

Hildigunnur Birgisdóttir myndlistarmaður hefur bæst í hóp listamanna i8 Gallerís á Tryggvagötu 16. Fyrsta einkasýning hennar þar verður opnuð síðdegis í dag og nefnist hún a) b) c) d) e) & f).
Tilkynnt hefur verið um hverjir eru tilnefndir til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs sem af hent verða þann 1. nóvember næstkomandi í Finlandiahúsinu í Helsinki.
Farþegarnir setjast um borð í lestarvagninn sem rennur rólega af stað. Leiðin liggur upp í mót með skrúfgangi upp í 200 metra hæð. Ferðalagið tekur tuttugu mínútur, en allir kæra sig kollótta um það enda útsýnið stórkostlegt úr stálgrindarturninum.
Barnamenningarhátíð Reykjavíkur var sett í gær fyrir fullum Eldborgarsal í Hörpu. Hátíðin stendur til sunnudagsins 30. apríl og verður fjölbreytt dagskrá alla dagana um borgina.
Halldóra K. Thoroddsen hlýtur Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins í ár fyrir skáldsögu sína Tvöfalt gler.
Um helmingur fólks segist vera of upptekinn til að lesa.
Anna Jónsdóttir sópran og Brynhildur Ásgeirsdóttir píanóleikari flytja sönglög eftir bandarísk 20. aldar tónskáld í Norræna húsinu á morgun, 23. apríl, klukkan 15:15.
Bókauppboð verður í Safnaðarheimili Grensáskirkju í dag. Þar verða ýmsir kjörgripir slegnir hæstbjóðanda af Bjarna Harðarsyni, bóksala á Selfossi.
Dansverkið Grrrrls eftir Ásrúnu Magnúsdóttur og stóran hóp af unglingsstelpum hefur hlotið óvænta velgengni á árinu, hátt í þúsund manns hafa séð verkið. Í verkinu leitar Ásrún svara við spurningum um hvernig það er að vera ung
Auður Hauksdóttir hefur allt frá hugmyndinni að Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum leitt starf stofnunarinnar sem verður opnuð með formlegum hætti í nýju húsi á sumardaginn fyrsta.
Bandaríski rithöfundurinn John Kennedy Toole á sér magnaða en sorglega sögu. Nýverið kom út í íslenskri þýðingu Ugga Jónssonar bókin Neonbiblían sem Toole skrifaði aðeins sextán ára gamall.
I, Daniel Blake, nýjasta mynd leikstjórans Kens Loach, hlaut bæði Gullpálma og BAFTA-verðlaun. Rebecca O'Brien, framleiðandi myndarinnar, segir að ástæðan sé sú að myndin eigi áríðandi erindi við samfélagið.
Listamaðurinn Ísak Óli Sævarsson er með myndir sem hann málar upp úr Tinnabókunum á sýningunni Tinni í túninu heima sem hann opnar í Listasal Mosfellsbæjar í dag.
Leiksýningin Elly í Borgarleikhúsinu hefur slegið í gegn. Björgvin Franz Gíslason stekkur í fjölmörg hlutverk og þykir standa sig vel í að túlka hina ástsælu söngvara Vilhjálm Vilhjálmsson og Ragnar Bjarnason.
Íslenskir bókaútgefendur segja önnur öfl að verki hér á landi.
Starfsfólk Norræna hússins býður fólki í sögustund á miðvikudagskvöldum. Þar deilir það reynslu sinni úr húsinu, skoðar gömul skjöl, skrár og myndir.
Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri leggur um þessar mundir lokahönd á sýninguna Álfahöllina í Þjóðleikhúsinu. Þorleifur hefur sterkar skoðanir á leikhúsinu, tilgangi þess og því samfélagi sem það fóstrar.
Á sýningunni Fjársjóður þjóðar sem opnuð verður á laugardaginn er úrval verka úr safneign Listasafns Íslands, sem gefur yfirlit yfir þróun myndlistar á Íslandi frá öndverðri nítjándu öld til okkar daga.
Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og doktor í norrænum fræðum, var heiðraður af Noregskonungi á dögunum.
Þjóðskjalasafnið er 135 ára í dag og af því tilefni er gefið út rit um Manntalið 1703 sem dönsk stjórnvöld ákváðu að framkvæma. Það er elsta varðveitta manntal í heiminum sem nær til allra íbúa í heilu landi.
Fyrirlestur og tvennir tónleikar á einni viku er á meðal þess sem stendur fyrir dyrum hjá Önnu Grétu Sigurðardóttur djasspíanista sem er hér í stuttu stoppi frá framhaldsnámi í Stokkhólmi.
Hlynur Helgason, myndlistarmaður og listfræðingur, opnar sýninguna Málverk/12 rendur í Hannesarholti við Grundarstíg í dag en fjórtán ár eru liðin síðan hann sýndi síðast málverk sín í Reykjavík.
Improv Ísland heldur Improv Festival í fyrsta sinn í Reykjavík dagana 5.-9.apríl í Þjóðleikhúsinu.
Gljúfrasteinn, heimili Halldórs og Auðar Laxness, verður opnað almenningi á ný eftir fimmtán mánaða lokun vegna viðgerða á laugardag.
Þó enn sé langt til haustsins og Bókmenntahátíðar í Reykjavík er þegar búið að ganga frá gestalistanum fyrir erlendu höfundana sem er einstaklega exótískur í ár samkvæmt Stellu Soffíu Jóhannsdóttur.
Bókstaflega er yfirskrift sýningar sem opnaði í gær í Hafnarborg. Vigdís Rún Jónsdóttir leiðir þar saman kynslóðir íslenskra konkretljóða og skoðar þróunina.
Finnski kvikmyndaleikstjórinn Aki Kaurismäki er löngu orðinn þekktur fyrir einstök efnistök enda margverðlaunaður fyrir verk sín. Nýjasta mynd Kaurismäki, The Other Side of Hope, er annar hluti af hafnarborgaþríleik leikstjórans en fyrsta myndin, Le Havre, kom út árið 2011.
Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari og Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari flytja Vetrarferð Schuberts í Hannesarholti í dag klukkan 17.
Georg Óskar hafði nægan tíma til að vinna sýningu sína Appetite for Midnight sem hann opnar í dag og leyfði því samtímanum að seytla rólega, oft frá útvarpinu, í gegnum kaldhæðna síu sína og yfir á strigann.