methæðum á næsta ári. Gert er ráð fyrir því að verðið geti þá komist upp í um það bil 1500 bandaríkjadali á únsu. Hingað til hefur verðið náð hæst upp í 1266 dali. Það gerðist þann 21. júní síðastliðinn.

Uppsagnir og verkfall hjá Danmarks Radio
Fjöldi starfsmanna á Danmarks Radio, sem er danska ríkisútvarpið, hefur ákveðið að leggja niður störf. Ástæðan er óánægja með að samstarfsmönnum þeirra var sagt upp í morgun vegna niðurskurðar.

Kate Moss fatalínan lögð niður
Ofurfyrirsætan Kate Moss hefur slitið samstarfi við bresku Top Shop verslanirnar. Reglulegu samstarf þeirra, sem staðið hefur yfir í fjögur ár, lýkur með haust/vetrarlínunni, samkvæmt frétt Daily Telegraph.

HQ Bank tekinn til gjaldþrotaskipta í Svíþjóð
Sænski bankinn HQ Bank, sem árið 2008 keypti sænska hluta Glitnis, hefur verið tekinn til gjaldþrotaskipta. Frá þessu var greint í morgun en allar tilraunir til að halda bankanum á floti hafa mistekist. HQ bankinn er fjárfestingabanki með um 20 þúsund reikninga. Um 900 einstaklingar og fyrirtæki eiga fjárhæðir á reikningum sínum sem eru hærri en þarlendi innistæðutryggingasjóðurinn stendur skil á.

Dönskum bönkum fækkar úr 159 í 122
Fjármálakreppan hefur heldur betur sett mark sitt á bankastarfsemi í Danmörku. Frá árinu 2007 hefur nærri fjórða hverjum banka í landinu verið lokað.

Sparnaður sagður bitna á fátækum
Harkalegur sparnaður á fjárlögum í Bretlandi bitnar illa á fátækum, samkvæmt úttekt IFS, óháðrar þjóðhagsrannsóknastofnunar í Bretlandi. Þetta stangast á við yfirlýsingar bresku stjórnarinnar, sem segist einmitt hafa gætt þess vel að sparnaðurinn muni ekki bitna á fátæklingum.

Lifandi hænur rokseljast
Verð á lifandi hænum hefur rokið upp í Bretlandi undanfarin ár. Ástæðan er aukin spurn heimila og smábænda eftir slíkum húsdýrum. „Fólk vill komast í betri tengsl við náttúruna og það eykur áhuga fólks,“ segir Shelley Sanders, sem vinnur á kjúklingabúi í Dorsetsýslu í Englandi. Hún segir við breska blaðið Daily Mail að býlið selji 300 lifandi kjúklinga á mánuði. Mögulegt væri að selja mun fleiri hænur ef býlið gæti ræktað þær.

Íslandsvinur stefnir Facebook og fleiri Internetrisum
Moldríki Íslandsvinurinn Paul Allen, sem er annar stofnenda Microsoft, hefur stefnt 11 Internetfyrirtækjum. Hann sakar þau um að hafa stolið Internetlausn sem að hann hafði einkaleyfi á. Á meðal þessara fyrirtækja eru Apple, Google, Facebook, Yahoo, YouTube og eBay, segir breska blaðið Daily Telegraph.

Vísbendingar um olíu við Grænland
Skoska olíufélagið Cairn Energy hefur uppgötvað gas í Baffinflóa við strendur Grænlands sem gæti þýtt að þar væri olíu að finna. BBC fréttastofan segir að umhverfisverndasinnar séu uggandi yfir þessum tíðindum og minni á öll ósköpin sem hafi gengið á vestanhafs vegna olíulekans í Mexíkóflóa. Grænfriðungar hafa sent mótmælaskip til Baffinflóa vegna þessa. Olíuboranir halda samt áfram frammá haustið.

Pakistanar ræða við AGS
Yfirvöld í Pakistan eiga nú viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um risalán vegna flóðanna sem hafa valdið gríðarlegu tjóni í landinu undanfarnar þrjár vikur. Breska ríkisútvarpið hefur eftir svæðisstjóra sjóðsins að um 11 milljarða dollara lán sé að ræða. Til samanburðar má nefna að Sameinuðu þjóðirnar hafa þegar lofað hálfum milljarði dollara til hjálparstarfs á svæðinu.

Mads Mikkelsen réttir stöðuna af
Eitt af þjóðarstoltum Dana, kvikmyndastjarnan Mads Mikkelsen, sést þessa dagana ber að ofan í sundskýlu á hitabletisströnd í auglýsingu fyrir ferðaskrifstofuna Star Tour.

Makrílstríð í uppsiglingu - Skotar hafa fengið nóg
Breskir sjómenn eru æfir út í íslenska og færeyska sjómenn vegna makrílveiða. Samkvæmt breska blaðinu The Guardian hafa Ísland og Færeyjar aukið makrílkvótann sinn samanlagt úr 27 þúsund tonnum upp í 215 þúsund tonn.

Útgáfufyrirtæki í vanda vegna minni geisladiskasölu.
Einungis 4,95 milljónir geisladiska seldust í Bandaríkjunum í síðustu viku, eftir því sem fram kemur á vef Billboard. Þetta er minnsta sala á geisladiskum þar í landi síðan að byrjað var að fylgjast með sölunni árið 1991.

Hagnaður jókst um 20 prósent
Hollenska fyrirtækið Stork B.V. sem er að 17 prósentum í eigu Eyris Invest, jók rekstrarhagnað sinn um 20 prósent á fyrri helmingi ársins borið saman við árið í fyrra.

Kína að taka fram úr Japan
Verg landsframleiðsla í Japan á öðrum ársfjórðungi var töluvert minni en búist var við, samkvæmt tölum úr japanska stjórnkerfinu. Landsframleiðslan jókst aðeins um 0,1 prósent á fjórðungnum og tæplega hálft prósent samtals það sem af er árinu.

Yfir 30 milljónir Bandaríkjamanna án atvinnu
Yfir 30 milljónir Bandaríkjamanna eru atvinnulausir. Atvinnuleysi þar hefur aukist gríðarlega frá því áður en undirmálslánakrísan svonefnda kom upp.

Rússar banna útflutning á korni
Yfirvöld í Rússlandi hafa bannað allan útflutning á korni til ársloka. Þetta var ákveðið í kjölfar uppskerubrets vegna skógareldanna þar í landi. Áður höfðu yfirvöld bannað útflutning á hveiti, byggi og rúgi. Á vef breska ríkisútvarpsins kemur fram að bannið kemur til með að bitna helst á íbúum Mið-Austurlanda með hærra brauðverði en þangað selja Rússar megnið af uppskeru sinni.

Landsframleiðsla jókst um 2,2% í Þýskalandi
Landsframleiðsla í Þýskalandi jókst um 2,2% á öðrum fjórðungi ársins.

IKEA bæklingurinn kemur út í sextugasta sinn
IKEA bæklingurinn kemur út í Skandinavíu um þessar mundir í sextugasta sinn. Fyrsti bæklingurinn kom út árið 1951 og var upplagið þá 250 þúsund eintök. Þá var bæklingurinn níu blaðsíður að lengd.

Norski olíusjóðurinn tapaði tæpum 3.000 milljörðum
Norski olíusjóðurinn fékk á sig mikinn skell á öðrum ársfjórðungi ársins. Tapið af rekstrinum nemur 155 milljörðum norskra kr. eða rétt tæpum 3.000 milljörðum kr. Er þetta fjórða mesta tap á einum ársfjórðungi hjá sjóðnum.

Hagvöxtur í ESB-löndunum mun meiri en vænst var
Hagvöxtur í ESB-löndunum á öðrum ársfjórðungi ársins reyndist mun meiri en vænst var. Vöxturinn reyndist 1% hærri en hann var á fyrsta ársfjórðungi ársins. Sérfræðingar höfðu hinsvegar aðeins reiknað með 0,2% vexti.

Fjöldi fátækra Dana hefur aldrei verið meiri
Fjöldi þeirra sem lifa undir fátækramörkunum í Danmörku hefur aldrei verið meiri í sögunni. Yfir 300.000 Danir teljast nú til fátækra þar í landi.

Hveitiuppskera heimsins rýrnar um 15 milljónir tonna
Bandaríska landbúnaðarráðuneytið hefur verulega dregið úr áætlunum sínum um umfang hveitiuppskeru heimsins í ár.

Atvinnuleysistölur í Bandaríkjunum hækka enn
Atvinnuleysistölur í Bandaríkjunum halda áfram að hækka. Í síðustu viku bættust við 2000 manns á atvinnuleysisskrá. Þá voru atvinnulausir alls 484 þúsund talsins og höfðu ekki verið hærri fleiri í hálft ár, eða síðan í febrúar. Hagfræðingar höfðu hins vegar búist við því að atvinnulausum myndi fækka og voru að gera sér vonir um að talan færi niður í 469 þúsund.

Verðhækkanir á byggi valda hækkun bjórverðs
Heimsmarkaðsverð á byggi hefur meir en tvöfaldast á síðustu mánuðum og eru þær hækkanir í samræmi við hækkanir á hveiti og öðrum kornvörum. Sökum þessa má reikna með að verð á bjór muni hækka töluvert á næsta ári.

FIH bankinn eykur væntingar um hagnað ársins
FIH bankinn í Danmörku, sem er í íslenskri eigu, hefur aukið við væntingar sínar um hagnaðinn á þessu ári. Nú gerir bankinn ráð fyrir að hagnaðurinn nemi 450 milljónum danskra kr. eða rúmlega níu milljarða kr. eftir skatta.

Hagfræðiprófessor fullyrðir að Bandaríkin séu gjaldþrota
Bandarískur hagfræðiprófessor fullyrðir að Bandaríkin séu í raun gjaldþrota. Skattar þurfi að tvöfaldast til þess að hægt sé að ná tökum á skuldastöðu ríkisins.

Furstafjölskylda notar Danmörku til milljarða fjármagnsflutninga
Furstafjölskyldan í Liechtenstein, sem er ríkasta aðalsfjölskylda Evrópu, notar Danmörku til að millifæra tugi milljarða króna af fjármunum sínum milli sjóða sinna, verðbréfasala og skattaskjóla víða um heiminn.

Volvo ætlar að koma í veg fyrir banaslys
Enginn sem ferðast um í Volvo bifreið mun slasast alvarlega eða farast í bílslysi frá og með árinu 2020, samkvæmt nýrri áætlun sem bílaframleiðandinn hefur kynnt.