Sólrún Diego má þó vel við una
Óvæntasta metsölubók ársins, Heima, eftir Sólrúnu Diego, fellur þessa vikuna úr þriðja sæti niður í það fimmta, en hún má þó vel við una fyrir frumraun sína á ritvellinum og ekki hefur hún stigið feilspor í kynningu bókarinnar.
„Henni hefur svo sannarlega tekist að víkka eða jafnvel sprengja hugmyndaramma margra útgefenda og verður forvitnilegt að sjá hvaða stefnu handbókaflokkurinn mun taka á næsta ári. Sá áhugaverði flokkur hefur einmitt farið í gegnum nokkrar byltur á liðnum árum; hannyrðir, matreiðsla, hárfléttur, útivist og litabækur hafa til dæmis notið mikilla vinsælda svo nú er spurning hvort náttúruleg þrif og útlit heimila verði einhvers konar vísir að nýrri útgáfubylgju,“ segir Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda sem stendur að gerð listans.
Ragnar hástökkvari vikunnar
Bryndís bendir á að Ragnar Jónasson virðist annars ætla að verða hástökkvari íslenskra höfunda þetta árið. Á sama tíma í fyrra sat bók hans, Drungi, í sextánda sæti aðallistans en nú er Mistrið hans í því sjöunda, auk þess sem sú bók er nú orðin níunda mest selda bók ársins. „Þetta er glæsilegur árangur hjá höfundi, sem rétt eins og þau Yrsa og Ólafur Jóhann, sinnir bókaskrifum meðfram öðru starfi.“
Salan dreifist mikið í íslenskum skáldverkum og birtum við því stærri lista í þeim flokki enda ættu lesendur að skoða úrvalið vel áður en þeir velja sínar bækur. Nú þegar stutt er til jóla eru listarnir að taka á sig mynd sem lýsir stöðunni í bóksölu vel. Ef litið er til Topplistans einkenna hann glæpasögur, barnabækur og svo ævisögur. Og á uppsöfnuðum lista má sjá hversu miklu bóksalan í desember setur mark sitt á árið allt; hátt hlutfall bóksölunnar fer fram þá og vísar til þessa séríslenska siðs sem er að gefa bækur í jólagjöf í svo stórum stíl. Norrænu glæpasagnahöfundarnir Jo Nesbø og Camilla Läckberg eru þau einu sem ná að setja strik í þann reikning.
Topplistinn - söluhæstu titlar Bóksölulistans
- Myrkrið veit - Arnaldur Indriðason
- Gatið - Yrsa Sigurðardóttir
- Amma best - Gunnar Helgason
- Þitt eigið ævintýri - Ævar Þór Benediktsson
- Heima - Sólrún Diego
- Útkall, Reiðarslag í Eyjum - Óttar Sveinsson
- Mistur - Ragnar Jónasson
- Sakramentið - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Sönglögin okkar - Ýmsir / Jón Ólafsson
- Saga Ástu - Jón Kalman Stefánsson
- Syndafallið - Mikael Torfason
- Jól með Láru - Birgitta Haukdal
- Skuggarnir - Stefán Máni
- Henri hittir í mark - Þorgrímur Þráinsson
- Blóðug jörð - Vilborg Davíðsdóttir
- Jólalitabókin - Bókafélagið
- Til orrustu frá Íslandi - Illugi Jökulsson
- Þúsund kossar - Jóga - Jón Gnarr
- Flóttinn hans afa - David Walliams
- Rúna - Örlagasaga - Sigmundur Ernir Rúnarsson
Íslensk skáldverk
- Myrkrið veit - Arnaldur Indriðason
- Gatið - Yrsa Sigurðardóttir
- Mistur - Ragnar Jónasson
- Sakramentið - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Saga Ástu - Jón Kalman Stefánsson
- Skuggarnir - Stefán Máni
- Blóðug jörð - Vilborg Davíðsdóttir
- Passamyndir - Einar Már Guðmundsson
- Ekki vera sár - Kristín Steinsdóttir
- Elín, ýmislegt - Kristín Eiríksdóttir
- Örninn og fálkinn - Valur Gunnarsson
- Í skugga drottins - Bjarni Harðarson
- Búrið - Lilja Sigurðardóttir
- Smartís - Gerður Kristný
- Refurinn - Sólveig Pálsdóttir
- Formaður húsfélagsins - Friðgeir Einarsson
- Samsærið - Eiríkur Bergmann
- Aftur og aftur - Halldór Armand
- Brotamynd - Ármann Jakobsson
- Vályndi - Friðrika Benónýsdóttir
Ævisögur
- Syndafallið - Mikael Torfason
- Þúsund kossar : Jóga - Jón Gnarr
- Rúna - Örlagasaga - Sigmundur Ernir Rúnarsson
- Konan í dalnum og dæturnar sjö - Guðmundur G. Hagalín
- Minn tími - saga Jóhönnu Sigurðardóttur - Páll Valsson
- Með lífið að veði - Yeomne Park
- Gunnar Birgisson - Orri Páll Ormarsson
- Ekki gleyma mér - Kristín Jóhannsdóttir
- Magni - Ævisaga Magna - Ragnar Ingi Aðalsteinsson
- Claessen saga fjármálamanns - Guðmundur Magnússon
Barnabækur - skáldverk
- Amma best - Gunnar Helgason
- Þitt eigið ævintýri - Ævar Þór Benediktsson
- Sönglögin okkar - Ýmsir / Jón Ólafsson
- Jól með Láru - Birgitta Haukdal
- Henri hittir í mark - Þorgrímur Þráinsson
- Flóttinn hans afa - David Walliams
- Bieber og Botnrassa - Haraldur F. Gíslason
- Jólasyrpa 2017 - Walt Disney
- Vögguvísurnar okkar - Ýmsir / Jón Ólafsson
- Verstu börn í heimi - David Walliams
Þýdd skáldverk
- Sonurinn - Jo Nesbø
- Sögur frá Rússlandi - Ýmsir
- Áfram líður tíminn - innbundin - Marry Higgins Clark
- Nornin - Camilla Läckberg
- Norrænar goðsagnir - Neil Gaiman
- Saga þernunnar - Margaret Atwood
- Áfram líður tíminn - kilja - Marry Higgins Clark
- Þrjár mínútur - Roslund & Hellstöm
- Litla bókabúðin í hálöndunum - Jenny Colgan
- Slepptu mér aldrei - Kazuo Ishiguro
Ljóð & leikrit
- Gamanvísnabókin - Ragnar Ingi Aðalsteinsson tók saman
- Hreistur - Bubbi Morthens
- Heilaskurðaðgerðin - Dagur Hjartarson
- Ljóðasafn - Gerður Kristný
- Dvalið við dauðalindir - Valdimar Tómasson
- Bónus ljóð - Andri Snær Magnason
- Flórída - Bergþóra Snæbjörnsdóttir
- Ljóð muna rödd - Sigurður Pálsson
- Hin svarta útsending - Kött Grá Pje
- Fiskur af himni - Hallgrímur Helgason
Barnafræði- og handbækur
- Jólalitabókin - Bókafélagið
- Gagn og gaman - Helgi Elíasson og Ísak Jónsson
- Skrifum stafina - Jessica Greenwell
- Geimverur - leitin að lífi í geimnum - Sævar Helgi Bragason
- Hetjurnar á HM 2018- Illugi Jökulsson
- Góðar gátur - Guðjón Ingi Eiríksson
- 13 þrautir jólasveinanna: jólaskemmtanir - Huginn Þór Grétarsson
- Kvöldsögur fyrir uppreisnagjarnar stelpur - Elena Favilli / Francesca Cavallo
- Settu saman mannslíkamann - Richard Walker
- Brandarar og gátur 2 - Huginn Þór Grétarsson
Ungmennabækur
- Er ekki allt í lagi með þig? - Elísa Jóhannsdóttir
- Vertu ósýnilegur - Kristín Helga Gunnarsdóttir
- Galdra Dísa Gunnar - Theodór Eggertsson
- Hvísl hrafnanna - Malene Sølvsten
- Endalokin : Gjörningaveður - Marta Hlín Magnadóttir / Birgitta Elín Hassell
- Nei, nú ert'að spauga, Kolfinna - Hrönn Reynisdóttir
- Koparborgin - Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
- Vetrarfrí - Hildur Knútsdóttir
- Harry Potter og bölvun barnsins - J. K. Rowling
- Sölvasaga unglings - Arnar Már Arngrímsson
Fræði og almennt efni -að undanskildum matreiðslu- og handavinnubókum
- Heima - Sólrún Diego
- Útkall: Reiðarslag í Eyjum - Óttar Sveinsson
- Til orrustu frá Íslandi - Illugi Jökulsson
- Hérasprettir - Baldur Grétarsson og Ragnar Ingi Aðalsteinsson
- Mamma : Hlý hugrenning fyrir hvern dag ársins - Pam Brown
- Híf opp! Gamansögur af íslenskum sjómönnum - Guðjón Ingi Eiríksson
- Vargöld á Vígaslóð - Magnús Þór Hafsteinsson
- Hönnun : Leiðsögn í máli og myndum - Ýmsir
- Kortlagning Íslands - Íslandskorti 1482-1850 - Reynir Finndal Grétarsson
- Lifum núna - Dalton Exley
Matreiðslu- og handverksbækur
- Stóra bókin um sous vide - Viktor Örn Andrésson
- Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir
- Gulur, rauður grænn & salt - Berglind Guðmundsdóttir
- Jólaprjón - Guðrún S. Magnúsdóttir
- Matarást - Nanna Rögnvaldardóttir
- Litla vínbókin - Jancis Robinson
- Heklaðar tuskur - C. S. Rasmussen / S. Grangaard
- Prjónaðar tuskur - Helle Benedikte Neigaard
- Kanntu brauð að baka? - Svanur Kristjánsson
- Heilsuréttir fjölskyldunnar - Berglind Sigmarsdóttir
Uppsafnaður listi frá áramótum
- Myrkrið veit - Arnaldur Indriðason
- Gatið - Yrsa Sigurðardóttir
- Amma best - Gunnar Helgason
- Með lífið að veði - Yeomne Park
- Heima - Sólrún Diego
- Þitt eigið ævintýri - Ævar Þór Benediktsson
- Löggan - Jo Nesbø
- Útkall: Reiðarslag í Eyjum - Óttar Sveinsson
- Mistur - Ragnar Jónasson
- Nornin - Camilla Läckberg