Sport
164 165 166 167 168 169 170 171 172 … 334 ›
Ratcliffe lætur 250 starfsmenn Man United fara Sir Jim Ratcliffe, minnihlutaeigandi enska knattspyrnufélagsins Manchester United, er lítið fyrir að spígspora í kringum heitan graut. Það tók hann ekki langan tíma til að láta hinn og þennan fara og nú hefur hann gert gott betur en 250 starfsmenn félagsins hafa fengið uppsagnarbréf. Enski boltinn 3.7.2024 18:31
Palhinha á leið til Bayern á metfé Bayern München gerði sitt besta til að festa kaup á portúgalska miðjumanninn João Palhinha á síðustu leiktíð. Loksins hefur þýska knattspyrnufélagið haft erindi sem erfiði en Fulham hefur samþykkt tilboð sem gerir hann að dýrustu sölu í sögu félagsins. Fótbolti 3.7.2024 17:47
Arsenal með augastað á Calafiori Arsenal, silfurlið ensku úrvalsdeildarinnar undanfarin tvö ár, hefur áhuga á einum af fáum Ítölum sem stóðu sig í stykkinu á EM í Þýskalandi. Enski boltinn 3.7.2024 17:01
Segir að varnarmenn geri í buxurnar þegar Gakpo fer á ferðina Cody Gakpo, leikmaður Liverpool, fékk ansi sérstakt hrós eftir sigur Hollands á Rúmeníu, 0-3, í sextán liða úrslitum Evrópumótsins í Þýskalandi. Fótbolti 3.7.2024 16:30
Marta fer til Parísar en hættir landsliðsstörfum eftir sjöttu Ólympíuleikana Brasilíska knattspyrnukonan Marta sem af mörgum er talin sú besta allra tíma mun taka þátt á sínum sjöttu Ólympíuleikum í sumar og hætta landsliðsstörfum í kjölfarið. Fótbolti 3.7.2024 16:01
Norðmenn með sinn stærsta Ólympíuhóp í meira en hálfa öld Á sama tíma og Íslendingar senda fáa keppendur til keppni á Ólympíuleikunum í París þá eru Norðmenn með risastóran Ólympíuhóp í ár. Sport 3.7.2024 15:30
Arnar og Andrea Íslandsmeistarar í 10 km götuhlaupi Andrea Kolbeinsdóttir úr ÍR og Arnar Pétursson úr Breiðabliki tryggðu sér í gær Íslandsmeistaratitla í 10 kílómetra götuhlaupi en Íslandsmótið var haldið samhliða Ármannshlaupinu. Sport 3.7.2024 15:19
Víkingar geta náð því sem enginn hefur gert í sextíu ár Víkingar eru einum leik frá fimmta bikarúrslitaleiknum í röð og sá leikur er á móti Stjörnunni í kvöld í undanúrslitum Mjólkurbikars karla. Íslenski boltinn 3.7.2024 15:01
Rangnick drepleiddist yfir öðrum leikjum á EM: „Ég átti erfitt með að halda mér vakandi“ Ralf Rangnick, þjálfari austurríska karlalandsliðsins í Austurríki, segir að nokkrir leikir á EM í Þýskalandi hafi gengið fram af honum vegna leiðinda. Fótbolti 3.7.2024 14:30
Gefur aðeins grænt ljós á viðræður við Manchester United Hollenski landsliðsmaðurinn og varnarmaðurinn Matthijs de Ligt hefur aðeins gefið grænt ljós á að hefja viðræður við enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United þrátt fyrir áhuga annarra stórliða. Enski boltinn 3.7.2024 14:01
LeBron James samdi við Lakers og spilar við hlið sonarins LeBron James hefur gengið frá nýjum tveggja ára samningi við Los Angeles Lakers í NBA deildinni í körfubolta en Adrian Wojnarowski sagði fyrstur frá þessu í dag. Stigahæsti leikmaður sögunnar spilar því áfram með Lakers. Körfubolti 3.7.2024 13:30
Höttur fær annan Dana til sín: „Vona að þið séuð ekki komin með ógeð af dönskum leikmönnum“ Adam Heede-Andersen samdi við Subway deildar liðið Hött frá Egilsstöðum. Hann hefur verið viðriðinn danska landsliðið og kemur frá Værløse í heimalandinu. Körfubolti 3.7.2024 13:01
„Við gáfum Bronny ekkert, hann vann fyrir þessu“ Los Angeles Lakers kynntu nýliða liðsins á blaðamannafundi í gær. JJ Redick, nýráðinn þjálfari liðsins, tók skýrt fram að Lebron „Bronny“ James Jr. hafi ekki fengið neitt upp í hendurnar. Körfubolti 3.7.2024 12:30
Sjáðu markið sem skilaði Stjörnunni fyrsta sigrinum í fimm leikjum Aðeins tvö mörk voru skoruð í þremur leikjum Bestu deildar kvenna í gær. Andrea Rut í Breiðablik og Úlfa Dís í Stjörnunni tryggðu sigur fyrir sín lið með skotum fyrir utan teig sem má sjá hér að neðan. Íslenski boltinn 3.7.2024 12:00
Simone Biles hoppaði upp í 3,6 metra hæð Bandaríska fimleikakonan Simone Biles er kannski bara 142 sentímetrar á hæð en það kemur ekki veg fyrir að hún getur hoppað upp í svakalega hæðir í æfingum sínum. Þetta sýndi hún heldur betur á úrtökumótinu fyrir Ólympíuleikana í París. Sport 3.7.2024 11:31
„Ég kæmi ekki inn í þetta lið nema með það hugarfar að vinna báða titlana“ Hilmar Smári Henningsson mun leika með Stjörnunni í Subway-deild karla á næsta tímabili. Hann er spenntur fyrir vetrinum og telur að Stjarnan geti unnið alla titla sem í boði eru. Körfubolti 3.7.2024 11:00
Óskar Hrafn ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá KR KR hefur ráðið Óskar Hrafn Þorvaldsson sem yfirmann knattspyrnumála hjá félaginu. Hann tekur formlega til starfa um næstu mánaðarmót. Fótbolti 3.7.2024 10:36
Fylgdust með hjartslætti Ronaldo í leiknum á móti Slóveníu Það voru ekki bara augu á Cristiano Ronaldo í leiknum við Slóvena í sextán liða úrslitum Evrópumótsins því einnig var fylgst náið með hjartslætti leikmannsins í þessum mikilvæga leik. Fótbolti 3.7.2024 10:00
Íslendingar mættu stundum hugsa sinn gang Enn þann dag í dag er Guðmundi Guðmundssyni þakkað fyrir Ólympíugullið sem hann vann með danska landsliðinu í handbolta árið 2016. Hann segir Íslendinga hins vegar, marga hverja, fljóta að gleyma. Handbolti 3.7.2024 09:31
Pabbinn svekktur eftir að Klay valdi Mavericks yfir Lakers Klay Thompson olli föður sínum vonbrigðum þegar hann valdi frekar að semja við Dallas Mavericks í staðinn fyrir að fara í Los Angeles Lakers. Körfubolti 3.7.2024 09:00
Hlynur Freyr stoppaði stutt í Noregi og fer nú til Brommapojkarna Eftir aðeins sjö mánaða dvöl hefur Hlynur Freyr Karlsson fært sig frá norska félaginu Haugesund til sænska félagsins Brommapojkarna Fótbolti 3.7.2024 08:17
Kallaður hinn tyrkneski Gordon Banks eftir hetjumarkvörslu sína Tyrkir tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins í gærkvöldi eftir 2-1 sigur á Austurríkismönnum í lokaleik sextán liða úrslitanna. Það voru margar hetjur í þessum frekar óvænta sigri tyrkneska liðsins en einn af þeim var án efa markvörðurinn Mert Gunok. Fótbolti 3.7.2024 08:00
Vinicius Jr. verður í banni þegar Brasilía mætir Úrúgvæ í átta liða úrslitum Brasilía og Kólumbía skildu jöfn 1-1 í lokaleik riðlakeppninnar í Ameríkubikarnum, Copa América. Kólumbía endaði því í efsta sæti riðilsins og mætir næst Panama en Brasilía mætir Úrúgvæ í átta liða úrslitum. Fótbolti 3.7.2024 07:29
Dómarinn neitaði að taka í hönd leikmanns eftir leik Dómari í leik Bandaríkjanna og Úrúgvæ í Suðurameríkukeppninni neitaði að taka í höndina á fyrirliða bandaríska landsliðsins eftir leikinn. Fótbolti 3.7.2024 07:00
Enginn vildi tala við hann en nú fær hann rúma þrjá milljarða Margir leikmenn hafa fengið stóra samninga í NBA deildinni síðustu daga en sumir höfðu mjög gaman að því að sjá einn leikmann fá nýjan samning. Körfubolti 3.7.2024 06:31
Dagskráin í dag: Besta deild kvenna og Bestu mörkin Ellefta umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta klárast í dag og hún verður gerð upp í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport í kvöld. Sport 3.7.2024 06:00
Skór á vellinum þegar Hollendingar skoruðu: Sjáðu mörkin á EM í kvöld Hollendingar og Tyrkir urðu í kvöld tvær síðustu þjóðirnar til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins í fótbolta í Þýskalandi. Fótbolti 2.7.2024 23:31
Enska liðið fékk einkatónleika frá Ed Sheeran Enska landsliðið er komið áfram í átta liða úrslitin á Evrópumótinu í fótbolta eftir dramatískan sigur á Slóvökum. Þeir fengu að launum einkatónleika frá einum frægasta tónlistarmanni Englendinga. Fótbolti 2.7.2024 23:15
„Bæði lið gátu klárlega stolið þessu í dag“ Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis, segir að tilfinningarnar séu blendnar eftir að lið hans gerði jafntefli við Víking í Bestu deild kvenna í kvöld. Leikurinn var mjög kaflaskiptur og gátu bæði lið tekið stigin þrjú hér í dag en niðurstaðan var markalaust jafntefli sem flestir myndu segja að væri sanngjörn úrslit. Íslenski boltinn 2.7.2024 22:50
Arnar vill sjá tvö þúsund manns í Víkinni annað kvöld Víkingur tekur á móti Stjörnunni í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta annað kvöld. Víkingar geta þar tryggt sér sæti í fimmta bikarúrslitaleiknum í röð en KA-menn komust í bikaúrslitaleikinn í kvöld. Sport 2.7.2024 22:46