Sport

Uppgjörið: Fylkir - KR 0-1 | KR fagnaði sigri gegn tíu Fylkismönnum
KR stökk yfir lækinn og vann Fylki með einu marki gegn engu. Fylkismenn misstu mann af velli í fyrri hálfleik. Vitað var fyrirfram að þeir væru fallnir og KR væri búið að bjarga sér frá falli.

Uppgjörið: HK - Fram 2-1 | Flautumark heldur vonum HK á lífi
HK vann hádramatískan sigur á Fram í neðri hluta Bestu deildar karla í kvöld en sigurmarkið kom í uppbótartíma.

Auðvelt hjá Börsungum gegn Sevilla
Barcelona er áfram á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar en liðið fór létt með Sevilla í kvöld í leik sem sumir héldu að yrði ef til vill einhverskonar prófsteinn fyrir Börsunga.

FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann
Framherjinn Viðar Örn Kjartansson hefur verið dæmdur í sex mánaða bann af FIFA en bannið er tilkomið vegna framkvæmdar á starfslokum hans hjá CSKA Sofia í Búlgaríu.

Elías Már á skotskónum
Elías Már Ómarsson skoraði tvö mörk fyrir NAC Breda í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Martin klikkaði á lokaskotinu og Alba Berlin tapaði
Alba Berlin tapaði naumlega á móti Chemnitz í hörkuleik í þýska körfuboltanum í dag.

23 íslensk mörk þegar Magdeburg vann Leipzig
Magdeburg hafði betur í Íslendingaslag á móti Leipzig í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag.

Hlín heldur áfram að skora en fyrsta tapið hjá Guðrúnu
Íslendingaliðin Kristianstad og Rosengard voru í eldlínunni í sænsku kvennadeildinni í dag en þeim gekk misvel. Rosengard endar ekki tímabilið með fullt hús.

Liverpool tyllti sér á toppinn
Liverpool og Chelsea hafa bæði byrjað tímabilið í ensku úrvalsdeildinni vel en Liverpool þó töluvert betur. Sigur liðsins í dag var sá fjórði í röð og situr liðið nú eitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.

Stones tryggði City sigur í uppbótatíma
John Stones var hetja ensku meistaranna í dag. Hann skoraði sigurmark Manchester City á fimmtu mínútu í uppbótartíma þeagr City vann 2-1 útisigur á Wolves. Miðvörðurinn kom sínu liði líka á toppinn í ensku úrvalsdeildinni.

Albert fór meiddur af velli en liðið fór á kostum
Albert Guðmundsson var í byrjunarliðinu þegar Fiorentina vann sex marka stórsigur á Lecce á útivelli en dagurinn var stuttur hjá íslenska framherjanum.

Sædís meistari á fyrsta ári í atvinnumennsku
Sædís Rún Heiðarsdóttir og félagar hennar í Vålerenga tryggðu sér norska meistaratitilinn í kvennafótboltanum í dag með 3-0 sigri á Kolbotn.

Strákarnir hans Gumma Gumm með fimmta sigurinn í röð
Íslendingaliðið Fredericia vann flottan heimasigur á Ringsted í danska handboltanum í dag.

Sexfaldur Ólympíugullverðlaunahafi dauðvona
Hjólreiðagoðsögnin Sir Chris Hoy sagði frá því í viðtali við Sunday Times í morgun að barátta hans við krabbameinið sé töpuð.

Dana Björg markahæst í sigurleik
Dana Björg Guðmundsdóttir, nýjasta landsliðskona Íslands í handbolta, var markahæst í dag þegar lið hennar fagnaði sigri í norsku b-deildinni.

Kvaradona kom toppliðinu til bjargar
Georgíumaðurinn Khvicha Kvaratskhelia tryggði Napoli sigurinn á Empoli í ítölsku deildinni í dag.

Cecilía hélt hreinu á móti toppliðinu
Cecilía Rán Rúnarsdóttir og félagar hennar í Internazionale gerðu markalaust jafntefli við topplið Juventus í stórleiknum í itölsku deildinni í dag.

Fyrsti Íslendingurinn sem vinnur: Þú trúir þvi ekki hversu ánægður ég er
Auðunn Guðmundsson skrifaði söguna í gær þegar hann tryggði liði sínu, Team Thor, sigur í LMP3 kappakstrinum í Le Mans Cup en þetta var lokakeppni tímabilsins og fór fram í Portimao í Portúgal.

Hættir að elska Jürgen Klopp: „Hefur þú gleymt öllu?“
Jürgen Klopp var elskaður og dáður hjá liðunum sínum í Þýskalandi eftir að hafa gert frábæra hluti með bæði Borussia Dortmund og Mainz á sínum tíma. Sú ást hefur dofnað mikið eftir að hann réði sig í starf hjá Red Bull.

Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“
Rakel María Hjaltadóttir var sú fyrsta til að hætta keppni í íslenska hópnum á heimsmeistaramóti landsliða í bakgarðshlaupum.

Sjáðu dramatísk sigurmörk, vítaklúður Gylfa og öll mörkin úr Bestu í gær
Það var vissulega nóg af dramatík í leikjum Bestu deildar karla í fótbolta í gær þar sem Víkingar, Blikar og KA-menn fögnuðu sigri en Valsmenn misstu frá sér sigur á móti FH-ingum í Kaplakrika.

Besti dómarinn í deildinni á von á sínu þriðja barni
Bergrós Lilja Unudóttir var valin besti dómarinn í Bestu-deild kvenna í sumar. Hún varð sjálf að hætta knattspyrnuiðkun eftir höfuðhögg en vildi handa tengingu við íþróttina með því að dæma. Næsta tímabil er aftur á móti í uppnámi hjá dómaranum.

Messi kom inn á í hálfleik og skoraði þrennu
Lionel Messi er nýkominn heim úr landsliðsverkefni þar sem hann skoraði þrennu og byrjaði því á bekknum í bandaríska fótboltanum í nótt. Hann kom hins vegar inn á í hálfleik og skoraði í þrennu í 6-2 sigri Inter Miami á New England Revolution.

Grizzlies semja við lágvaxnasta leikmann NBA deildarinnar
Memphis Grizzlies hafa samið við japanska bakvörðinn Yuki Kawamura sem þætti kannski ekki fréttnæmt nema fyrir þá staðreynd að Kawamura er aðeins 173 cm á hæð og verður því lágvaxnasti leikmaður deildarinnar í vetur.

Skiptar skoðanir á nýju merki Njarðvíkur
Njarðvíkingar eru ekki bara komnir með nýtt og glæsilegt íþróttahús heldur hefur merki félagsins einnig fengið andlitslyftingu. Njarðvíkingar eru þó ekki á eitt sáttir með breytingarnar.

Dagskráin í dag: Botnslagir í Bestu
Línur eru teknar að skýrast í fallbaráttunni í Bestu deild karla en HK verður eiginlega að vinna í dag þegar liðið tekur á móti Fram.

„Hún er hjartað og lungað í liðinu“
Maddie Sutton, leikmaður Þórs frá Akureyri, hefur heillað Pálínu Gunnlaugsdóttur, sérfræðing Körfuboltakvölds, upp úr skónum það sem af er hausti.

Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð
Landsliðskonan Sandra Erlingsdóttir var mætt aftur á handboltavöllinn í dag þegar lið hennar Metzingen lagði Göppingen örugglega, 41-34. Þetta var fyrsti keppnisleikur Söndru síðan í lok síðasta árs en hún eignaðist son þann 15. júlí síðastliðinn.

PSG aftur á toppinn
PSG er aftur komið á topp frönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 4-2 sigur á Strasbourg í kvöld.

Sjálfsmark skaut Juvents á toppinn
Juventus skauts á topp Seríu A á Ítalíu í kvöld með tæpum 1-0 sigri á Lazio en gestirnir léku manni færri nær allan leikinn.